Félagsbréf - 01.01.1957, Page 32
30
FÉLAGSBRÉF
— Hvað er móðurlíf.
— Hvað ætli ég viti um það, almúgamaðurinn.
— Þú ert enginn almúgamaður. Þú ert vetrarmaðurinn lians pabba.
— Jæja, vetrarmaðurinn þá.
Drengurinn hélt áfram að liorfa út um gluggann og mundi grönn
bök foreldra sinna frá morgninum, imz þau liöfðu horfið uppi á
hólnum fyrir neðan Stórabæ og svmnan við kirkjugarðinn og hugs-
aði um mjóa fætur móður sinnar tiplandi í snjónum. Lengra í burtu
sá hann hvít fjöllin og hnjúkinn í mikilli fjarlægð með gljáan heiðar-
hrygginn uppi á miðjum síðum. Undir lieiðinni voru þeir að jarða
frænda hans. Hann mundi ekki koma oftar til að borða skyr og
hangikjöt og sjúga mjólkina úr rauðu skegginu eða leggja hlýja og
mjúka hönd á koll hans meðan lykt einkennilegra málma lagði frá
henni er var gjörólík hrossalyktinni af liöndum annarra manna
sem komu.
Reykjavík í febrúar.
Sú sag-a var nýlega sögð um enskan kennara, að hann héldi því fram,
að Elísabet drottning hefði samið leikrit Shakespeares. Ágætur ráðherra
vefengdi hann og spurði: „Álítið þér þá í raun og veru að kona hafi
getað skrifað slík listaverk?"
„Þér misskiljið mig algerlega", svaraði kennarinn. „Það er sannfæring
mín, að Elísabet drottning hafi verið karlmaður".