Sagnir - 01.06.2004, Page 97

Sagnir - 01.06.2004, Page 97
Wþórólfur sævar sæmundsson að leggja hönd á plóg. Fyrir Ingibjörgu var mikið áhlaupaverk að ala upp níu börn og annast stórt heimili. Auk barnanna á bænum komu oft unglingar í sveit og hjálpuðu til, aðallega á sumrin. Ibúð- arhúsið í Eyjarhólum var byggt á fyrstu búskaparárum þeirra hjóna og var ekki mikið pláss fyrir þann barnafjölda sem brátt fyllti það. Þægindi voru lítil fyrst um sinn, ekkert rafmagn eða rennandi vatn. Bera þurfti kol í hús til upphitunar og matseldar og sækja varð vatn í brunn til neyslu og þvotta. Þessi vinna lagðist að stórum hluta á húsmóðurina, einkum áður en elstu börnin komust á legg til þess að hjálpa til. Ingibjörg lagði til ómælda vinnu til þess að fæða og klæða þennan stóra barnahóp. Aðstæður og efni leyfðu ekki annað en að klæðnaður væri nær allur heimaunninn eins og kostur var. Þær stundir sem ekki fóru í húsverk notaði Ingibjörg til þess að sauma og prjóna og voru ófáar prjónapeysur gerðar til þess að halda hlýju á börnunum á köldum vetrardögum.25 Þar sem rigningasamt er í Mýrdalnum gat heyskapur oft verið erfiður á sumrin. Áður en Þorlákur festi kaup á dráttarvél um 1949 var notuð hestasláttuvél og hestarakstrarvél. Börnin vöndust því ung að árum að umgangast hesta og beita þeim við vinnu auk þess sem þau lærðu flest að temja og járna. í þessi störf þurftu elstu börnin að ganga þegar Þorlákur þurfti að bregða sér af bæ vegna læknisstarfa og kom það oft fyrir að hann var fjarverandi dögum saman. Vinnuálagið var árstíðabundið og voru miklar vinnutarnir á haustin við smalamennsku en á vorin var áburði dreift og hugað að girðingum.26 Fornaldar Grana fánleik næstur Svo var Sindri svipgöfugur gæðingur geðstór garpur frægur. Fagurlimaður Faxi reistur- Fornaldar Grana fánleik næstur. Aflvöðvar æstir Eldur í sporum Flæstar eru nasir- Frán eru augu. Eitt, hið algjöra alhags smíði, skein á Sindra og í skapgerð allri. Það bætir hvern bragna að beita þeim hesti bráðskörpum í bálviðri. Glóandi kvik -gnestir í taugum skerpir lífsskygni -Stillir blóð við blóð. Eyjólfur Guðmundsson, Hvoli.27 Af öllum þeim fjölda hesta sem Þorlákur eignaðist á sinni ævi átti hesturinn Sindri sérstakan stað í hjarta hans. Að mati Þorláks hafði Sindri alla þá kosti sem hestar þurftu til að bera. Leiðir Sindra og Þorláks lágu saman þegar hann frétti af efnilegum sex vetra fola frá Ytri-Skógum sama ár og hann hóf búskap í Eyjarhólum.28 Páll Bárðarson frá Ytri-Skógum átti Sindra og fór með Þorlák ofan við Skógafoss til að sýna honum klárinn. Sindri var í laut einni ásamt öðrum hestum og Þorlákur gleymdi aldrei þeirri hrifningu sem ÞAÐ BÆTIR HVERN BRAGNA AÐ barðist um í brjósti hans þegar klárinn lyfti upp höfði.29 Sindri var ekki að fullu taminn þegar Þorlákur keypti hann. Klár- inn hafði nokkra ágalla en var ekki mjög hlýðinn í byrjun, styggur og tók mikið gönuhlaup. Samt sem áður tókst Þorláki ákaflega vel að spekja hann. Fyrst eftir að Þorlákur fékk Sindra var hesturinn aðallega inni og aðeins hafður úti að degi til. Þorlákur leit til Sindra á morgnana, í kaffi- og matartímum og á kvöldin til þess að hygla honum. Það tók ekki nema hálfan mánuð þar til Sindri fór að gegna nafni og koma sjálfviljugur til Þorláks.30 Þorlákur í heimsókn hjá dóttur sinni Guðrúnu Sindri var jafnvígur á alla ganga, sótrauður með silfurhaft fax og tagl og mikið reistur. Hann var hálsgrennri og lengri en flestir hest- ar með brjóstið vel framsett eða svokallaða fuglsbringu og æða- rennur það berar að mótaði fyrir barkanum. Hann var tæpir 55 þumlungar á hæð, frekar langvaxinn en stutt var til hnésins og því skreffagur og skrefhár. Sindri var mikill skeiðhestur og afburða góður brokkari. Á brokkinu var hann mjög hraður og yfirferðar- mikill en það var svo mjúkt að hann þurfti eiginlega aldrei að stíga tölt þótt hann væri jafnframt góður töltari.31 Mikill vinskapur tókst með þeim Þor- láki og Sindra og margar sögur eru til af Sindra en hann þótti einstaklega vit- skarpur hestur. Vegna hæfileika Sindra myndaðist traust samband á milli þeirra tveggja. Mikill vinskapur tókst með þeim Þorláki og Sindra og margar sögur eru til af Sindra en hann þótti einstaklega vitskarpur hestur. Vegna hæfileika Sindra myndaðist traust samband á milli þeirra tveggja. Að sögn Þorláks fann Sindri alltaf öruggustu leiðirnar yfir ár eða vafasaman ís og það eina sem hann þurfti að gera var að gefa Sindra lausan tauminn og láta klárinn ráða.32 Augasteinninn Sindri reyndist ágætlega á kappreiðum í Reykja- vík og sigraði margoft. Að sögn Þorláks náði enginn hestur að sigra hann á skeiði vegna hraða hans á þeim gangi. Stundum sleppti Þor- lákur Sindra í Reykjavík og rataði gæðingurinn þá alla leið heim einn síns liðs. Þegar heim var komið reyndi Sindri alltaf að ná sam- bandi við einhvern til þess að láta vita af sér. Ef hann kom heim um hánótt stóð hann fyrir utan herbergisglugga þeirra hjóna og hneggjaði. Látunum linnti hann ekki fyrr en þau kveiktu ljós en þá tölti hann út í haga vitandi að mannfólkið vissi hver væri kominn heim. Klárinn gat verið mjög fljótur að ferðast þessa leið en fljót- astur var hann 30 klukkustundir frá Reykjavík til Eyjarhóla sem er u.þ.b. 130 kílómetra leið.33 BEITA ÞEIM HESTI sagnir 24 argangur 04 95
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.