Sagnir - 01.06.2004, Page 76

Sagnir - 01.06.2004, Page 76
Sendibréf Guðrúnar Skúladóttur eldri GÖFUGT var i Á síðustu árum hafa sendibréf og aðrar persónulegar heimildir fengið aukna athygli frœði- manna.2 Persónulegar heimildir hafa að sjálfsögðu verið kannaðar áður en eru e.t.v. núna rann- sakaðar á nýjan hátt af sagnfrœðingum sem leggja stund á „einsögu" eða „micro-history.“ Ung- ir sagnfrœðingar hafa í auknum mœli beint kastljósinu að fólki fyrri alda og þá að persónunum sjálf- um.3Þeir hafa grafist meira fyrir um hugsunarhátt fólks, líðan þess og viðhorf og skoðað þann ómeðvit- aða vitnisburð sem kemur fram í þessum heimildum. Persónulegar heimildir sýna okkur það sem er á bak við tölfrœðina, reglugerðirnar og lögin og erfitt er að finna betri heimildir en sendibréf til þess. Varla er hœgt að finna betri heimildir um einstaklinga fortíðarinnar en sendibréf. RAGNHILDUR SIGRÚN BJÖRNSDÓTTI Fædd árið 1971. Hún útskrifaðist með BA próf i sagnfræði vorið 2003. Allra manna duglegastur við að sinna útgáfu bréfa frá fyrri tímum var Finnur Sigmundsson landsbókavörður. Stóð hann fyrir skrásetningu á mörgum bind- um af sendibréfum og urðu sendibréf kvenna ekki útundan þótt karlpeningur- inn væri í meirihluta.4 Nokkur bréfasöfn eru til frá konum sem uppi voru á 18. og 19. öld. Má þar helst nefna bréfasafn Ingibjargar Jónsdóttur, systur Gríms Jónssonar amt- manns, en Finnur Sigmundsson stóð fyrir útgáfu þess. Ná þessi bréf yfir um fjögurra áratuga tímabil.5 Önnur bréfasöfn hafa verið könnuð en ekki gefin út og má t.d. nefna bréf Valgerðar Jónsdóttur biskupsfrúar.'’ Bréfasafnið sem ég ákvað að kanna er ekki eins stórt í sniðum og það sem Ingibjörg Jónsdóttir skildi eftir sig en ekki síður athyglisvert og nær yfir jafn langt tímabil. Kona sú sem vakti áhuga minn er Guðrún Skúladóttir dóttir Skúla Magnússonar landfógeta en um hann hefur mikið verið ritað og ekki rninna skráð um Innréttingarnar sem hann var aðalhvatamaðurinn að. Börn Skúla hafa aftur á móti ekki fengið mikla umfjöllun. Astæða þess að ég ákvað að rannsaka sendibréf Guðrúnar eldri Skúladóttur var sú að mér þótti dóttir fyrsta íslenska landfógetans verðugt viðfangsefni. Ekki minnkaði áhugi minn við lestur bréfa hennar. Guðrún var greinilega mjög athyglisverð kona, víðlesin, fróð og afskaplega mikil hannyrðakona. Þetta kemur berlega í ljós í þeim sendibréfum hennar sem hafa varðveist en þar nefnir hún ýmis atriði sem ekki virðast líkleg til að vekja athygli konu á þessum tíma. Hún spyr t.d. frétta af Napóleoni og eftirmanni hans Lúðvíki XVIII. í bréfi frá 27. ágúst 1814.7 Þá er hægt að lesa mikið út úr bréfunum um daglegt og innra líf hennar, hvað hana vanhagaði um og hvaða augum hún leit hlutina. Henni varð tíðrætt um handavinnu sína á seinni árum sérstaklega af því að þá var hún orðin sjúklingur og átti ekki eins auðvelt með að sinna handavinnunni og áður. Mörg bréfa hennar voru skrifuð í nokkurs konar dagbókarformi þar sem hún rakti þá atburði sem gerst höfðu síðan hún skrifaði viðkomandi síðast. Verður hér fjallað um þessa merkilegu konu og kannað hvað það var helst sem hún fjallaði um í bréfum sínum. UM BRÉFIN Alls fundust 13 sendibréf frá Guðrúnu Skúladóttur eldri.8 Elsta bréfið er frá 30. júní 1774 en það yngsta er dagsett 18. ágúst 1815, eða ári áður en Guðrún lést. Sendibréfin spanna því 41 ár af lífi hennar. Elstu bréfin sex voru frá Guðrúnu til föður síns en hin voru til Sveins Pálssonar læknis og Gríms Jónssonar amtmanns. Þrjú þessara bréfa hafa birst á prenti í bók Finns Sigmundssonar Sendibréf frá íslenzkum konum. Þau bréf voru skrifuð 16. ágúst 1789 til Sveins Pálssonar, 5. september 1813 og 27. ágúst 1814 til Gríms Jónssonar.1’ Sendibréfin 13 sem fundust frá Guðrúnu skiptast síðan í tvö tímabil. Annað tímabilið afmarkast af búsetu hennar í Skagafirði en hitt af Viðeyjardvölinni en þangað 74 SAGNIR 24 ÁRGANGUR '04 S E N D BRÉF GUÐRÚNAR SKÚLADÓTTU
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.