Sveitarstjórnarmál - 01.10.1975, Blaðsíða 47
greina í 1.—9. bekk skólaárið 1975—1976 .... 247
148 Hafnarrg. fyrir Eskifjarðarkaupstað........ 261
149 Gjaldskrá fyrir hafnarsjóð Eskifjarðarkaupst. 266
152 Samjt. um stjórn bæjarmála Bolungarvíkur-
kaupstaðar ................................. 279
164 Rg. um breyt. á rg. nr. 128 1974, um dagvist-
unarheimili................................. 304
167 Rg. um liolræsi á Bíldudal................. 306
307 Samþ. um sorphreinsun á Akranesi............. 307
309 Samþ. um breyt. á gjaldskrá Hitaveitu Laug-
aráss í Biskupstungum nr. 359 26. nóv. 1974.. 309
212 Augl. um staðfestingu á aðalskipulagi Olafs-
víkur ...................................... 406
213 Rg. um reksturskostnað grunnskóla.......... 407
214 Rg. um greiðslu fæðiskostnaðar skv. 9. gr. 1.
um skólakerfi............................... 418
225 Rg. um húsnæði vinnustaða ................... 432
229 Fjallskilasamþykkt fyrir Norður-Múlasýslu og
Seyðisfjarðarkaupstað ...................... 447
233 Gjaldskrá Hitaveitu Selfoss.................. 460
235 Gjaldskrá fyrir Hitaveitu Reykjahlíðar, Skútu-
staðahreppi ................................ 461
240 Augl. um gjaldskrá fyrir sundstaðina í Rvík. . 465
243 Viðauki við byggingarsamþykkt Laugardals-
hrepps nr. 54 1967, sbr. augl. nr. 23 1967 .... 468
254 Bréf dóms- og kirkjumálaráðuneytisins til
sýslumannsins í Skagafjarðarsýslu um flutning
á þingstað í Seyluhreppi......................... 490
267 Gjaldskrá fyrir hafnarsjóð Akianess......... 520
276 Rg. um landgræðslustörf skólafólks.......... 536
287 Gjaldskrá fyrir heimilisþjónustu á vegum Fé-
lagsmálastofnunar Akureyrar................. 560
288 Rg. um landsdeild Viðlagasjóðs............ 561
290 Rg. um heimilisþjónustu á Akureyri........... 564
296 Gjaldskrá fyrir Rafveitu Grindavíkur........ 572
303 Viðauki við byggingarsamþykkt Vatnsleysu-
strandarhrepps nr. 54 1967 ................. 585
305 Augl. um breyt. á viðauka við byggingarsamþ.
Skorradalshrepps nr. 238 1971............... 588
306 Rg. um holræsi fyrir Selfosshrepp.......... 588
307 Samþ. um afgreiðslutíma verzlana á Akureyri
o. fl....................................... 591
309 Rg. um álagningu gatnagerðargj. við byggðar
götur í Vopnafjarðarkauptúni . .. .:....... 594
311 Augl. um staðfestingu á skipulagsuppdrætti á
fyrirhuguðu liafnar- og iðnaðarsvæði i landi
Klafa í Skilmannalireppi.................... 595
320 Gjaldskrá Hitaveitu Flúða og nágrennis .... 605
321 Rg. um gatnagerðargjöld í Neskaupstað .... 607
324 Rg. um heimilishjálp á Selfossi.............. 611
331 Rg. um lieimilisjjjónustu á Húsavík......... 618
332 Rg. um umferðarifræðslu í skólum........... 619
333 Rg. um framkv. samræmdra prófa í grunn-
skóla ...................................... 621
336 Rg. um holræsagjöld á Stokkseyri............. 624
342 Rg. um gatnagerðargjöld í Suðureyrarhreppi 629
FULLTRÚARÁÐS-
FUNDUR 1975
Aðalfundur fulltrúaráðs Bruna-
bótafélags íslands var haldinn á
Höfn í Hornafirði 29. ágúst sl.
Formaður framkvæmdastjórnar,
Jón G. Sólnes, setti fundinn. Fund-
arstjórar voru kosnir Friðjón Guð-
röðarson, lögreglustjóri, og Krist-
inn V. Jóhannsson, skólastjóri, og
fundarrilarar ICnútur Jónsson,
framkvæmdastjóri, og Kjartan
Magnússon, bóndi.
Formaður flutti skýrslu stjórnar-
innar og skýrði í stórum dráttum
frá hinni miklu aukningu, er orð-
ið hafði á rekstri og umsvifum fé-
lagsins, síðan skipulagsbreyting
var gerð á starfsemi Jress fyrir 20
árum, en fyrsti fulltrúaráðsfundur-
inn var haldinn 21. júní 1955. í
fulltrúaráðinu eiga sæti einn full-
trúi frá hverjum kaupstað og einn
frá hverri sýslu, eða alls 41 fulltrúi.
Forstjóri félagsins, Ásgeir Ólafs-
son, gaf yfirlit yfir rekstur Bruna-
bótafélagsins. Kom m. a. fram, að
iðgjaldstekjur ársins 1974 námu kr.
465,2 milljónum og höfðu aukizt
um 142,9 milljónir frá fyrra ári og
var aukningin 25,15% í bruna-
tryggingum, en 76,17% í öðrum
tryggingargreinum. Heildartjón á
árinu 1974 námu 383,5 milljónum.
Reksturskostnaður nam kr. 45,4
milljónum eða 9,76% af umsetn-
ingu, sem er mjög lág kostnaðar-
prósenta.
Þá kom fram, að félagið endur-
greiddi til félagsdeilda og við-
skiptamanna kr. 18.914.186,00 í
formi arðs og ágóðahluta. Á sl. 20
árum hefur Jtannig verið greiddur
arður og ágóðahluti að fjárhæð
95,1 milljón króna. Eigið fé Bruna-
bótafélagsins nemur 158.654.247,00
króna, og eru Jtá húseignir og lausa-
fé lágt metið. Tryggingasjóðir vegna
iðgjalds og óuppgerðra tjóna nema
samtals kr. 376.197.541,00.
Framkvæmdastjórn félagsins var
endurkosin, en liana skipa:
Jón G. Sólnes, alþm., Akureyri,
formaður, Magnús H. Magnússon,
fyrrv. bæjarstjóri, Vestmannaeyj-
um, varaform., Björgvin Bjarna-
son, bæjarfógeti, Akranesi, ritari.
í varastjórn voru kosnir:
Björgvin Sæmundsson, bæjar-
stjóri, Kópavogi, Knútur Jónsson,
framkvæmdastjóri, Siglufirði, og
Þorvarður K. Þorsteinsson, sýslu-
maður, ísafirði.
Bárður Daníelsson, brunamála-
stjóri, flutti á fundinum fróðlegt
erindi um ástand og horfur í
bruna- og eldvarnamálum.
SVEITAR STJÓRNARMÁL
253