Sveitarstjórnarmál - 01.02.1977, Page 62
HJÓN KJÖRIN FYRSTU HEIÐURS-
BORGARAR KÓPAVOGSKAUPSTAÐAR
Á fundi bæjarstjórnar Kópavogs,
sem haldinn var 8. okt. sl., voru
hjónin Finnbogi Rútur Valdimars-
son og Hulda Jakobsdóttir gerð að
fyrstu heiðursborgurum Kópavogs.
Bæði störfuðu þau lengi að
sveitarstjórnarmálum í Kópavogi, og
var heimili þeirra á Marbakka lengi
skrifstofa Kópavogshrepps.
Finnbogi Rútur var oddviti Kópa-
vogshrepps frá stofnun hans árið 1948
til ársins 1955 og síðan fyrsti bæjar-
stjóri Kópavogskaupstaðar. Gegndi
hann þvi starfi frá 1955— 1957 og var
bæjarfulltrúi til ársins 1962. Hann
var bankastjóri Útvegsbanka lslands
frá 1957-1962.
Hulda Jakobsdóttir var bæjarstjóri
Kópavogskaupstaðar á árunum
1957 — 1962 og bæjarfulltrúi 1970 —
1974. Hulda varð fyrsta konan til að
gegna starfi bæjarstjóra hér á landi og
önnur af tveimur konum, sem verið
hafa bæjarstjórar. Hin er Auður
Auðuns, sem var ásamt Geir Hall-
grimssyni borgarstjóri í Reykjavík á
árunum 1959 — 60.
Helðursborgarar Kópavogskaupstaðar, Hulda Jakobsdóttir og Flnnbogl Rútur
Valdlmarsson.
SVEITARSTJÓRNARMAL