Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Blaðsíða 22
MENNINGARMÁL
Vesturfarasetriö á Hofsósi.
Hvað er að gerast á Hofsósi?
Aslaug Jónsdóttir, teiknari og myndbókahöjundur
Hofsós er eins og fleiri sjávarþorp að ganga í gegnum miklar breytingar.
Á Hofsósi hefur verið brugðist við dvínandi gengi í hefðbundnum
atvinnugreinum með því að sækja á ný mið í ferðaþjónustunni.
Menningarsögulegi arfur-
inn
Þegar skoða á tilveru smáþorpa á
landinu verður ekki hjá því komist
að huga að sögunni. Ekki síst þegar
allir áttavitar sýna suður og þorp
eins og Hofsós líta út á vegakorti
sem næsta afskekktar byggðir og
illa staðsettar. En ekki er allt sem
sýnist.
í margar aldir var Hofsós mikil-
vægasti verslunarstaður Skagafjarð-
ar, miðstöð verslunar fyrir allt hér-
aðið á tímum valdamikilla kaup-
manna. Kaupskipin sigldu að besta
lægi fjarðarins við mynni Hofsár. A
tímabili einokunar áttu allir Skag-
firðingar að versla við Hofsóskaup-
menn en eftir að henni var aflétt var
þar lengi áfram dönsk verslun.
Pakkhúsið á Hofsósi er leifð frá síð-
asta áratug einokunar og þjónaði
síðan kaupmönnum á ólíkum skeið-
um í verslunarsögunni.
Staða Hofsóss sem verslunarstað-
ar breyttist smám saman. Um alda-
mótin voru fjórir verslunarstaðir á
milli Sauðárkróks og Sigiufjarðar:
við Kolkuós, Grafarós, Hofsós og í
Haganesvík. Fyrsta kaupfélagið sem
rak verslun á Hofsósi var lítið félag,
Kaupfélag Fellshrepps, stofnað
1919. Síðar tók Kaupfélag Austur-
Skagfirðinga við og rak verslun allt
fram til 1969, en þá var félagið sam-
einað Kaupfélagi Skagfirðinga.
2 1 2