Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Qupperneq 12
FJÁRMÁL
1. Almenn framlög
Almenn framlög skulu reiknuð á grundvelli kennslu-
stunda í sveitarfélagi samkvæmt reiknilíkani og vægi
sveitarfélaga í útsvarsstofni. Framlögin skulu greidd til
sveitarfélaga að undanskildum nokkrum sveitarfélögum
sem fá allan sinn kostnað uppborinn í útsvarshækkun-
um.
Reiknilíkaninu er ætlað að lýsa sem best hagkvæmni
grunnskólanna miðað við fjölda nemenda í viðkomandi
skóla. Líta má á niðurstöðu reiknilíkansins fyrir hvem
grunnskóla sem útreiknaðan kennslustundafjölda á
hvern nemanda vegna almennrar kennslu, almennrar
sérkennslu og afsláttar stjómenda. Nemendafjöldi hvers
grunnskóla er breyta reiknilíkansins, þ.e. stærð sem hef-
ur breytilegt gildi.
2. Sérkennsla fatlaðra nemenda
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga skal greiða framlög til
sveitarfélaga vegna grunnskólanemenda sem falla undir
lög um málefni fatlaðra.
Eftirfarandi tvö skilyrði eru fyrir greiðslu framlaga til
viðkomandi sveitarfélaga:
a. Að viðkomandi nemandi eigi lögheimili í sveitarlé-
laginu og hafi verið greindur fatlaður af Greiningar- og
ráðgjafarstöð ríkisins, barna- og unglingageðdeild Land-
spítalans, Heymar- og talmeinastöð Islands, Sjónstöð Is-
lands eða öðrum aðila sem Greiningar- og ráðgjafarstöð
ríkisins viðurkennir.
b. Að fötlunin falli undir viðmiðun Jöfnunarsjóðs er
kalli á verulega sérkennsluþörf.
3. Framlög vegna veikindaforfalla og barnsburðar-
leyfa kennara
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga skal greiða þeim sveitar-
félögum framlög þar sem kostnaður vegna veikindafor-
falla og barnsburðarleyfa kennara í grunnskólum er
verulega hár.
Ef árlegur kostnaður vegna veikindaforfalla og bams-
burðarleyfa í sveitarfélagi fer yfir 0,368% af útsvars-
stofni næstliðins tekjuárs skal greiða framlag sem nemur
85% af þeim kostnaði sem umfram er.
4. Framlög vegna nýbúafrœðslu
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga skal greiða sveitarfélög-
um framlög til nýbúafræðslu á grunnskólastigi þar sem
um slíkt er að ræða.
Fyrir hvert fjárhagsár skal Jöfnunarsjóður gera áætlun
um umfang nýbúafræðslu á landinu utan Reykjavíkur-
borgar. Aætlunin skal unnin í samstarfi við námsstjóra í
nýbúafræðslu.
5. Skólabúðir að Reykjum
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga skal veita framlag til
reksturs skólabúða að Reykjum í Hrútafirði. Framlagið
skal ákveðið í sérstökum samningi milli jöfnunarsjóðs,
Sambands íslenskra sveitarfélaga, mcnntamálaráðuneyt-
isins og hlutaðeigandi rekstraraðila skólabúðanna.
6. Börn vistuð af Barnaverndarstofu
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga skal veita Bamavemdar-
stofu árlegt framlag vegna almennrar kennslu og sér-
kennslu þeirra barna sem vistuð eru utan lögheimilis-
sveitarfélags af Barnaverndarstofu og stunda þar grunn-
skólanám. Fjárhæðin skal endurskoðuð árlega að feng-
inni reynslu.
7. Önnurframlög
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga skal taka frá fjármagn er
nýtast skal til framlaga vegna ófyrirséðra tilvika við
kennslu í grunnskólum. Til að sveitarfélag geti fengið
framlag samkvæmt þessari grein verður að vera um til-
vik að ræða sem hefur í för með sér kostnað sem er veru-
lega íþyngjandi fyrir viðkomandi sveitarfélag.
Þama er einkum um það að ræða ef sveitarfélag skortir
verulega tekjur til að standa undir rekstri grunnskólans
eftir breytinguna enda séu á því eðlilegar skýringar og
viðkomandi skóli sé rekinn með hagkvæmum hætti.
I undantckningartilvikum er ráðgjafarnefnd heimilt að
veita framlög til annarra en sveitarfélaga fyrir tímabund-
in verkefni er snerta grunnskóla almennt. Ráðgjafar-
nefnd setur nánari vinnureglur um úthlutun slíkra fram-
laga.
Eg hefi rakið hér aðalatriðin varðandi skiptingu fram-
laganna eins og þau koma fram í reglugerðinni. Rétt er
að geta þess að við reglugerðina er bráðabirgðaákvæði
sem gerir ráð fyrir því að skólaárið 1996-1997 greiði
jöfnunarsjóðurinn sérstök framlög til rekstraraðila sér-
skóla og sérdeilda sem þjóna landinu öllu. Rökin fyrir
þessari ráðstöfun voru þau að þama þyrfti lengri aðlög-
unartíma heldur en til ráðstöfunar var til að aðlaga þcnn-
an rekstur breyttum aðstæðum.
Reglugerðin gerir hins vegar ráð fyrir því að stuðning-
ur vegna sérkennslu grunnskólanemenda er falla undir
lög um málefni fatlaðra verði í einu kerfi þar sem
greiðslur gangi beint til viðkomandi sveitarfélaga.
Hér er vissulega um mjög viðkvæmt og vandasamt
verkefni að ræða. Félagsmálaráðherra hefur því ákveðið
að konia á fót starfshópi sem móti vinnureglur vegna út-
hlutunar þessara framlaga. Óskað hefur verið eftir því að
Samband íslenskra sveitarfélaga og félag sérkennara til-
nefni fulltrúa í þennan vinnuhóp auk þess sem gert er ráð
fyrir að ráðgjafarnefnd jöfnunarsjóðsins muni eiga þar
fulltrúa. Þessum starfshópi er ætlað að ljúka störfum það
tímanlega að reglurnar verði tilbúnar fyrir næsta skólaár.
Þegar hafa verið settar vinnureglur varðandi þetta
fyrsta skólaár. Engu að síður þarf að endurskoða þær
reglur þegar þeir nemendur sem nú eru í sérskólum og
sérdeildum bætast þama við.
202