Sveitarstjórnarmál - 01.10.1975, Qupperneq 24
er vel menntuð á sviði leiklistar og hefur auk
þess brennandi áhuga á starfi sínu. Aðildarfé-
lögurn fjölgar ört, og bandalagið liefur náð á ný
til félaga, sem áður urðu viðskila við heildina.
Lagt var inn á nýjar brautir, og má þar nefna
Leikviku landsbyggðarinruir, þar sem áhugafélög
utan af landi geta kynnt. verk sín í Iðnó að frum-
kvæði Vigdísar Finnbogadóttur, leikhússtjóra.
Bandalagið hefur haldið 6 námskeið í leikrænni
Á næsta ári verða eitt hundrað ár liðin frá því að fyrst var stigið
á fjalirnar í Skagafirði með flutningi sjónleiks, og löngum hefur
leíklist staðið með blóma á Sauðárkróki, þar sem leikfélag hefur
starfað í 87 ár. Myndin er úr leikritinu „Stormurinn“, eftir Sigurð
Róbertsson, sem sýnt var árið 1974 undir leikstjórn Gísla Halldórs-
sonar. Á myndinni eru Helga Hannesdóttir og Kári Jónsson í hlut-
verkum sínum. (Ljósm. Stefán Pedersen, Ijósmyndari á Sauðárkróki).
tjáningu fyrir áhugaleikara og kennara á ýmsum
stöðum, og hafa þau verið mjög vel sótt. Von-
andi á þessi hliðargrein leiklistar eftir að breið-
ast út fyrir tilstilli skólanna og ná sömu vinsæld-
um liér og annars staðar á Norðurlöndum.
Ný verkefni bandalagsins eru fleiri en hér verða
upptalin. Þó mun ég síðar geta sumra þeirra,
sem byggjast á samnorrænni samvinnu áhuga-
leikfélaga.
Norræn
leiklistarsamvinna
Nordisk Amatörteater Rád, NAR, var stofnað
fyrir 7 árum og gerðist Bandalag íslen/kra leik-
230 félaga aðili að því árið 1971.
Norðurlöndin fimrn eiga hvert sinn fulltrúa
í stjórn þess, og á Jónína Kristjánsdóttir sæti í
stjórninni af hálfu bandalagsins. Formaður þess
er nú Arne Aabenhus frá Danmörku.
Bandalagið tekur þátt í nrörgum samnorrænunr
verkefnunr undir forystu NAR.
Á undanförnum árunr hafa verið lraldin sanr-
eiginleg nánrskeið fyrir álrugaleikara á Norður-
löndunr og fengnir til þess hinir færustu leið-
beinendur viðs vegar að úr Evrópu. Þátttakend-
ur frá íslandi hafa oftast verið unr tíu.
NAR lrefur einnig veitt styrki til ferða áhuga-
leikfélaga unr Norðurlöndin. Þannig konr t. d.
danski leikflokkurinn Snredjen á sl. sunrri og
sýndi í Reykjavík og á Húsavík, en í ár fara Hús-
víkingar til Dannrerkur og sýna „Ég vil auðga
nritt land“.
Bandalag íslenzkra leikfélaga er aðili að al-
heimssamtökum áluigaleikfélaga eða Inter-
national Anrateur Tlreater Association, IATA,
sem hefur aðsetur í Haag. Jónas Árnason á sæti
í 12 manna ráði þessa sambands.
IATA lreldur ársþing í Oklalionra í Bandaríkj-
ununr í júní næstkomandi. Jafnfranrt verður
haldin nrikil leiklistarhátíð nreð þátttöku leik-
flokka víðsvegar að úr heiminum. Því nriður lröf-
unr við ekki efni á að senda þangað leikara frá
íslandi.enda ærin verkefni hér heinra, sem bíða
úrlausnar.
Hlutverk
áhugamannafélaga
Dagskrá þessarar ráðstefnu ber þess vott, að
Samband íslenzkra sveitarfélaga gerir sér fulla
grein fyrir nrenningarlegu gildi þeirra starfa,
senr unnin eru af áhugafólki við túlkun tónlist-
ar og leiklistar. Túlkun áhugafólks þarf ekki að
vera lakari en þeirra, senr lrafa af því atvinnu.
Föst laun eru ekki trygging fyrir góðunr flutn-
ingi verks.
Áhugaleikfélög þurfa ekki að vera nrikið frá-
brugðin atvinnuleikhúsum. Þau eru ekki öðru-
vísi í eðli sínu. Höfuðmunurinn er sá, að áhuga-
leikari gefur vinnu sína. En markmiðið er það
sanra.
SVEITARSTJÓRNARMÁL