Félagsbréf - 01.01.1957, Qupperneq 13
Freistaði að gera
menningarleg afrek liðinna kynslóða og
alda að leiðarljósi í sókn fram til
nýs blómaskeiðs í islenzkri þjóðmenningu.
2v.
porLltJéi
anneáóon:
Sigurður Nordal
sjötugur
Erindi flutt á afmælishátíð dr. Sigurðar Nordals í
þjóðleikhúsinu 14. sept. 1956.
TTERRA FORSETI ISLANDS, virðulega forsetafrú. Kæri heiðurs-
gestur, góðir áheyrendur.
Ég býð ykkur öll lijartanlega velkomin á samkomu þessa, sem
haldin er að frumkvæði Almenna bókafélagsins til heiðurs dr. Sig-
urði Nordal sendiráðlierra, í tilefni af sjötugsafmæli lians. Höfuð-
atriði dagskrárinnar er flutningur efnis úr ritverkum dr. Sigurðar.
Þetta er að forminu til bókmenntakynning, þótt jafnframt sé um
afmælisminningu að ræða. Það hefur komið í minn lilut að minnast
afmælisins, minnast mannsins, sem samkoman er helguð, að svo miklu
leyti, sem slíkt er unnt að gera á þeim fáu mínútum, sem ég hef
hér til umráða. Hér hefði efalaust átt vel við að flytja ýtarlegt erindi
tun ritliöfundinn, skáldið og fræðimanninn Sigurð Nordal. Samt varð
að ráði að láta verkin sjálf tala, ef svo mætti til orðs taka, þótt auð-
vitað verði um tóm brot að ræða, stutta þætti. Hitt verður að bíða
annars tækifæris.
Líkast til eigum við öll, sem þó höfum til þess aldur, býsna örð-