Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Page 29

Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Page 29
EF SKRIFAÐAR HEFÐU VERIÐ DAGBÆKUR 173 dásamlegt útsýni austur til fjallanna og aust- ur yfir Breiðabólsstaðarlón og djúpt sjáar- hljóð í suðri. Hérna, þar sem við erum að fara núna, þar sem fjaran gengur fram í sjóinn á milli Stemmukróka og Jökulsár, þar strandaði skip Þórðar illuga, þegar hann kom til Is- lands, segir dagbók Hrollaugs. Það var að- faranótt 2. ágúst, í þoku og suðaustanbrælu. En það var ekki mjög slæmt í sjóinn, og fólkið bjargaðist lifandi í land og kindurnar og kýrin og hundurinn og tveir hestar, en graðungurinn varð fyrir vondu ólagi og drukknaði. Um morguninn létti upp þokunni og gerði heiða vestanátt með sólskini. Þá gekk Hrollaugur landnámsmaður upp í brekkurn- ar fyrir ofan Breiðabólsstað og fór að horfa út á sjóinn og fjörurnar, hvort nokkuð sæist rekið, en vinnufólk hans var við heyskap austur í teigum. Þá sá hann skip vera að velkjast í brimgarðinum fyrir vestan Stemmukróka og fólk vera á stjái uppi á fjörukambinum. Hann varð mjög hlessa. Þetta var fyrsta hafskip, sem hann hafði séð á sjó, síðan hann settist að á Breiða- bólsstað. Alltaf skiplaus sjór. Hann flýtti sér niður brekkumar og lét sækja tvo hesta og gyrti sig sverðinu Haraldsnaut og setti upp fimmmarka hringinn, sem Haraldur kóng- ur hafði gefið honum og reið svo út eftir og Özur keiliselgur sonur hans með honum. Þeir mættu Þórði illuga sunnan undir háu malarhólunum fyrir utan Brennhólakvíslar. Hann var á leið austur að Breiðabólsstað, hafði séð þar mannabyggð vestan af fjör- unum, en vissi ekki, hvað bær sá hét né hver bjó þar. Hann varð mjög feginn að hitta Hrollaug. Hrollaugur heilsaði honum a hirðmannavísu, segir Þórður illugi í dag- bók sinni. Þá voru hólarnir skógi vaxnir og prýddir reyrgresi. Þeir settust upp í eystra hólinn og sátu þar dálitla stund og sögðu hvor öðrum fréttir og horfðu út á sjóinn. Svo fóru þeir vestur að strandinu að sækja fólkið. Þar sá Özur Gró dóttur Þórðar í fyrsta sinn. Varningi, sem náðist úr skipinu, hafði verið staflað fyrir ofan fjörukambinn og segl breitt yfir og steinar hengdir í segl- skautin. Svo var haldið heim að Breiða- bólsstað með kúna, hestana, kindurnar og hundinn. Þau voru öll svo mögur og illa til reika, að þau gátu varla gengið. Özur lét Gró ríða hesti sínum. Hún var lagleg stúlka og greind. En kona Þórðar var sett upp á Hrollaugshest. Hún var lasburða eftir sjó- ferðina og volkið í brimgarðinum. Allt hitt fólkið gekk. Daginn eftir fór Þórður við þriðja mann til að bjarga skipsviðunum. Þá var komin vestan alda og skipið að lið- ast í sundur í brimgarðinum. Þeim tókst að bjarga nokkru, en hitt rak austur í haf. Þórður dvaldist nokkurn tíma með Hrol- laugi. Özur og Gró gengu stundum saman inn í Kvennaskála á kvöldin. Einn dag í fögru veðri gyrti Hrollaugur sig sverðinu Haraldsnaut og setti upp fimmmarka hring- inn og reið með Þórð út á Breiðármörk. Jök- ulsá var í kvið. Hann sýndi Þórði landið og gaf honum land allt frá Jökulsá vestur að Kvíá. Það var myndarleg spilda, á fjórða tíma gang frá austri til vesturs og ekki minna en fimm tíma gangur utan frá sjó upp að Breiðármerkurjökli. Þórður þakkaði honum mikið fyrir. En Hrollaugur var höfð- ingi og svaraði: „Það er ekkert að þakka." Þórður gerði sér bæ undir Fjalli fyrir vestan Breiðá og Hrollaugur leysti hann út með vænum graðung handa kúnni og gaf honum þrjátíu ær með lömbum. Hinn 19.

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.