Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Page 48

Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Page 48
192 NÝTT HELGAFELL gagn að mjólkinni. Óhreint vatn, sem blandast hreinu vatni, er óhreint vatn eftir sem áður, en hreint vatn, sem blandast óhreinu vatni, hættir að vera til. Þegar illgresið er búið að fá atkvæðisrétt á þingi kornstanganna, þá þarf ekki að spyrja um framtíð akursins. En ef tvískinn- ungurinn í þessum myndum og mörgum öðrum er hættulegur lýðræði og andlegu frelsi, — og það er efalaust mál, að svo er — þá ættu ráðamenn þjóðfélagsins ekki að fresta því að snúast gegn honum með sam- þykktum og landslögum, og framfylgd þeirra. Hitt er verra viðureignar, þegar skoðana- og tjáningarfrelsið — fjöregg lýðræðisins — er opinberlega og feimulaust, af háum sem lágum, gera að áróðurstæki, þannig að ekki er hirt um satt né logið, heldur tilgangurinn látinn helga meðalið. Eða þegar prentfrels- ið er haft til að fullnægja atvinnuþörf ein- stakra manna með því að fylla bókamark- aðinn með óþöríu eða beint óhrjálegu les- efni. Þetta er ekki hægt að banna, segir Al- þingi, — enda bókmenntimar smám sam- an komnar á það stig, að það bögglast fyrir mönnum, þótt glöggir séu, að ákveða hvað sé sorprit og hvað ekki. Lýður, sem með slíkum misbeitingum svíkst aftan að sínu eigin frelsi, er á hraðri ferð til austræns lýðræðis og til þeirrar óvita- verndar, sem kenningavaldboð og ritskoðun kaþólskra í eðli sínu er. — Ýmsir, sem koma auga á óheilindin í þjóð- lífinu, en sjá ekki ástæðu til aðgerða, tala sem svo: Ekkert nema smitun skapar ónæmi. Menn verða að hafa hið illa hjá sér, til að geta lært að varast það. Menn verða að „læra" að drekka og reykja, horfa, heyra og lesa — skrúfa frá og fyrir. Hættan brynj- ar meðfædd innri öfl til vamar, og svo kem- ur ónæmið. Þetta er engan veginn tóm staðleysa. En hvað kostar slík tilraunaiðja einstakling og heild? Pestir eru ekki lamb að leika við. Hvers vegna ræður heilsufræðin ekki til að leita á þennan hátt ónæmis gegn berklum og bólusótt? Ef ekki má hreinsa til á heimilinu með þeim aðferðum, sem beinast liggja við — boði og banni — af því að lýðfrjálst fólk lætur ekki bjóða sér slíkt (réttara sagt, af því að svo margir græða fé á sóðaskapnum) —- og ef ekki á bara að láta skeika að sköpuðu í þeirra trú, að eins og menning fæðist og blómgast, hljóti hún að úrkynjast og lognast út af, — og, ef menn setja vopn sín á ónæmi, — þá skal að lokum bent á þá ónæmisaðgerð, sem er tiltölulega hættu- laus, en stórvirk, þegar vel tekst, þ. e. vemd- un og efling hins innra andlega frelsis. Þetta er örðug siðbótaaðferð. Jarðvegurinn fyrir hana er helzti ófrjór í þjóðlífi, þar sem menn geta sagt ósatt, án þess að mannorð þeirra sé í hættu. Hún verður ekki „tryggð” með landslögum beinlínis, eins og hið ytra frelsi, heldur með ábyrgðartilfinningu og manngildi þeirra, sem fæða og uppala nýja kynslóð. Innra andlegt frelsi er lífrænt og verðandi, eins og allur vor innri maður. Það verður ekki lagt til hliðar eins og dýrkeyptur, dauð- ur hlutur, gull eða gimsteinn. Það þarf sinn ræktunarreit. Njóti það næringar, umhirðu og friðunar, vex það, en visnar ella. Trygg- ing þess er, sem sagt, uppeldi. Næring þess er vegleg lífsskoðun, þar sem bjart- sýni og alvara haldast í hendur — innrætt með þeim aðferðum, sem hyggindi kærleik- ans ein kunna. Hvar á slíkt uppeldi sér hvöt og stoð? Hvergi nema í trúarbrögðunum. I því efni er kristindómurinn óefað í fremstu röð. Hann geymir hið vermandi og örvandi dæmi Krists, svo og rök hans — einu rökin, sem til eru — fyrir því, að hinn hverfuli jarðneski maður eigi að gæta „bróður" síns. Og — með því að kirkjan er umboðs- maður og boðberi kristindómsins, og með því, ennfremur, að kirkja þjóðar vorrar ber í einstökum mæli virðingu fyrir almennri þekkingu og skoðanafrelsi hvers manns —

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.