Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Blaðsíða 58

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Blaðsíða 58
ÝMISLEGT Húnbogi Þorsteinsson settur ráðuneytisstjóri Berglind Asgeirsdóttir, ráðuneyt- isstjóri í félagsmálaráðuneytinu, hefur fengið leyft frá störfum í fjög- ur ár frá 1. júlí sl. til þess að gegna embætti framkvæmdastjóra for- sætisnefndar Norðurlandaráðs sem hefur aðsetur í Kaupmannahöfn. Húnbogi Þorsteinsson, skrifstofu- stjóri í ráðuneytinu, hefur verið sett- ur ráðuneytisstjóri í ráðuneytinu frá sama tíma. FÉLAGSMÁL Húsaleigubætur óbreytt- ar 1997 Hinn 17. maí sl. skipaði Páll Pét- ursson félagsmálaráðherra fimm manna nefnd til þess að gera tillögur um framtíð húsaleigubóta. Stjórn sambandsins tilnefndi tvo þeirra, þau Karl Björnsson, bæjarstjóra á Selfossi, og Láru Björnsdóttur, fé- lagsmálastjóra Reykjavíkurborgar. Aðrir í nefndinni eru Aslaug Frið- riksdóttir, deildarsérfræðingur í fé- lagsmálaráðuneytinu, Arnar Jóns- son, stjórnsýslustjóri í fjámiálaráðu- neytinu, tilnefndur af því, og Ingi Valur Jóhannsson, deildarstjóri í fé- lagsmálaráðuneyti sem jafnframt er formaður nefndarinnar. Fulltrúar sambandsins í nefnd- inni, þau Karl og Lára, rituðu fé- lagsmálaráðherra bréf hinn 13. sept- ember þar sem þau lögðu til að gild- istími laganna um húsaleigubætur nr. 100/1994 yrði framlengdur um eitt ár. Félagsmálaráðherra féllst á þá tillögu og jafnframt var nefnd- inni falið að gera tillögur um breytt fyrirkomulag húsaleigubóta eftir árið 1997. Að sögn Inga Vals, for- manns nefndarinnar, er gert ráð fyrir að hún skili áliti snemma á næsta ári. Á fundi í stjórn sambandsins hinn 30. október sl. var lagt fram bréf þeirra Karls og Láru. Stjórnin samþykkti svofellda bók- un um málið: „Fyrir liggur að húsaleigubóta- kerfið verður óbreytt á næsta ári og endurskoðunamefnd laga um húsa- leigubætur hefur verið falið að móta tillögur að nýju kerfi fyrir árslok 1997. Stjórnin leggur þunga áherslu á að endurskoðunarnefndin hraði störfum og telur að til greina komi að sveitarfélögin taki að fullu að sér greiðslu húsaleigubóta að því gefnu að tillaga um nýtt fyrirkomulag verði ásættanleg frá sjónarmiði sveitarfélaganna og að fullt sam- komulag náist um fjárhagshlið málsins milli ríkis og sveitarfélaga." Sigríður Stefánsdóttir sat hjá við afgreiðslu málsins. NÁMSKEIÐ Námskeið fyrir starfsfólk vinnumiðlana Sambandið og félagsmálaráðu- neytið hafa haft samstarf um nám- skeiðahald fyrir starfsfólk vinnu- miðlana. Reglulega eru haldin tölvunámskeið fyrir starfsfólk vinnumiðlana í atvinnuleysisskrán- ingar- og vinnumiðlunarkerfinu ALSAM." Síðastliðið vor voru haldin fjögur tveggja daga námskeið fyrir starfs- fólk vinnumiðlana. Tvö námskeið voru haldin í Reykjavík dagana 28. og 29. mars og 17. og 18. apríl, eitt á Akureyri 9. og 10. maí og eitt á Egilsstöðum 11. og 12. apríl. Til- gangur námskeiðanna er að veita starfsfólki vinnumiðlana grunn- fræðslu unt allt er lýtur að starfsemi vinnumiðlana. Á námskeiðinu er fjallað um helstu lagaákvæði unt starfsemi vinnumiðlana og atvinnuleysis- tryggingar, vinnubrögð á vinnu- miðlunum, þarftr atvinnuleitenda og atvinnurekenda fyrir þjónustu vinnumiðlunar, rétt til atvinnuleys- isbóta og félagslegrar þjónustu, áhrif atvinnuleysis á einstakling og fjölskyldu, samtalstækni og sam- skipti starfsfólks og atvinnulausra og urn náms- og starfsráðgjöf og önnur úrræði fyrir atvinnulausa. Þátttaka var mjög góð og almenn ánægja með fyrirkomulag og inni- hald námskeiðanna. Fyrirhugað er að þessi námskeið verði fastur liður í starfsemi vinnu- miðlana auk þess sem stefnt er að framhaldsnámskeiðum. BÆKUR OG RIT Árbók sveitarfélaga 1996 Árbók sveitarfélaga 1996 er kom- in út í tólfta sinn. Bókin hefur, líkt og undanfarin ár, að geyma ýmsar greinargóðar upplýsingar um rekst- ur sveitarfélaga í landinu. Upplýs- ingar úr ársreikningum hvers sveit- arsjóðs 1995 skipa veglegan sess í bókinni ásarnt upplýsingum um álagningu útsvars og fasteignaskatts árið 1996. Árbókin hefur einnig að geyma ítarlegar upplýsingar um rekstur leikskóla og framlög Jöfnun- arsjóðs sveitarfélaga árið 1995 til sveitarfélaganna. Ennfremur er að finna í bókinni sérstakan kafla um yfirtöku sveitarfélaga á öllum grunnskólakostnaði, álagningarregl- ur fasteignagjalda hjá stærri sveitar- félögum, íbúafjölda sveitarfélaga og skiptingu eftir aldri og margt fleira er tengist sveitarfélögunum í land- inu. Árbókin fæst á skrifstofu sam- bandsins, Háaleitisbraut 11, 108 Reykjavík, og kostar eintakið 1.800 krónur. 248
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.