Félagsbréf - 01.01.1957, Síða 46

Félagsbréf - 01.01.1957, Síða 46
44 FÉLAGSBRÉF af hinum viðkvæma og varnarlausa ein- staklingi, sem lifir í draumum sínum og er ófær til að kljást við óvæginn og skilningslausan heiminn umhverfis sig. Williams er snillingur í því að skapa minnisstæða einstaklinga, þótt yrkisefn- in séu mjög svipuð, og frábær leikhús- maður. Leikritin, sem bczt túlka þetta viðfangsefni, eru „The Glass Menagerie“. „A Streetcar Nained Desire“ og „Sum- mer and Smoke“. Seinni leikrit hans eru vandleiknari og kröfuharðari en ofannefnd verk. „The Rose Tattoo“ er athyglisverð sálgrein- ing á ástarhvötum og trúarþeli frum- stæðrar konu. „Camino Real“ er kannski merkilcgasta og torskildasta lcikrit hans. Symbólisminn í því er markviss: það leiðir okkur fyrir sjónir úrkynjun og öfughneigðir nútímalífs, þar sem öll hin göinlu og sígildu verðmæti hafa týnt mcrkingu sinni. Því svipar mjög til „Tlie Waste Land“ eftir Eliot. Síð- asta verk lians, „Cat on a Hot Tin Roof“ er jákvæðara en fyrri leikrit hans, en það fjallar um sama viðfangsefnið, ein- angrun hins viðkvæma einstaklings og skort lians á frjósemi, líkamlegri og and- legri. Af öðrum bandarískum lcikskáldum áranna eftir stríð ber William Inge einna hæst, en hann skrifar í miklu létt- ari tóni en Miller og Williams. Carson McCullers svipar mjög til Williams, enda er hún frá Suðurríkjunum. Leikrit hennar gerast fyrst og fremst í hinum innra heimi og sneiða hjá þjóðfélags- vandaináluin. Yfir þeim er ljóðræn angurværð. * Hér hefur verið farið fljótt yfir sögu og aðeins stiklað á þvi helzta (og þykir þó kannski sumum alveg nóg um upp- talninguna). En þetta ætti að nægja til að gefa einliverja hugmynd um gró- undunn í bandarískum bókmenntum þessarar aldar. Það virðist mega slá því föstu, að Bandaríkin séu jafnvíg öðrum þjóðuin á Öllum vígstöðvum bókmennt- anna, ef ekki sterkari. Það er ekki ófróðlegt í þessu sambandi að liugleiða hrörnun rússneskra bókmennta síðustu 40—50 árin eftir stórvirki siðustu aldar og varpa fram þeirri spurningu, hvað valdi. Rússland síðustu aldar var sann- arlega engin paradis, og margt má gagn- rýna í bandarísku þjóðlífi samtímans, enda er óánægjan ein af uppsprettum skáldskapar. En bæði Rússland 19. ald- ar og Bandaríki 20. aldar höfðu þá stórkostlegu yfirburði yfir Sovétríkin, að þau gáfu snillingum sínum tækifæri til tjáningar, veittu þeim það andlega frelsi, sem er lífsskilyrði góðra bók- mennta.

x

Félagsbréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.