Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Page 36

Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Page 36
180 NÝTT HELGAFELL þjóðina, eins og seðlaveltan og aukning út- lánanna sýna. Að öllu gamm slepptu hygg óg þó, að bankarnir geti enn margt gert til þess að auðvelda hlutverk peninganna sem gjald- nuðils meira en enn er orðið. rókka-við- skipti standa enn á of lágu stigi í íslenzku þjóðfólagi og þar bíður okkar viðfangsefni. Bæði opinberar stofnanir og aðrir aðiljar eyða óhemju fó í innheimtu á mánaðarleg- um gjöldum og öðrum greiðslum, þar sem gjalddagi og uppbæð er vitað með nokk- uð löngum fyrirvara. Það ætti ekki að vera óvinnandi vegur fyrir bankana að annast ýmsar af þessum innheimtum og greiðsl- um, öllum aðiljum til hagræðis og sparnað- ar. Ég vil þó taka það fram, að hugmyndir mínar í þessu efni eru ekki svo stórfelldar, að mór detti í hug að unnt só að afmá úr þjóðfólaginu hina þolinmóðustu og marg- hrelldustu allra stótta, rukkarana, enda er vítt athafnasvið framundan, áður en að því kemur. Nú er vert að snúa sór að hinu næsta hlutverki peninganna, því að hjálpa mönn- um til þess að geyma leifar dagsins í dag til morguns, það sem þeir spara í ár til síð- ari ára. Þegar við ræðum um þetta hlut- verk, höfum við tilhneigingu til þess að tala aðeins um sparnaðinn, geymslu verð- mætanna, en raunar eru á þessu máli tvær hliðar, eins og svo mörgum öðrum. Þeir, sem hlut eiga að máh, væru því raunar fegnastir, að við gleymdum lunni hliðinni, því að hún er sú, að varðveita skuldbind- íngar þeirra, sem einhverntíma færðust meira í fang en þeir voru borgunarmenn fyrir og því urðu að taka fó að láni. Þótt þessi síðan tilhugsun hljóti að vera öllum leið, og það só óþægilegt að hafa pen- mgakröfuna hangandi yfir sér eins og. sverð Damoklesar, er þó aldrei skortur á mönn- um, sem fúsir eru að taka að sór hlutverk skuldunautanns. Vandinn er lengstum sá, að fá menn til þess að spara, fá menn fyrst til þess að safna í handraðann, sannfæra þá síðan um það, að það borgi sig að fara í handraðann aftur og leyfa öðrum fram- takssamari, hagsýnni eða a. m. k. bjart- sýnni að fá sparifóð til ávöxtunar, — og loks að sýna þeim fram á, að þeir eigi að leita aukinnar tryggingar hjá milliliðnum mikla, bankanum, þegar þeir vilja ávaxta fó sitt. Til þess að unnt só að fá menn td þess að spara, þarf að uppfylla ýms skdyrði. Frumskdyrðið er vitanlega það, að menn hafi í sig og á og vel það. Hvenær því marki er náð, hlýtur að fara eftir mati hvers ein- staklings. Það er þýðingarlaust að ætla sór að setja mönnum reglur um það, en forn- fræga aðferð má alltaf nota, freistinguna. Það má freista manna til þess að spara, með því að heita þeim vöxtum af spari- fónu. Sjálfboðalið skuldunautanna er nægi- lega fjölmennt og ásækið til þess, að óhætt er að lofa bæði vöxtum og vaxtavöxtum á þeirra kostnað. En loforðið um vexti og vaxtavexti verð- ur lótt á metunum, ef ekki tekst að skapa og varðveita traust á verðgddi penmganna. Hvernig er unnt að ætlast td þess, að nokk- ur maður neiti sór um ísskáp eða aðgöngu- miða að blaðamannakabarettinum í dag, ef hann hefir ástæðu td þess að ætla, að eftir tvö eða þrjú ár geti hann rótt keypt hræri- vól eða konnzt í barnasæti á bíó fyrir pen- ingana, sem hann lagði upp? Það er kunnara en frá þurfi að segja, að á undanförnum árum hafa pemngarnir

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.