Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Page 17

Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Page 17
FAR VEROLD, FAR VEL 161 einu sinni til að dúða sig og sitja stund úr degi sunnan undir vegg, njóta hádagsskins eða síðdegisyls a£ sólhnetti á fleygiferð í áríðandi erindum; það var hreint ekki á hverju sumri,_en aldrei leið nokkurt þeirra svo að Valgerður liti ekki inn til hans, og þá höfðu þau enn bollalagt um búskapinn, hvergi nema á látastbæjunum átti Vésteinn fyllilega heima, ems og nú var komið hög- um hans, Valgerður aftur á móti var naum- ast lengur gædd sama eldlega áhuganum og hór áður fyrr, það kom fyrir að hún stemgleymdi áríðandi útróttingum, trass- aði að hafa forsjá um fjallgöngur eða lesta- ferðir ofan á Fjörður, var alls ekki lengur með allan hugann við bústangið. Stund- um gerðist þetta svo bert, að Vósteinn fókk ekki varizt þeirri spurn, sem þungur grun- ur skaut að honum, hvort það væn ekki í raun og veru orðið henni kvalræði að búa með honum fötluðum og fjarverandi ár- um saman? Hingað til hafði honum þó tekizt að sannfæra sjálfan sig um, að ekki þyrfti endilega svo að vera. Sannleikurinn kynni að vera sá, að hún var ekki neitt barn lengur, þau voru engin börn nú orðið hvorki hún nó hann. Var hann því tekinn að íhuga og vók að því stundum, raunar undir rós, hver jarðanna i heimadalnum mundi henta þeim bezt er til alvörunnar kæmi, þeirra sem nokkr- ar líkur voru til að myndu losna úr ábúð. Valgerður var vön að skilja hálfkveðna vísu e£ Vósteinn var kveðandinn, en á framtíð- armálin reyndist hún furðu tornæm. Sá á kvölina sem á völina anzaði hún út í hött, eða einhverri álíka vitleysu. Vósteini tókst ekki að átta sig á því til fulls, hvert jarð- næðið mundi henm hugstæðast. Áhuga- leysi vinstúlku hans í þeim efnum kom ílla við hann, en annars var það skiljanlegt: þess háttar er sæmzt að láta liggja í þagn- argildi þangað til fó er handbært og hest- arnir söðlaðir. Hór var sá galli á, að kaup- verðið var hvergi til nema í hugarheim- um og hestarnir hið sama. Hitt vissi hann nákvæmlega, hvermg það mundi gerast eða ætti að gerast: einn góðan veðurdag mundi hann söðla gæðinginn og ríða af stað með annan betri í taumi — beina leið heim til brúðarefnisins. Þeir hlutir gerast þann veg. Hvað það ferðalag áhrærði var hvert einstakt atvik þaulhugsað og undir- búið, frá dagrenmngu og langt frameftir kvöldi var hann viðbúinn hverju því, er að höndum kynm að bera, þekkti vordag- ínn fyrirheitna út í æsar, hversu langt und- an sem hann kynni að vera: hvert skin og hvern skugga, angan rumskandi moldar, vilblæinn úr suðvestri, blikandi vötn með bláa himna og hátyrndar borgir svo neðra sem efra, — þekkti hann sem engan ann- an dag. Ætli ekki það! Hitt vissi hann miður, hvenær dagurinn öllum fremri mundi rísa nýskaptur og þó um leið skap- andi úr unnum austurvega, æði oft varð honum litið út á fjarlægan flóa: þar ætti hann fyrir sór að fæðast og þaðan fram að bruna í dýrð og dásemdum göfugra áforma og ódrepandi, ódauðlegra vona. Alheilum mönnum verður tíðum biðin löng, hvað þá kroppinbökum, en eftir drungavetur getur stundum skollið á sólær sumardagur. Á einum slíkum vók Vó- steinn að því við Valgerði, að hjónanefnur, sem eitthvað væri í spunnið, þyrftu ekki endilega að afmarka starfsþrek og athafna- þrá við eina jörð staka, suma dali væri hentugra að girða af í einu lagi en girða sundur, og gæti sá dalur vel orðið frægur

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.