Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Qupperneq 62

Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Qupperneq 62
206 NÝTT HEL.GAFELL margt um eðli þýðinga og takmörk þau, sem þýðendum eru sett, en jafnframt um ótrúlega leikni, hugkvæmni og skapandi gáfu þýðandans. Að lokum eitt dæmi um vanda af því tagi, sem ætti að kenna manni að virða jafnvel það, sem miður fer, í góðri þýðingu. 1 síð- asta erindi „Sweeney á meðal næturgala" segir Eliot um næturgalana And let their liquid siftings fall To stain the stiff dishonored shroud, en Helgi þýðir og létu drjúpa úr lofti flekk á líksins klæði miður hrein. Hér er málið óviðráðanlegt (svo maður nefni nú ekki að bæði næturgalinn og Aga- memnon eru hvítir hrafnar í íslenzkum skáldskap.) Efnið er rétt þýtt, en um leið er kvæðið túlkað of ótvírætt, því í frum- kvæðinu er einmitt tvíræðni í orðinu liquid, sem í þúsundum enskra kvæða er notað til að lýsa fuglasöng. I frumkvæðinu kemur þannig fram á tvennan, og sláandi ólík- an hátt, andstaðan milli þess heims, er Sweeney lifir og deyr í, og hins, er hefir næturgalann fyrir sitt tákn. I þýðingunni er það, sem var fjölþætt, einfaldað, það, sem var óráðið, ákvarðað. Hvernig annað hefði mátt vera fæ ég ekki séð. Því það er skemmst að segja af þessum þýðingum Helga, að það ógerlega tekst honum ekki frekar en öðrum, en það, sem hægt er, gerir hann af afburða snilld. Iþöku, des. 1956, Jóhann Hannesson. Ásgrímur og Tómas Ásgrímur Jónsson: Minningar og myndir. Tómas Guðmundsson færði í letur. Almenna bókafélagið 1956. Tveir listamenn, barnfæddir á Suðurlág- lendinu, hafa sett saman þessa bók. — Hún segir frá því meðal annars, hvernig var að vakna til lífs og þroska í mesta víðsýni Is- lands til hafs, byggða og fjalla. Annað veif- ið verður lýsingin að óði í óbundnum stíl, um fegurð og dulardóma Islands, í vaknandi augum, sem sáu meir og betur en almennt gerist. Efnið er frá Ásgrími, reynsla hans og hugsun. En nú skyldi þess freista, að mála með orðum í stað lita. Hann gerði Tómas Guðmundsson að sínum trúnaðar- manni. Þegar bókin var komin saman hafa þeir víst mátt segja hvor við annan: Mitt er þitt — og þitt er mitt. Lesandinn finnur, að hann er allan tímann með þeim báðum. 1 þessum hófsömu, næsta •fáorðu minning- um er ef til vill meir, en í flestum öðrum bókum, um hvemig var að vera barn í sveit, áður en allar framfarirnar komu. Ásgrímur var að vísu óvenjulegur drengur, að feg- urðarskyni og ímyndunarafli; snemmvakinn, djúphugull og alvarlegur. Allt um það hafa önnur böm, vitandi og óafvitandi, reynt eitthvað svipað og Ásgrímur, þó að þau aldrei kæmu orðum, hvað þá lium, að því, sem var þeirra mikla og furðulega heims- mynd, — land Heklu, þar sem Ásgrímur man það einna fyrst, að loft er „rist rauð- um feiknstöfum", en jörðin bifast undir fót- um hans; hið stórleita græna og bláa, eða hvíta land, öll þess myndbreytni og litauðgi, og mörgu ósviplíku bæjarþil, og kyndugu karlar og kerlingar. Þó var heimurinn sízt allur þar sem hann var séður, með bemm augum daglega lífsins. Upp um öræfi bjó hrikalegt kyn útilegumanna, svipaðast bergrisum, og sást einum og einum bregða fyrir, þegar fór að skyggja. En hinn stóri heimur huldufólks, í hólum og klettum, var þó bæði langtum fjölmennari og stómm yndislegri, mesta ágætisfólk, að því er Ás- grímur hefur fyrir satt, „trútt í skapi, vinfast og þakklátt"; og „samdi sig um klæðnað og hýbýlaprýði að þeim fegurðarkröfum, sem almenningur átti annars ekki kost á að fullnægja, og hefur það ósjaldan verið helzta hefðarfólkið í byggðarlaginu." Eitt af fyrstu listaverkum Ásgríms var líkan, gert úr leir, grjóti og mosa, af klettum þar sem margt bjó af góðu og mjög guð- hræddu huldufólki; þaðan mátti oft heyra
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.