Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Page 11

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Page 11
FJÁRMÁL Breytingar á Jöfnunarsjóði sveitar- félaga vegna flutnings grunnskólans Húnbogi Þorsteinsson, ráðuneytisstjóri ífélagsmálaráðuneytinu Með lögum um grunnskóla, nr. 66/1995, var lögfest að allur kostnaður grunnskóla skuli greiddur af sveitarfélögum. I Iögunum er gert ráð fyrir að allur launakostnaður vegna kennslu í grunnskólum flytjist frá riki til sveit- arfélaga ásamt rekstrarkostnaði ýmissa tengdra stofnana, eins og sérskóla ríkisins, sérdeilda og fræðsluskrifstofa. Lögin komu að fullu til framkvæmda 1. ágúst sl., enda hafði Alþingi þá m.a. samþykkt nauðsynlegar breyt- ingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga og lögunt um skiptingu skatttekna milli ríkis og sveitarfé- laga með tilliti til þeirra auknu verkefna sem sveitarfé- lögin taka að sér samkvæmt grunnskólalögunum. Undanfari breytinganna á lögunum um tekjustofna sveitarfélaga var víðtækt samkomulag ríkis og sveitarfé- laga um kostnaðar- og tekjutilfærslu milli þessara aðila sem verða nú raktar í stutlu máli. Ágúst til desember 1996 A þessu tímabili mun ríkissjóður greiða til sveitarfé- laganna í heild sinni 2.734 millj. kr. Þar af renna um 1.980 millj. kr. beint til sveitarfélag- anna og skiptast milli þeirra í hlutfalli við áætlaðan út- svarsstofn hvers og eins þeirra vegna júlí til nóvember 1996. Fjárhæð hvers sveitarfélags nemur 1,853% af áætluðum útsvarsstofni þess og er greidd viðkomandi sveitarfélagi af ríkisféhirði með jöfnum mánaðarlegum greiðslum. Afgangurinn, um 754 millj. kr., rennur í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Strax í ágúst sl. hóf sjóðurinn því að gegna því jöfnunarhlutverki sem honum er ætlað vegna yfirfærslu grunnskólans og eru framlög hans greidd við- komandi sveitarfélögum með jöfnum mánaðarlegum greiðslum. Áríö 1997 Til þess að sveitarfélög geti fjármagnað rekstur grunnskólaverkefna, sem flytjast frá ríki til sveitarfé- Iaga, fá þau tekjur sem hér segir: 1. Útsvarsliœkkun Samkvæmt lögum mun hámarksheimild til álagningar útsvars hækka um 2,70 prósentu- stig frá og með 1. janúar 1997. Gert er ráð fyr- ir að hluti þess renni beint til sveitarfélaga eða sem nemur 1,97% af útsvarsstofni en 0,73% renni í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. 2. Beingreiðsla ríkisins ijanúar 1997 Þar sem staðgreiðsla af staðgreiðsluskyld- um tekjum er ávallt greidd í næsta mánuði eft- ir að til þeirra var stofnað munu auknar tekjur sbr. lið 1 ekki berast sveitarfélögum fyrr en í febrúar 1997. í janúar er því gert ráð fyrir að ríkissjóður greiði sveit- arfélögum fjárhæð sem áætluð hefur verið samtals um 668 millj. kr. Um 488 milljónir kr. munu renna beint til sveitarfélaga en 180 millj. kr. í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. 3. Beingreiðslur vegna tekna sem skattlagðar eru við álagningu 1997 og ekki hefur verið greidd staðgreiðsla af, I ágúst til desember 1997 er gert ráð fyrir að ríkissjóð- ur greiði sveitarfélögum samtals áætlað um 498 millj. kr. Um 364 millj. kr. munu renna beint til sveitarfélaga en um 134 millj. kr. í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Jöfnunarframlögin sem nú eru greidd til sveitarfélaga vegna reksturs grunnskólans eru byggð á sérstakri reglu- gerð sem gefin var út í júlí sl. Framlög Jöfnunarframlög skiptast í almenn framlög, framlög vegna sérkennslu fatlaðra nemenda, vegna veikindafor- falla og bamsburðarleyfa kennara, vegna nýbúafræðslu, vegna Skólabúða að Reykjum, vegna Bamavemdarstofu og önnur framlög. Framlögin skulu greidd mánaðarlega. Fyrir hvert fjárhagsár skal Jöfnunarsjóður sveitarfé- laga gera áætlanir um jöfnunarframlögin. I desember skal senda sveitarfélögum upplýsingar um áætluð jöfn- unarframlög næsta árs og greiðsludreifingu þeirra eftir því sem við verður komið. 20 1

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.