Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Qupperneq 21

Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Qupperneq 21
ÞORBERGUR ÞORÐARSON: Ef skrifaðar hefðu verið dagbækur Það var mikill unaður að horía í vestur frá Hala í bjartviðri og í tunglsljósi á kvöldin. Þvers fyrir hávestrinu stóð Fellsfjall tæplega klukkutímagang frá bænum. Það var eins og það gengi fram úr fjallgarðinum, sem lá bak við endilanga byggðina frá norðaustri til suðvesturs. Það var hátt fjall og hrein- legt í laginu og ákaflega fagurt. Það var eins og það hefði verið búið til af miklum byggingameistara, sem hefði hugsað það vandlega út, áður en hann byrjaði að hlaða það. Manni fannst það vera nákvæmlega eins og það ætti að vera. Það vantaði ekk- ert í það og þar var engu ofaukið, og manni fannst allt í því vera á réttum stað. Það var listaverk, sem hinn ónefndi meistari hafði sett svona á þennan stað handa fólkinu til að lyfta huga sínum við að horfa á það. Það var fegurst frá Breiðabólsstaðarbæjun- um og innan af Helghól. Það voru ekki miklir klettar í austurhlíð- um þess, sem sneru austur að bæjunum. Það voru brekkur og óljós drög að klettum, eins og hlíðarnar væru hálfvegis afstrakt. Efst í því var stór botn með grasi og stórum steinum og skriðu þar fyrir ofan. Þar gat maður séð kindur heiman frá Hala. Það var ævintýralegt að sjá þær svona hátt uppi og langt í burtu, og maður gat staðið lengi úti á vesturhlaðinu og sökkt sér niður ,í hvemig þær hreyfðu sig. Og mikið öfundaði maður þær af útsýninu og lífsfrelsinu þarna uppi undir heiðbláum vesturhimninum. En mér fannst ókurteisi að láta kindur kukka á svona hátignarlegt fjall. Það var lista- verk, sem ætti bara að vera til að horfa á. Það var líka gaman a.ð standa úti á vestra hlaðinu, þegar nýlega var stytt upp stórrigningu og horfa á Fellsfjall rísa eins og snýskapað við fagurblátt vestanheiðið og telja lækina, sem streymdu niður hlíðina. Einu sinni voru þeir 37. Þá var eins og fjallið iðaði af æskulífi. Suðurhlið Fellsfjalls snöri á móti hafinu, og það sást aðeins austurröndin á henni heiman frá Hala. En hún blasti við manni utan af fjörunni og austanverðum Breiða- merkursandi. Hún var stórkostleg kletta- blokk, belti upp af belti, flug upp af flugi, ennþá mikilfenglegri og brattari en klettarnir fyrir ofan Breiðabólsstaðarbæina. Og hún var dekkri á litinn og eins og fastari í sér. Mér sýndist hún vera unglegri, svona um þrítugt, þeir um fimmtugt. Það hrapaði oftar úr þeim, eins og þeir væru famir að fella meira af. Það hrapaði þó einstöku sinnum úr Fellsklettum, og þá sagði Eyjólfur hrepp- stjóri, að nú hefði hurð hrokkið af hjörum hjá vættunum í fjallinu. Hann trúði því, að í Fellsfjalli byggju vættir, huldufólk og draugar, og það var svoleiðis fjall, að það hefði vel getað verið, og það var ekk- ert lakari trú en sú, að huidufólk og draugar stöfuðu af litlum mat, lélegum húsakynnum,
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.