Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Blaðsíða 3
t----------------------------------------->1
4. HEFTI 1. ÁRG.
DESEMBER, 1956
Bls.
149 Steinn Steinarr: Formáli á jörðu
152 Magnús Ásgeirsson: Faustþýðing
158 Gunnar Gunnarsson: Far veröld,
íar vel
163 Jóhann S. Hannesson: Tossa-
gerpla
165 Þórbergur Þórðason: Ef skrifaðar
hefðu verið dagbækur
176 Bragi Ásgeirsson: Tvær myndir
178 Pétur Benediktsson: Milliliður
allra milliliða
185 Jóhannes Nordal: Hvað er fram
undan?
189 Tvö bréf um andlegt frelsi frá
Friðriki A. Friðrikssyni og Nfels
Dungal
196 Tvö bréf frá Matthíasi til H. C.
Andersen
200 Undir skilningstrénu
201 Bókmenntir. Kristján Karlsson,
Jónas Kristjánsson, Jóhann S.
Hannesson og Kristján Albertsson
209 Leiklist. Þorsteinn Hannesson
210 Myndlist. Ragnar Jónsson.
RITSTJÓRN:
Tómas Guðmundsson
Ragnar Jónsson ábm.
Kristján Karlsson
Jóhannss Nordal
VÍKINGSPRENT
V-------------------------------------------
FÁTT ER BETRA en að geta gleymt,
gleymt sársauka liðinna daga, hættunum,
sem eitt sinn heltóku hugann, illgirni óvin-
arins. Án mildandi smyrsla gleymskunnar
væru sálir flestra manna sem opin und, og
heimurinn bæði ógnþrungnari staður og
verri. Sú sálræna vörn, sem í því felst að
grafa atburði, sem valdið hafa ótta og kvöl,
í undirdjúp vitundarinnar, er ekki aðeins
nauðsynleg til þess að venjulegir menn fái
notið einfaldrar lífshamingju og gleði. Hún
er einnig frumskilyrði þess, að þeir geti
sýnt hver öðrum miskunnsemi og jafnað
þá elda haturs og baráttu, sem sífellt
kvikna meðal þeirra.
En gleymnin getur líka verið hættuleg,
þegar hún svæfir varúðina, og lokar augum
mannanna fyrir þeim hættum, sem bíða
þeirra. Það hefur verið veikleiki lýðræðis-
þjóða, að þær hafa verið óminnugar á þær
hættur, sem vofað hafa yfir þjóðskipulagi
þeirra og hugsjónum. Þeim hefur verið of
gjarnt að láta hverjum degi nægja sína
þjáningu.
Á síðustu tveimur mánuðum hafa þó
þeir atburðir gerzt, sem vakið hafa svo að
segja hvert mannsbarn til meðvitundar um
þær ógnir, sem búa undir brosi valdhaf-
anna í Kreml. Framtíðin mun skera úr því,