Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Blaðsíða 8
AFMÆLI
BAndU4 TMMbdiu
Fiskiskipiö Geir PH 150 viö bryggju á Þórshöfn. Brekknafjall i
baksýn. Ljósm. U. Stef.
Börn og unglingar settu upp götuleikhús ýmissa furöuskepna
og hér sést hluti þeirra á leiö á hátíöahöldin.
Nokkrir hreppsnefndarmanna í Þórshafnarhreppi og í Sval-
baröshreppi ásamt sveitarstjóra Þórshafnarhrepps. Á myndinni
eru, taliö frá vinstri, Kristín Kristjánsdóttir á Syöri-Brekkum II,
varaoddviti Þórshafnarhrepps, og aftan viö hana Jóhannes Sig-
fússon á Gunnarsstööum III, oddviti Svalbaröshrepps, Reinhard
Reynisson sveitarstjóri Þórshafnarhrepps, Þorlákur Sigtryggs-
son á Svalbaröi, hreppsnefndarmaöur i Svalbaröshreppi, Jó-
hann A. Jónsson, framkvæmdastjóri og oddviti Þórshafnar-
hrepps, og Jónas Siguröur Jóhannsson skipstjóri, hrepps-
nefndarmaöur í Þórshafnarhreppi. Myndina tók Unnar Stefáns-
son.
og liljóðfæraleiks, töfrabragða og götuleikhúss unglinga,
svo eitthvað sé nefnt. Þessari útidagskrá iauk svo með
mikilli matarveislu í boði fyrirtækja á svæðinu þar sem
áhersla var lögð á nýjungar í matreiðslu á þekktu hráefni,
ásamt því að kynna ný hráefni til matargerðar.
Síðdegis var flutt hátíðardagskrá í félagsheimilinu
Þórsveri undir stjóm Þórunnar Sigurðardóttur. Hófst hún
með söng Samkórs Þórshafnar, en síðan flutti formaður
afmælisnefndar, Freyja Önundardóttir, ávarp. Að loknu
öðru lagi kórsins fluttu leikararnir Arnar og Helga Jóns-
börn fyrri hluta dagskrár úr bókmenntum sem tengjast
Þórshöfn og nágrenni.
Tónlistarflutningur þeirra Einars Kristjáns Einarssonar
gítarleikara, Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur píanóleik-
ara, Sigurðar Ingva Snorrasonar klarínettuleikara og As-
kels Mássonar, tónskálds og slagverksleikara, í ýmsum
samröðunum var sérlega skemmtilegur og vakti mikla
hrifningu áheyrenda. Fyrir hlé söng Þuríður Vilhjálms-
dóttir við undirleik Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur tvö
lög, Draumalandið og Sjá dagar koma.
Að loknu hléi flutti Leikfélag Þórshafnar einþáttung-
inn Ambrið eftir Aðalbjöm Amgrímsson, fjölhæfan hug-
sjónamann sem lét til sín taka hvaðeina er til framfara og
menningarauka horfði hér í heimabyggð sinni. Seinni
hluti bókmenntadagskrár Arnars og Helgu var kryddaður
einkar skemmtilegum þætti Halldóru Ingimarsdóttur,
sem brá upp mannlífsmyndum frá Þórshöfn fyrri tíðar og
var greinilegt að þeir sem til þekktu sáu þær ljóslifandi.
Dagskrá laugardagsins lauk með flugeldasýningu og
brennum um miðnættið í umsjón Lionsklúbbsins Fonts
ásamt því að dans var stiginn fram á morgun á útidans-
leik við höfnina.
Sunnudagurinn heilsaði með fallegu veðri, sól og suð-
vestan andvara, sem fór vel með þá sem tóku þátt í sigl-
ingu og sjóstangaveiði. A Sauðanesi er verið að byggja
upp gamla prestssetrið, eitt elsta hús sinnar tegundar á
landinu, byggt 1879 úr handhöggnu grjóti seni flutt var
um langan veg, bæði úr Hallgilsstaðanipa og Brekkna-
fjalli. Endurbyggingin er á vegum húsfriðunarnefndar
Þjóðminjasafnsins, en heimamenn hafa stutt verkið með
vinnuframlagi og héraðsnefnd Norður-Þingeyinga með
fjárframlögum. Boðið var upp á sérstaka leiðsögn um
húsið undir umsjón Aðalsteins Maríussonar, sem unnið
hefur að endurbyggingunni. Gert er ráð fyrir að verkinu
ljúki jafnvel á næsta ári og eru uppi hugmyndir um að
nýta húsið jafnhliða sem safn, móttökuhús og sem aðset-
ur fræðimanna og viðkomustað ferðalanga sem leið eiga
út á Langanes.
Þegar degi tók að halla fóru gestir að búast til heim-
ferðar, þótt talsverður fjöldi hefði ákveðið að staldra
lengur við, enda margir langt að komnir. Dæmi voru um
að fólk kæmi erlendis frá til að vera við hátíðahöldin, en
talsvert var um það að tækifærið væri notað til að hittast
í gömlum fermingarbamahópum til að rifja upp minn-
ingar frá fyrri tíð.
1 98