Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Blaðsíða 59
BARNAVERND
Áskorun til sveitarstjórnarmanna
frá umboðsmanni barna
Þórhildur Líndal, umboðsmaður barna
A. Fjárhagsáœtlun sveitarfélaga
Þar sem nú fer í hönd gerð fjár-
hagsáætlunar hjá sveitarstjómum vil
ég, sem umboðsmaður barna og
ungmenna undir 18 ára aldri, skora
hér með á allar sveitarstjómir lands-
ins, sem fara með fjöldamörg verk-
efni er varða böm og ungmenni, að
láta þau verkefni njóta raunverulegs
forgangs í fjárhagsáætlunum sveit-
arfélaganna. Eg hvet hér með sveit-
arstjómarmenn til að hafa hagsmuni
bama og ungmenna að leiðarljósi og
á þann hátt sýna og sanna fyrir hinni
ungu kynslóð, framtíðar kjósendum,
að þau eru mikils virði.
Samkvæmt alþjóðlegum mann-
réttindasamningum ber stjórnvöld-
um að skapa börnum eðlilegt um-
hverfi, sem tryggir uppvöxt þeirra
og velfamað, í anda friðar, jafnrétt-
is, virðingar og umburðarlyndis.
Það að skapa börnum góð lífsskil-
yrði á æskuárum sínum er arðbær
fjárfesting til lengri tíma litið. í
þessu sambandi er rétt að vekja at-
hygli á 3. gr. samnings Sameinuðu
þjóðanna um réttindi bamsins, sem
Island er aðili að, en þar segir m.a.:
„Það sem barni er fyrir bestu skal
ávallt hafa forgang þegar félags-
málastofnanir á vegum hins opin-
bera eða einkaaðilar, dómstólar,
stjórnvöld eða löggjafarstofnanir
gera ráðstafanir sem varða böm.“
B. Reynslusveitarfélög
Ég vil líka varpa þeirri hugmynd
til sveitarfélaganna hvort einhver úr
þeirra hópi séu ekki reiðubúin til að
ganga fram fyrir skjöldu, t.d. sem
reynslusveitarfélög, og gefa bömum
og ungmennum kost á að hafa með
skipulegum hætti bein áhrif á þau
málefni sveitarfélagsins sem virki-
lega varða hagsmuni þeirra. Gera
tilraunir með hvaða aðferðir dugi
best í þessum efnum.
Að reynslutíma liðnum verði ár-
angur þessara tilrauna metinn og
kannað hvaða leiðir og aðferðir hafa
geftð besta raun. Það gæti síðan leitt
til þess að öll sveitarfélög landsins
breyttu starfsháttum sínum og
skipulagi stjórnsýslunnar til sam-
ræmis við niðurstöðu úr þeim til-
raunum. Þá fyrst yrði raunverulega
tryggður réttur bama og ungmenna
til að láta í ljós eigin skoðanir í
öllum málum sem þau varða.
I 12. gr. samnings Sameinuðu
þjóðanna um réttindi bamsins segir
orðrétt: „1. Aðildarríki skulu tryggja
bami sem myndað getur eigin skoð-
anir rétt til að láta þær frjálslega í
ljós í öllum málum sem það varða,
og skal tekið réttmætt tillit til skoð-
ana þess í samræmi við aldur þess
og þroska. - 2. Vegna þessa skal
bami einkum veitt tækifæri til að tjá
sig við hverja þá málsmeðferð fyrir
dómi eða stjórnvaldi sem barnið
varðar, annaðhvort beint eða fyrir
milligöngu talsmanns eða viðeig-
andi stofnunar, á þann hátt sem
samræmist reglum í lögum um
málsmeðferð.“
HUSAFRIÐUNAR-
SJÓÐUR
Húsafriðunarnefnd ríkisins auglýsir eflir umsóknum til Húsafriðunar-
sjóðs, sbr. ókvæði í þióðmin|alöqum nr. 88/1989 sbr. lög
nr. 43/1991 og 98/1994 og reglugerð um Húsafriðunarsjóð
nr. 479/1993.
Veittir eru styrkir til að greiða hluta kostnaðar vegna:
- undirbúnings framkvæmda, óætlanagerðar og tæknilegrar róð-
gjafar og til framkvæmda vegna viðhalds og endurbóta ó Triðuðum
húsum og húsum sem hafa menningarsögulegt og listrænt gildi
- byggingarsögulegra rannsókna og útgófu þeirra.
Að gefnu tilefni er hlutaðeigendum bent ó að leita eftir óliti Húsa-
friðunarnefndar ríkisins og sæKja um styrk óður en framkvæmdir hefj-
ast.
Umsóknir skulu berast eigi síðar en 1. febrúar 1997 til Húsafriðun-
arnefndar ríkisins, Þjóðminjasafni Islands, Suðurgötu 41, 101 Reykja-
vík, ó umsóknareyðublöðum sem þar fóst.
Frekari upplýsingar eru veittar í síma 562 2475 milli kl. 10.30 og
12.00 virka daga.
Húsafriðunarnefnd ríkisins
249