Sagnir - 01.06.2004, Qupperneq 57

Sagnir - 01.06.2004, Qupperneq 57
■ SIGFÚS ÓLAFSSON Hér er í fyrsta skipti gerð grein fyrir stefnu blaðsins í Víetnam- stríðinu með beinum hætti. Sennilega má hér greina viðbrögð vegna kosningabaráttunnar í aðdraganda alþingiskosninga því vit- anlega hefur andstaðan við Víetnamstríðið skilað sér í stuðningi við þá flokka sem voru lengst til vinstri. Erfið staða Sjálfstæðis- flokksins í málinu eftir tólf ára stjórnarsetu kallaði á enn mildari afstöðu og að hún væri sett fram tæpitungulaust. PENTAGON-SKJÖLIN „Alvarlegt áfall“ var yfirskrift leiðara Morgunblaðsins 25. júní 1971. Þar var fjallað um Pentagon-skjölin svokölluðu sem banda- ríska varnarmálaráðuneytið hafði látið taka saman og blaðið hafði flutt fréttir af tveimur dögum áður. Birting þeirra svipti hulunni af lygum og fölsunum Johnson-stjórnarinnar viðvíkjandi gangi stríðs- ins í Víetnam. Eitt mesta hneykslið varðaði sjálft upphaf stríðsins enda afhjúpuðu skjölin hvað raunverulega hafði gerst á Tonkin- flóa á sínum tíma og að ákvörðun um stóraukinn hernað í Víetnam hafði verið tekin fimm mánuðum fyrr.44 í leiðaranum var því velt upp hvort svipaða sögu væri þá að segja af öðrum atvikum úr stríðinu. Um áhrif þessa sagði blaðið: Alla vega er ljóst, að í framtíðinni mun almenningsálitið taka af ítrustu varúð yfirlýsingum og skýringum bandarískra ráðamanna um ástæður til ýmissa aðgerða og afskipta víða um heimsbyggð- ina.45 Að sögn Óla Tynes var birting Pentagon-skjalanna mikið áfall fyrir ritstjórana. Sjálfum hafi honum verið brugðið en hann hafi alltaf gert sér grein fyrir að miklu væri logið um gang Víetnam- stríðsins. Þannig hafi hlutirnir einfaldlega gengið fyrir sig í kalda stríðinu.46 Styrmi Gunnarssyni þótti málið mjög óþægilegt þar sem hann taldi að það myndi veikja baráttuna gegn kommúnistum. Að öðru leyti kvaðst hann ekki muna sérstaklega eftir umfjöllun um Pentagon-skjölin í Morgunblaðinu þar sem það mál hafi verið á könnu Matthíasar Johannessens ritstjóra.47 Að sögn Óla Tynes var birting Penta- gon-skjalanna mikið áfall íyiii' ritstjór- ana. Sjálfum hafi honum verið brugðið en hann hafi alltaf gert sér grein fyrir að miklu væri logið um gang Víetnam- stríðsins. Upp frá þessu breyttist tónninn í Morgunblaðinu og birtist t.d. leiðari seint í ágúst sem margir hefðu frekar búist við á síðum Þjóð- viljans. Þar var fjallað um fyrirhugaðar forsetakosningar í Suður- Víetnam í október sama ár og sagt að þær væru að snúast upp í al- gjöran skrípaleik þar sem að Nguyen Van Thieu, sitjandi forseta, hefði tekist að útiloka aðra frambjóðendur með valdi. Ef kosning- arnar færu fram myndi sú litla trú sem sumir hefðu enn á að íhlutun Bandaríkjanna snerist um að „tryggja frelsi og sjálfsákvörðunarrétt þjóðarinnar í Suður-Víetnam, [hverfa] eins og dögg fyrir sólu."48 Morgunblaðið fagnaði kjöri Thieu árið 1967 og sagði að kosning- arnar styrktu málstað Bandaríkjamanna sem segðust vera í Ví- etnam til „að berjast fyrir málstað lýðræðis og frelsis."4’ Nú var öld- in önnur. Thieu vann kosningarnar 1971 með 91,5% atkvæða líkt og forseta var siður í Suður-Víetnam og um það voru ekki höfð frekari orð í leiðara Morgunblaðsins.50 Þessar kosningar voru blað- inu ekkert fagnaðarefni. Styrmir segir að í tíð vinstristjórnarinnar 1971-1974 hafi Víetnam- stríðið verið óþægilegt mál fyrir Morgunblaðið. Það hafi verið óþægilegt að berjast fyrir áframhaldandi veru bandaríska hersins á íslandi sem um leið átti í stríði í Víetnam sem allur heimurinn var á móti. Því hafi verið reynt að finna leið til að greiða úr þeim vanda.51 Óli Tynes. Liður í því var að birta greinar eftir erlenda stríðsandstæðinga og var samið við New York Times um afnot af pistlum frægustu dálka- höfunda blaðsins í febrúar 1972.52 Upp frá því birtust margar slíkar greinar um Víetnamstríðið á sama tíma og lítið var fjallað um Ví- etnamstrfðið á vettvangi ritstjóranna. Óli Tynes segir að stemmn- ingunni megi lýsa sem svo að ritstjórar Morgunblaðsins hafi verið búnir að missa móð og mátt og ekki nennt að skrifa um stríðið sjálfir. Birting greina úr New York Times hafi verið þægileg leið til að losna við að fjalla um stríðið. Ekki var heldur að vænta slíkra skrifa frá blaðamönnum Moggans sé það rétt munað hjá Óla að þeir hafi deilt skoðunum ritstjóranna á stríðinu í Víetnam. Hann segir að blaðamennirnir hafi flestir hverjir komið úr Heimdalli, ungliðahreyfingu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, og því verið sam- stíga í skoðunum.53 Þannig atvikaðist það að málgagn Sjálfstæðisflokksins fór að birta greinar eftir menn á borð við Antony Lewis og taka það fram að skrif hans væru lýsandi fyrir málflutning þeirra sem stæðu hvað lengst til vinstri í bandarískum stjórnmálum.54 Tilgangurinn var að víkka umfjöllun um Víetnamstríðið á síðum blaðsins og auka trú- verðugleika þess þegar afstaðan til varnarliðsins var annars vegar. Ritstjórarnir vildu sýna að þeir gagnrýndu Bandaríkin þegar ástæða væri til svo ekki væri hægt að segja að Morgunblaðið væri svo húsbóndahollt að það deildi ekki á stríðið í Víetnam þegar allir hefðu látið af stuðningi við það.55 Vonir um friðarsamninga sfðla árs 1972 brunnu upp í jólaloftárás- unum svokölluðu þegar Bandaríkjamenn vörpuðu 40 þúsund tonn- um af sprengjum á Norður-Vfetnam seinnipart desember.56 Loft- árásirnar voru þær mestu í stríðinu og viðbrögðin urðu víða afar hörð. New York Times kallaði þær steinaldarlega villimennsku og Washington Post sagði sprengjuregnið bæði villimannslegt og heimskulegt.57 í fréttum Morgunblaðsins af fyrstu viðbrögðum við árásum Bandaríkjamanna var greint frá því að þær hefðu verið gagnrýndar víða.58 Um þær var ekkert fjallað efnislega í ritstjórnar- greinum blaðsins. I ársbyrjun 1973 hófst opinbert endurmat Morgunblaðsins á styrj- öldinni í Víetnam: [A]fleiðingin af þátttöku Bandaríkjanna í henni hefur einmitt orðið sú, sem hún átti að koma í veg fyrir. Bandaríkin hófu þátt- töku í Víetnam-stríðinu til þess að stemma stigu við framgangi kommúnismans í Asíu - eða svo var okkur sagt. En afleiðingin hef- ur orðið sú, að þátttaka þeirra hefur orðið vatn á myllu kommún- ismans um allan heim.59 UNDANHALD SAMKVÆMT ÁÆTLUN" sagnir 2 a árgangur 04 55
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Sagnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.