Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Blaðsíða 54

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Blaðsíða 54
STJÓRNSÝSLA Þessar hugmyndir kröfðust sérstakra lagaheimilda. Var á sl. vorþingi lagt fram frumvarp þar að lútandi til breytinga á lögum um reynslusveit- arfélög. Flestar umsóknir í mála- llokknum voru því í biðstöðu þar til frumvarpið varð að lögum rétt fyrir þinglok. Vinnumiólun og þjónusta vió atvinnulausa Atta sveitarfélög sóttu um tilraun- ir í þessum málaflokki. Almennt má segja að áhugi sveitarfélaga á til- raunum á þessu sviði hafi minnkað þegar þau komust að raun um að ekki var að vænta sérstakra fjárveit- inga frá ríki til þeirra. Af hálfu rfkis- ins hafði ekki verið gert ráð fyrir auknum fjárveitingum vegna reynslusveitarfélagaverkefna og því voru það eingöngu tilraunir sem fólu í sér verkefnaflutning sem fylgdi sérstakt fjármagn frá ríki. Tvö sveitarfélög, þ.e. Dalabyggð og Hornafjarðarbær, höfðu áhuga á að gera tilraunir með samþættingu at- vinnuráðgjafar og vinnumiðlunar. Umsóknir þeirra kröfðust ekki sér- stakra lagaheimilda og vísaði verk- efnisstjórnin þeim til frekari með- ferðar heim í hérað. Þessar hug- ntyndir hafa ekki ennþá komist til framkvæmda. Fimm sveitarfélög hafa hug á að gera tilraun með aukna ráðgjöf og menntunartilboð til atvinnulausra gegn því að vikið verði frá ákvæðum laga um atvinnu- leysistryggingar um vikulega skrán- ingu atvinnulausra, og ákvæðum um að atvinnulausir megi ekki stunda nám í lengri tíma en átta vik- ur. Nauðsynlegt var að afla sér- s- takra lagaheimilda til þess að víkja frá þessum ákvæðum og fengust þær rétt fyrir þinglok í vor. I fram- haldi af því hefur verið unnið áfram að útfærslu samþykkta fyrir sveitar- félögin en eitt sveitarfélag, þ.e. Garðabær, er fallið frá tilraun á þessu sviði. Byggingarmá! Sex sveitarfélög sóttu um tilraunir á þessu sviði og hafa verið staðfest- ar samþykktir fyrir þau öll. Þær fela í sér heimildir fyrir byggingarfull- trúa til að afgreiða tiltekin mál án staðfestingar byggingarnefndar. Markmið tilrauna er að einfalda og hraða meðferð byggingannála. Þetta er sá málaflokkur þar sem flestar samþykktir hafa verið staðfestar en um tiltölulega einfaldar stjómsýslu- tilraunir er að ræða. Heilsugæsla og öldrunar- mál Níu sveitarfélög sóttu um verk- efni í málaflokknum. Umsókn Hornafjarðarbæjar um yfirtöku á heilsugæslu og öldrunarmálum í Austur-Skaftafellssýslu er í höfn. Unnið er að samningaviðræðum við Akureyrarkaupstað en aðrar um- sóknir eru í biðstöðu samkvæmt á- kvörðun heilbrigðisráðuneytisins. Almennar stjórnsýslu- tilraunir Sex sveitarfélög höfðu hug á að gera almennar stjórnsýslutilraunir. Þessar tilraunir krefjast flestar ekki lagafrávika og var vísað til frekari meðferðar heim í hérað. Ein sam- þykkt hefur verið staðfest, þ.e. fyrir Neskaupstað, sem felur m.a. í sér frávik frá ákvæðum laga um skipan húsnæðisnefndar. Málefni fatlaóra Fjögur sveitarfélög sóttu um yfir- töku á málefnum fatlaðra. Umsókn Akureyrarkaupstaðar er komin í höfn og samningaviðræður við Vestmannaeyjabæ eru langt komn- ar. Akveðið var að fresta frekari samningaviðræðum unt yfirtöku Reykjavíkurborgar á málaflokknum þar til úttekt hefur verið gerð á stöðu málefna fatlaðra í borginni. Er nú unnið að þessari úttekt í sam- vinnu ráðuneytis og borgarinnar og er gert ráð fyrir að henni ljúki í haust. Einni umsókn var hafnað af ráðuneytinu, þ.e. umsókn Vestur- byggðar. Löggæsla Reykjavíkurborg og Hafnarfjarð- arkaupstaður höfðu áhuga á að yfir- taka staðbundna löggæslu en um- sóknir þeirra fengu ekki hljómgrunn hjá dómsmálaráðuneyti. Menningarmál Akureyrarkaupstaður hafði áhuga á að fá rammafjárveitingu frá ríki til menningarmála og menningarstofn- ana í sveitarfélaginu og að fá aukið forræði yfir minjavörslu, ásamt því að standa, í samvinnu við Þjóð- minjasafnið, að atvinnuátaksverk- efnum fyrir atvinnulausa sem tengj- ast starfsemi safnsins. Sveitarfélagið hefur gert samning við menntamálaráðuneytið um rammafjárveitingu til menningar- mála og menningarstofnana. I samningnum er jafnframt kveðið á um að aðilar muni halda áfram við- ræðum um frekari tilraunaverkefni í samræmi við hugmyndir Akureyrar- kaupstaðar. Náttúruvernd Garðabær hafði áhuga á auknu forræði á náttúruverndarmálum í sveitarfélaginu. Ekki var fyrir hendi heimild í lögum um reynslusveitar- félög til þess að gera tilraun á þessu sviði og ekki reyndust forsendur til þess að afla slíkrar heimildar. Samþætting sálfræói- þjónustu Garðabær og Neskaupstaður höfðu áhuga á tilraun sem fæli í sér samþættingu á sálfræðiþjónustu á vegum ríkis og sveitarfélaga. Hug- myndirnar reyndust eiga nokkuð erfitt uppdráttar, einkum vegna and- stöðu fræðslustjóra. Neskaupstaður vinnur þó enn að þessari hugmynd. Skipuiagsmái Akureyrarkaupstaður sótti um til- raun sem fæli í sér að sveitarfélagið fengi heimild til þess að fara með skipulagsmál í sveitarfélaginu í megindráttum í samræmi við frum- varp til nýrra skipulags- og bygg- ingarlaga sem nokkrum sinnum hef- ur verið flutt á Alþingi. Ekki tókst að koma slíkri heimild að í frum- 244
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.