Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Síða 46

Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Síða 46
190 NÝTT HELGAFELL um leið og því er treyst í anda Meistarans, að Guð og sannleikurinn séu eitt. Moldarbaminu, manninum, er það mjög til hróss, að hann skuli skynja hugsjón sannleikans og geta, eins og dæmin sanna, bundizt henni í svo algerri hollustu, að hún sé honum meira virði en matur og drykkur og lífið sjálft. A hennar leiðum hefur hann líka fundið einn sinn mesta kjörgrip — vís- indahugtakið, lykil hinnar sönnuðu þekk- ingar. Þessi frelsandi binding mannshugans við hina æðstu hugsjón er örðug og umsetin ýmsum hættum. Menn geta til dæmis orðið svo vandlátir vegna sannleikans, að þeir þori enga skoðun að hafa á höfuðrökum lífs og heims — og þarf það ekki endilega að eiga neitt skylt við þá útbreiddu hag- sýni, að láta skoðanaleysið létta af sér allri ábyrgð á eigin lífi og annarra. Því að sá, sem veit ekki neitt, ber ekki ábyrgð á neinu, og er rangt að vanmeta slíkt hag- ræði. Hinsvegar em skoðanir mannlífínu eins nauðsynlegar og lauf og blaðgræna skóginum. Og aldrei heyrðist um það tré, sem aftók að laufgast að vori, af ótta við að laufin kynnu að visna að hausti. En skoðanir er skylt að vanda. Til þess veitir menningin — vfsindaleg og trúarleg í senn — ærna hjálp þeim, sem þiggja vilja. Páll frá Tarsus varar við „ánauðaroki" úreltra kenninga og kvaða. Menn hafa rifjað þetta upp í seinni tíð. Er það nú- orðið engan veginn sjaldgæft, að menn krefjist skoðana- og samvizkufrelsis fyrir sjálfa sig. Hitt er þó tilkomumeiri mynd and- legs frelsis, að láta sér annt um annarra manna rétt í þeim efnum. Þykir mér í því sambandi vænt um að fá tækifæri til að segja frá minnisstæðu atviki. Ég var búinn að vera einn eða tvo daga hjá söfnuði mínum í Vatnabyggð, Kanada, um jólaleytið 1921, þegar sóknamefndin heimsótti mig til að leggja mér til lífsregl- urnar. Þetta voru bændur — lítt skólagengn- ir flestir, en greindir menn og viðræðugóðir. Þá var það, að einn þeirra, sem lítið hafði lagt til málanna, nema þá helzt spaugs- yrði, gerðist alvarlegur og einbeittur á svip og sagði: „Þá er bara eitt eftir, séra Frið- rik, — að tala við þig um kenninguna". Ósjálfrátt bjóst ég til varnar með sjálfum mér. Um þetta var ég nokkurnveginn staðráðinn í að láta ekki segja mér fyrir verkum. Ég beið því þögull átekta. „Um kenninguna gerum við til þín eina kröfu", hélt Þórður Axdal áfram, „og hún er sú, að þú predikir eftir þinni eigin skoðun og beztu vitund, hvort sem okkur líkar betur eða ver". Ég varð undrandi yfir því stórlæti vegna sannleiks og einlægni, sem fólst í þessari „kröfu". Oft hefi ég dáðst að andlegu frelsis- viðhorfi þessa unga, „ómenntaða" bónda, þegar mér hefir orðið starsýnt á þá kenn- ingarfjötra, sem hámenntaðir menn leggja á sjálfa sig og aðra. Það er segin saga, að mennirnir hrasa margvíslega. Það er svo margt innra og ytra, sem villir þeim sýn. Þeim mun eftir- tektarverðara er það, að þeir geta átt það skyn og þá skapsmuni, að sleppa aldrei umráðaréttinum yfir sínum innra manni, handsala aldrei frá sér skoðanir sínar, veita aldrei öðrum mönnum lénsvald yfir samvizku sinni. Meðan svo er, er það ekk- ert smáræði, sem aðgreinir þá frá dýrum, þótt margt sé annars líkt með skyldum. En tilkomumest er andlegt frelsi, og til- gangi sínum næst, þegar það — jafnframt vandfýsinni um sannleikann —- ber lauf og blaðgrænu örvandi skoðana, sem kalla menn til ábyrgðar og þjónustu, og lyfta þeim yfir löst og þraut og hvers konar ótta, jafnvel „óttann við þá, sem líkamann deyða". II. Ytra andlegt frelsi á að vera tryggt með landslögum réttarríkis. En réttarríki og lýð- ræðisríki er nokkurn veginn eitt og hið sama, a. m. k. sögulega séð. Um það getur enginn ágreiningur verið, að lýðræðið er

x

Nýtt Helgafell

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.