Sagnir - 01.06.2004, Side 68
Uppbygging Efra-Breiðholts
Fellapakkið í gettóínu
Upp úr 1960 hófst undirbúningur að skipulagi Breiðholts og þar risu á tiltölulega skömmum tíma þrjú
fjölmenn íbúðahverfi. Árið 2003 bjuggu þar 21.880 íbúar og var Breiðholt stœrsta hverfi Reykjavíkur
með um fimmtung borgarbúa. í Fellahverfinu sem er hluti af Efra-Breiðholti eru nœr eingöngu blokkir,
sem flestar voru byggðar fyrir láglaunafólk og þá sem nutu félagsaðstoðar frá Reykjavíkurborg.
AÐDRAGANDI AÐ BYGGINGU FELLAHVERFISINS
Fyrstu ár sjöunda áratugarins einkenndust af átökum á vinnumarkaði en um miðbik
hans voru gerðir samningar milli verkalýðshreyfingarinnar, vinnuveitenda og ríkis-
stjórnarinnar.21 tengslum við þá og til að greiða fyrir þeim gaf ríkisstjórnin út yfirlýsingu
en mikilvægustu atriði hennar voru: 1) Ákvörðun urn byggingu 1.250 íbúða fyrir lág-
launafólk á næstu 5 árum.2) Þær 1.000 íbúðir sem falla myndu í hlut ríkisins skyldu seld-
ar láglaunafólki í verkalýðshreyfingunni á kostnaðarverði og á hagstæðum lánum. 3)
Gerð skyldi tilraun til að lækka byggingarkostnaðinn með stöðlun, fjöldaframleiðslu,
góðri skipulagningu og fullkomnustu tækni sem við var komið. 4) Reykjavíkurborg yrði
aðili að þessum framkvæmdum og fengi í sinn hlut 250 íbúðir en borgin stóð þá í átaki
við að útrýma heilsuspillandi húsnæði.3
Að baki þessari ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að gera stórátak í byggingarmálum
má nefna tvær ástæður. Annars vegar var um að ræða þrýsting frá verkalýðsfélögunum
og tíð verkföll sem leiddu til kjarasamninga þar sem húsnæðismál voru sett á oddinn.
Hins vegar var mikið skipulagsleysi í byggingar- og lánamálum almennt og nauðsynlegt
var að bregðast við þeim vanda.4
I yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar var kveðið á um að nefnd skyldi annast byggingarfram-
kvæmdirnar. Nefnd þessi hélt sinn fyrsta fund sjöunda september 1965 og voru fundirn-
ir haldnir vikulega eftir það.5 Nefndin fékk nafnið Framkvæmdanefnd byggingaráætlun-
ar (hér eftir kölluð FB). Fljótlega eftir að nefndin kom saman ályktaði hún að ef verk-
efnið ætti að bera árangur væri ekki hægt að rniða við fimm ára tímabil. Til að koma á
raunhæfum breytingum yrði að hefja hálfgerða byltingu í byggingartækni hér á landi og
áður en framkvæmdin gæti hafist yrði að hefja mikinn undirbúning og tilraunastarfsemi.
Þegar byggingartæknin var fundin sem fullnægði skilyrðunum um að lækka byggingar-
kostnaðinn og stytta byggingartímann, kom fljótlega í ljós að best væri að öll fram-
kvæmdin færi fram í einu hverfi. Sérstök áhersla var lögð á að framkvæmdirnar yrðu
stöðugar allan ársins hring.'' Framkvæmdinni var ákveðinn staður í Breiðholti. Ný frarn-
kvæmdaáætlun var síðan samin sem gerði ráð fyrir að FB lyki verkefninu á árunum
1974-75.7
Þegar þessir samningar um stórátak í húsnæðisbyggingum í Reykjavík voru gerðir ríkti
ástand sem neyddi hundruð fjölskyldna til þess að búa í heilsuspillandi húsnæði. Auk
þess bjuggu margar fjölskyldur í sumarbústöðum og slæmu bráðabirgðahúsnæði, t.d. í
Múlahverfi og Blesugróf. Þetta var fyrst og fremst almennt verkafólk.8
FB var fyrsti aðilinn sem hóf framkvæmdir í Breiðholtinu, en verkefnið var afar viða-
mikið. Margir sýndu verkefninu áhuga og sú leið var farin að fá þá til að mynda verk-
takafélag. Breiðholt h/f var stofnað árið 1967 og var það alhliða verktaka- og verkfræði-
fyrirtæki. Breiðholt h/f hafði mikið samtarf við FB, enda annaðist það höndum sex af
sjö byggingaráföngum FB. Breiðholt h/f varð risafyrirtæki á íslenskan mælikvarða með
fjölda manns í vinnu. Það ruddi auk þess braut í fjöldaframleiðsluaðferðum í íbúða-
byggingum sem varð þess valdandi að önnur verktakafyrirtæki urðu að lækka íbúðaverð
hjá sér/' Á áttunda áratugnum byggði Breiðholt h/f hvert stórhýsið á fætur öðru og kom
66 SAGN I R 24 ÁRGANGUR '04
UPPBYGGING EFRA-BREIÐHOL