Félagsbréf - 01.01.1957, Qupperneq 42
40
FÉLAGSBRÉF
kunni sér hvergi hóf. Hann reyndi að
troða öllu í bækur sínar, gerði lítinn
greinarmun á
aðalatriðum og
aukaatriðum, og
árangurinn varð
algert fonnleysi.
Bezta bók hans
er líklcga „Of
Time and the
River“.
Sá maður, sem
sjaldan er nefnd-
ur meðal hinna
stóru í banda-
rískum bók-
menntum, en á þar heima, er Henry
Miller. Hann var um árabil „útlagi“ í
París og skrifaði þar nokkrar bækur,
sem þóttu svo bersöglar, að þær voru
bannaðar í Bandaríkjunum. Frægust
þeirra er „Tropic of Cancer". Miller
er efalaust einn einarðasti og hciðar-
legasti rithöfundur þessarar aldar. Hann
dregur ekkert undan í lýsingum sínum
á mannlegu lífi,
löstum jafnt og
kostum. Hafi
nokkrum höf-
undi tekizt að
þjappa sjálfu líf-
inu í öllum sín-
um óhrjálegu
myndum inn á
milli bókar-
spjalda, má segja,
að Miller hafi
tekizt það. —
Nokkrar af bók-
um hans hafa nú verið gefnar út í
Bandaríkjunum, og síðustu 12 árin hef-
ur hann lifað góðu lífi í Kaliforníu.
Nathaniel Wcst var athyglisverður höf-
R. P. Warren.
William Faulkner.
undur, sem dó ungur. Hann skrifaði
tvær stuttar skáldsögur, sem eru mjög
sérkennilegar fyrir impressionisma sinn
og hnitmiðaðan symbólisma. Þær eru
„The Day of the Locust“ og „Miss
Lonelyhearts“.
Á síðasta áratugi hafa margir efni-
legir rithöfundar komið fram, en að
svo stöddu verður engu spáð um end-
anlcgan sess þeirra í bandarískum bók-
menntum. Frá Suðurríkjunum koma
nokkrir mjög snjallir og sérkennilegir
höfundar, sem stund-
um eru sakaðir um
úrskynjun. Hér er
um að ræða við-
kvæma og innhverfa
höfunda, sem skrifa
um blæbrigði sálar-
lífsins, en láta sig
hinn ytri veruleik
minna máli skipta.
Meðal þeirra má
nefna Truman Cap- E. Hemingway.
ote, Carson McCull-
ers, William Styron og William Goyen.
Þessir höfundar eru undir áhrifum frá
Faulkner, en hafa hvorki hina stcrku
félagskcnnd hans né næma sögulega til-
finningu.
Norman Mailler og James Jones hafa
skrifað berorðar og hrottalegar lýsing-
ar úr síðari heimsstyrjöld og átt miklu
gengi að fagna, sem byggist þó ekki að
öllu leyti á listrænum verðleikum verka
þeirra. Mailler hefur skrifað mikið og
virðist eiga framtíð fyrir sér. Budd
Schulberg, Saul Bellow og J. D. Salinger
hafa cinnig náð mikilli almennings-
hylli, og virðist hún ekki vera óverð-
skulduð. Tveir ungir höfundar, sem
miklar vonir eru við tengdar, eru Louis