Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Page 52
Tvo
bréí frá
Maffhíasi
Jochumssyni
til
H. C. Andersen
INNGANGSORÐ
Einu sinni fyrir mörgum árum var ég a<j lesa dag-
bcekur H. C. Andersens. Er komið var að deginum
9. febrúar 1874 rakst ég á svofellda klausu: „Besög
af Pastor Jochumson, Digteren fra Island; han fik
flere Autographs, og eftirlod til mig et særdeles varm-
fuldt, digteriskt Brev, hvor han smukt og christe-
ligt udtaler sig om min Betydning som Digter."
Er eg las petta flaug mér í hug, aS fróðlegt væri aS
vita hvaS Matthias hefSi þarna sagt og hvort þetta
bréf mundi enn vera til, en ég taldi þaS ekki lik-
legt og leiS þetta svo úr minni mér.
En nokkrum árum seinna var ég á ferS í Kaup-
mannahöfn og rifjaSist þetta þá ttpp fyrir mér. Ég
lagði þvi leið mina á konunglega bókasafnið og
spurðist fyrir um, hvort hugsanlegt væri, að þetta
bréf Matthiasar væri þar að finna. BókavörSur fór
þá með mér inn i skjaladeild og fanti að vörmu spori
bréf það, er ég spurði um, og annað bréf til frá
Matthiasi til Andersens frá sama ári, dags. 27. nóv.
iSjcf. Mér þótti þessi bréf harla merkileg og með
því að mér var ekki kunnugt um að þau væri áður
þekkt hér á landi, fékk ég bréfin IjósmynduS á
konunglega bókasafninu og hafði þau heim með mér.
Vænti ég að lesendum Helgafells og unnendum