Sveitarstjórnarmál - 01.10.1975, Side 35
FREYR ÓFEIGSSON, varaforseti
bæjarstjórnar Akureyrar:
FJÁRHAGSERFIÐLEIKAR
SVEITARFÉLAGANNA
Ávarp flutt við setningu 28. fundar fulltrúaráðs
sambandsins á Akureyri 29. apríl 1975.
Nú er mikið rætt um fjárhagserfiðleika sveit-
arfélaganna, einkum þeirra stærri. Úr fjárhags-
erfiðleikunum skal ég ekki draga, þeir eru ekkert
sér fyrirbæri sveitarfélaganna um þessar mundir.
Það leiðir af sjálfu sér, að versnandi hagur þjóð-
arinnar almennt hefur áhrif á afkornu þess opin-
bera, ekki hvað sízt sveitarfélaganna. Ef fjárhags-
erfiðleikar sveitarfélaganna stöfuðu aðeins af
tímabundnum versnandi hag þjóðarinnar, þyrft-
urn við engar áhyggjur að hafa.
Þá væri einungis eftir því að bíða, að afkoma
þjóðarinnar batnaði og fresta framkvæmdum
á nteðan, eftir því sem þörf væri á.
Það vandamál, sem sveitarstjórnir liafa áhyggj-
ur af, er af allt öðrum toga spunnið, sem sé Jreim,
hve lítill skilningur hefur verið og virðist vera
ennjrá hjá ríkisvaldinu, á hlutverki sveitarfélaga.
Þegar illa árar hjá sveitarfélögum, velta stjórn-
endur þeirra e. t. v. meira fyrir sér en endranær,
hver staða Jreirra sé í þjóðfélaginu, og til hverra
úrræða sé heppilegast að grípa, til lausnar á
vandamálunum.
Að þessu leyti er hið gamla orðtæki í fullu
gildi „að neyðin kennir naktri konu að spinna“.
Þrengingartímar geta orðið til.góðs, ef þeir leiða
til betra skipulags og heppilegri lausna á vanda-
málunum.
Á þeirn skarnma thna, sem liðinn er, síðan að
ég hóf afskipti af sveitarstjórnarmálum, hefur mér
fundizt, að meginorka sveitarstjórnarmanna færi
í það, að heyja eins konar pólitíska baráttu við
ríkisvaldið og reyndar bankavaldið líka, hreinlega
um tilverurétt sinn. Virðist mér þessi barátta
meira einkennandi fyrir sveitarstjórnarmenn,
heldur en innbyrðis pólitískt Jrras.
En í hverju birtist Jretta skilningsleysi ríkis-
valdsins á þörfum og hlutverki sveitarfélaganna?
Svar við Jressari spurningu er allt of viðamikið
til þess að gera grein fyrir því í stuttu ávarpi.
í stuttu máli má Jró segja, að ríkisvaldið hefur
hvorki skilning á Jjví, að sveitarfélög ráði málum
sínum sjálf, né heldur því, að Jrau þurfi fé til að
annast Jrau verkefni, sem þeim eru falin að lög-
um og eðli máls samkvæmt.
Hér er ekki tími til að rökstyðja mál mitt til
neinnar hlýtar. Ég get Jró ekki látið hjá líða að
benda á nokkur atriði ntáli rnínu til stuðnings.
Eins og kunnugt er kveður stjórnarskráin svo
á, að sveitarfélög skuli njóta vissrar sjálfsstjórnar
um sín mál, með umsjón ríkisstjórnarinnar.
Þessari sjálfsstjórn sveitarfélaga er ekki nánar
lýst í stjórnarskránni, heldur fer um hana að lög-
um, sem Aljnngi setur hverju sinni. Þótt ekki sé
tilgreint í stjórnarskránni, hver sjálfsstjórn sveit-
SVEITAR ST.TÓRNARMÁL