Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Síða 63

Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Síða 63
BÓKMENNTIR 207 tíðir sungnar, meðctn hljóðara var í sveitum. En nú mun huldufólkið „horfið af þessum slóðum, og allt snauðara á eftir". Hvað kemur til að barn fer að gera mynd- ir, öllum stundum, á fátækum bóndabæ þar sem ekki eru myndir til, né á slíka hluti minnzt? Ásgrímur fæddist til að verða mál- ari. Eitt hið fyrsta sem hann man er að hann nær, ólæs, í harla merkilegt sendibréf, með heiðbláu letri — hann er strax önnum kaf- inn við að bera það saman við litinn á Eyjlafjallajökli. Skýbólstrar sem snöggvast urðu til fyrir meir en sjötíu árum, hyllingar og kveldhimnar bernskunnar læstu sig svo djúpt inn í vitund Ásgríms, að hann getur enn lýst þeim, eins og hann hefði séð þessar sýnir í gær. Og í öllu þessu bjó eitthvað dularfullt og seiðandi, sem varð að taka afstöðu til, og ná á vald sitt. Hann sá „fagra skýjabliku með gullskærum lit, en úr skýinu bárust greinilegir tónar" — hvernig gat drengnum orðið rótt eftir slíka reynslu? Sýn- irnar skilja við hann „fálátan og einmana" — þangað til einn minnisverðan dag, að listamannsþörfin fær sína fyrstu útrás, svo um munar. Taublámi og krít hafa borizt úr kaupstaðnum, og nú er ekki í minna ráðizt en að mála sjálfa Heklu. Og svo mikil þakk- lát gleði er enn bundin við þessa minn- ingu, að Ásgrímur segir að sér sé „nær að halda að þetta hafi verið snotur mynd" — og hvernig geta þá aðrir leyft sér að efast? Minningar merkra og vandaðra manna eru ómetanlegar bókmenntir. Sannar sögur taka stundum öllum öðrum sögum fram, einmitt vegna þess að þær eru sannar. Skáldsögum okkar tíma hættir við að verða einhliða og skekkt mynd af lífi og menningu, háðar erlendum og innlendum skoðana- tízkum. Engin íslenzk skáldsögulýsing af kaupmanni og útgerðarmanni þolir neinn samanburð við minningar Thors Jensens, hvorki sem aldarfarslýsing né mannlýsing. Á sama hátt verður frásögn Ásgríms af æsku sinni og uppeldi merkileg heimild, trúverðug og fróðleg, sem ef til vill gefur réttari vitneskju en margt í frægasta skáld- skap. Yfirleitt staðfesta minningar hans fremur eldri hugmyndir um íslenzka byggða- menningu, en þær sem síðar bar mest á. Okkur þykir vænt um að hann var hvorki skammaður né barinn þegar hann byrjaði að gera myndir, og dreyma. Föndur hans naut samúðar, og hann var innan við ferm- ingu þegar faðir hans segir við hann, upp úr þurru, að hann setti að verða málari. Nærri má geta hvort þetta var • það sem kom sér bezt; faðirinn var eina fyrirvinnan, börnin sjö; Ásgrímur elztur. En fræðum og kvæðum var unnað á þessu heimili, og móðirin söng fyrir bömin, kenndi þeim fjöldann allan af lögum. Aflað var bóka til kvöldlesturs, og þóttu „þeir aðdrættir ekki síður nauðsynlegir en hverjir aðrir". Lífs- baráttan var hörð, baðstofan ekki ríkmann- leg, en rúmaði þó „furðumikið af friðsælu öryggi" þegar allir voru setztir að vinnu sinni eða bóklestri á kvöldin. Hér er líka lýst kaupmannsfólki í smá- bæjum, á Eyrarbakka og Bíldudal, og mjög á annan veg en tíðkast í yngri bókmenntum stéttvísum. Ekkert hátízkuskáld myndi bjóða upp á lýsingu eins og þá, sem Ásgrímur gefur af kaupmannsheimilinu á Eyrarbakka: „Naumast kom sá dagur að ekki væri þar leikið á hljóðfæri og sungið, enda heimilið opið öllu listfengu og söngelsku fólki" — frá því breiddist félagslyndi og menning, þrjú söngfélög störfuðu á Bakkanum, leik- list var iðkuð og stórkostlegur álfadans á Þrettándanum. Auk þess virðist „Húsið" hafa verið helzta miðstöð landsins í veður- fars- og náttúrurannsóknum. Eigandi verzl- unarinnar bauð.Johan Svendsen til íslands. Og þýddi á dönsku Pilt og stúlku. Það fellur náttúrlega ekki í allra smekk, að verið sé að halda á lofti því sem kaup- mannsfólki er fremur til sóma en hitt. Mörg- um mun finnast að oft megi satt kyrrt liggja. Og að yfirleitt skorti á, að bók Ásgríms sé skrifuð í þeim marx-leninistíska anda, sem gerir bók að einni af perlum vorra tíma; að stéttvísri bók. Skal ekki um það þráttað að sinni.

x

Nýtt Helgafell

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.