Sagnir - 01.06.2004, Page 58

Sagnir - 01.06.2004, Page 58
UNDANHALD SAMKVÆMT ÁÆTLUN Áhyggjur Morgunblaðsins af því að stríðið hefði reynst Bandaríkjunum álitshnekkir og snúið mörgu ungu fólki til fylgis við vinstriöfl í heiminum leyndu sér ekki á þessum tíma. Orðasambandið „svo var okkur sagt“ segir meira en margir leið- arar um viðhorf greinarhöfundar til stríðs sem hann viðurkenndi að hefði verið „í hróplegri mótsögn við siðgæðisvitund" ungs fólks. Styrmir Gunnarsson ritstjóri Morgunblaðsins. Það voru eðlilega mikil vonbrigði að hafa stutt hernaðinn svo lengi þegar útkoman varð fullkomlega andstæð því sem ætlað var. Styrmir Gunnarsson segir að ritstjórar Morgunblaðsins hafi spurt sig hvernig stæði á því að valdhöfum kommúnistaríkjanna hefði tekist að snúa Víetnamstríðinu þannig „að það sem að við töldum vera stríð við kommúnismann [hafi að] mati almennings um allan heim verið sjálfstæðisbarátta Víetnama.““ Morgunblaðið hafði því margvíslegar ástæður til að fagna vopna- hléi í lok janúar 1973. í Ieiðara var það þó sérstaklega áréttað að þeir sem hæst hefðu talað um stríðsglæpi Bandaríkjamanna í Ví- etnam ættu engan heiður af vopnahléssamkomulaginu, heldur Ví- etnamar sjálfir ásamt Bandaríkjamönnum, Kínverjum og Sovét- mönnum. Það hefði enginn sigrað í Víetnam, hvorki Bandaríkja- menn né kommúnistar, heldur allir tapað. Hvað framtíðina snerti taldi blaðið best að landinu yrði áfram skipt f tvo hluta og benti m.a. á batnandi sambúð þýsku ríkjanna því til stuðnings.61 Áhyggjur Morgunblaðsins af því að stríðið hefði reynst Banda- ríkjunum álitshnekkir og snúið mörgu ungu fólki til fylgis við vinstriöfl í heiminum leyndu sér ekki á þessum tíma. Gleðin yfir því að stríðinu væri að ljúka var blandin vonbrigðum yfir því hvernig stríðið hafði snúist í höndum Bandaríkjamanna og orðið „vatn á myllu kommúnismans um allan heim.“ NIÐURSTÖÐUR Á árunum 1967-1973 stundaði Morgunblaðið skipulegt undan- hald í umræðunni um stríðið í Víetnam. Eftir þriggja ára þrotlaus skrif þar sem ekki gekk hnífurinn á milli blaðsins og Bandaríkja- hers í stóru sem smáu var mörkuð sú stefna að feta sig frá stuðningi við stríðið þó þannig að Sjálfstæðisflokkurinn og málgagnið biðu sem minnstan skaða af. Þrír atburðir virðast hafa ráðið mestu um þessa þróun mála. Fyrst skal nefna vesturferð Styrmis Gunnarssonar sem komst að raun um það haustið 1967 að sitthvað var bogið við hugmyndir morgunblaðsmanna um Víetnamstríðið og viðhorfin til þess í Bandaríkjunum. Andstaðan meðal almennings var miklu meiri en þeir höfðu viljað trúa og talsmenn hennar á vettvangi stjórnmál- anna voru margir hverjir í hópi frjálslyndra þingmanna, jafnvel „toppmenn" eins og Styrmir orðaði það sjálfur. Tet-sóknin í ársbyrjun 1968 kollvarpaði þeirri mynd sem Banda- ríkjastjórn hafði lengi haldið að almenningi á Vesturlöndum af víg- stöðunni. Trúin á hernaðarlega yfirburði fauk út í veður og vind þegar í ljós kom að Bandaríkin gátu ekki einu sinni varið sitt eigið sendiráð í Suður-Víetnam fyrir skæruliðum Viet Minh. Sú vitneskja að Bandaríkin gætu allt eins beðið ósigur í Indókína var ný ástæða til að rifa seglin í áróðursstríðinu. Áfallið sem fylgjendur Bandaríkjastjórnar og Suður-víetnamska hersins urðu fyrir þegar Pentagon-skjölin voru dregin fram í dags- Þrátt fyrir að Styrmir Gunnarsson hafi greint ritstjórum Morgunblaðsins frá því haustið 1967 sem hann varð áskynja í Bandaríkjaheimsókn um sumarið var það ekki fyrr en árið 1971 sem blaðið fór að draga úr stuðningi sínum við aðgerðir Bandaríkjanna. ljósið seint í júní 1971 var sýnu stærra. Skyndilega sat blaðið uppi með það að hafa tekið gagnrýnilaust upp lygar og blekkingar um gang mála. Blaðið fór að efast um eiginlegan tilgang stríðsins og fór að birta erlendar greinar sem gagnrýndu stríðið. Var það gert bæði til þess að víkka sjónarhorn blaðsins í umfjölluninni og auka trú- verðugleika þess og Sjálfstæðisflokksins í baráttunni gegn yfirlýstri stefnu vinstristjórnarinnar um brottför hersins. Þegar friðarsamningar voru loks undirritaðir sagði Morgunblaðið réttilega að allir hefðu tapað í Víetnamstríðinu. Því var eiginn ósig- ur í málinu ljós 25. júní 1971 þegar ritstjórar blaðsins sáu að þeir hefðu átt að taka „af ítrustu varúð yfirlýsingum og skýringum bandarískra ráðamanna um ástæður til ýmissa aðgerða og af skipta“ í Víetnamstríðinu. Það liggur í orðum Morgunblaðsins að þann daginn hafi ritstjórum þess liðið eins og nytsömum sakleysingjum. Þrátt fyrir að Styrmir Gunnarsson hafi greint ritstjórum Morgun- blaðsins frá því haustið 1967 sem hann varð áskynja í Bandaríkja- heimsókn um sumarið var það ekki fyrr en árið 1971 sem blaðið fór að draga úr stuðningi sínum við aðgerðir Bandaríkjanna. Afstaða þess til Víetnamstríðsins á því tímabili mótaðist því umfram allt af andkommúnisma þar sem baráttan gegn sameiginlegum óvini, heimskommúnismanum, var þyngri á metunum en vitneskja rit- stjórnarinnar um staðreyndir stríðsins í Víetnam. 56 SAGNIR 24 ÁRGANGUR 04 M O R G U N L A Ð I Ð O G V E T N A M 9 6 7
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.