Félagsbréf - 01.01.1957, Side 40
38
FÉLAGSBRÉF
skoðunar. í þessu efni þurfa bandarísk
ljóðskáld ekki að bera kinnroða fyrir
sinn hlut.
*
SKÁLDSAGNAGERÐ
Það er atbyglisvert, en engan veginn
undarlcgt, að hið eiginlcga blómaskeið
bandarískra bókinennta hófst eftir fyrri
heimsstyrjöld. Styrjöldin rauf einangrun
Ameríku, opnaði nýjan sjónhring og
áður óþekkta möguleika. Bandarískir
höfundar flykktust til Evrópu og kynntu
sér beztu bókmenntir þar. Þessi nýju
sainbönd voru þroskandi og vekjandi,
eins og sjá má af þeim stóra liópi góðra
bandarískra liöfunda, sem fram kom
upp úr styrjöldinni. Nægir þar að nefna
Ernest Hemingway, William Faulkner,
John Dos Passos, F. Scott Fitzgerald,
John Steinbeck, Robert Penn Warren,
Willa Cather, James T. Farrell, Thomas
Wolje, Thornton Wilder, Erskine Cald-
well, Shenvood Anderson og Henry
MUler. Hér er um að ræða svo furðu-
lega bókmenntalega vakningu, að þess
munu fá dæini.
Bilið milli Henry James og Stephen
Crane annars vegar og þessara böfunda
liins vegar var brúað af nokkrum höf-
undurn, sem markað liafa spor í banda-
rískar bókmenntir: Edith Wharton,
Wheodore Dreiser, Sinclair Lewis og
Gertrude Stein. Karlmennirnir í þess-
um hópi, Dreiser og Lewis, áttu það
samnicrkt, að þeir voru natúralistar og
róttækir ádeilumenn. Dreiser var lang-
dreginn og klunnalegur liöfundur (kunni
aldrei að skrifa), en bækur Iians búa
yfir miklum örlagaþunga. Þær eru mjög
misjafnar að gæðum, beztar eru „Sister
Carrie", „An American Tragedy“ og
„The Bulwark“. Lewis var miklu betri
penni, og fyrstu bækur lians, t. d. „Babb-
itt“, „Main Street“ og „Dr. Arrowsmith",
eru sígildar. Hann fékk Nóbelsverðlaun-
in fyrstur bandarískra rithöfunda (1930).
Upp frá því fór bókum bans sihrak-
andi.
Edith Wharton var af auðugu há-
stéttarfólki koinin og lýsti í fyrstu bók-
uni sínum af lilífðarlausri hreinskilni
tilgangsleysinu og auðnuleysinu í lífi
æðri stéttanna.
Hún hafði lært
mikið af James.
Bezta bók lienn-
ar er „House of
Mirth“, sem í
ýmsu tilliti er
einstæð í banda-
rískum bók-
menntum. Síð-
ustu 15 ár ævi
sinnar skrifaði
þessi mikilhæfa
skáldkona mest-
megnis hégómaþvaður fyrir tizkublöð.
Gertrude Stein er einn af brautryðjend-
unum í bandarískri skáldsagnagerð. Hún
var fyrsti höfundurinn, sem gerði alvar-
legar tilraunir með ný form. Hún hafði í
æsku lagt stund á sálfræði og rannsakaði
þá einkum notkun og merkingu orða og
hrynjandi í daglegu tali. Þessar rann-
sóknirfærði hún sér í nyt í skáldverkuin
sínum. Gertrude Stein liefur liaft gertæk
áhrif á marga evrópska og bandaríska
höfunda, þeirra á meðal James Joyce,
Ilemingway og Sherwood Andcrson,
Beztu bækur liennar eru „Tliree Lives“
og „The Making of Americans“. Hún
var lengst af „útlagi“ í París.
Rithöfundarnir, sem fram komu eftir
fyrri heimsstyrjöld, voru jafnsundur-
Gertrude Stein.