Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Síða 17
FRÆÐSLUMAL
WinSchool - kennslu-
tækni framtíðarinnar?
Tölvur verða sífellt mikilvægari
liður í lífi og starfi einstaklinga og
eru þær algeng hjálpartæki við
kennslu. Tölvuverslunin Boðeind
hefur til sýnis og sölu öflugt
kennslukerfi, WinSchool, sem ætlað
er að auka gæði og skilvirkni
kennslu. Hvert sem viðfangsefnið
er, alnetið, töflureiknir, ritvinnsla
eða vélritun, auðveldar kerfið
kennsluna. WinSchool hentar fyrir
skóla og stofnanir sem hafa hug a
að auka skilvirkni í kennslu á hag-
kvæman hátt. Kerfið stuðlar að ný-
tískulegu kennsluumhverfi með
sameiningu tölvutækni og mann-
legra samskipta á milli kennara og
nemenda.
Þannig er WinSchool kraftmikið
og hagkvæmt miðlunarkerfi sem
gefur kennara færi á að vera í stöð-
ugu sambandi við nemendur sína í
gegnum kerfið. Hann þarf ekki að
arka homanna á milli í kennslustof-
unni og bogra yfir axlir nemanda
eða eyða dýrmætum tíma í töflu-
skriftir. Einnig getur hann aðstoðað
þá nemendur sem eru hjálparþurfi
án þess að trufla hina sem lengra
eru komnir. Kerfið gerir það að
verkum að kennarinn leiðbeinir,
leiðréttir og hrósar vinnubrögðum
nemenda sinna með því að skoða
skjámyndir þeirra á eigin skjámynd.
Hann hefur því óskipta athygli nem-
enda og kennslustundin nýtist til
fulls.
Fjórar keyrsluaóferóir
I WinSchool eru fjórar keyrsluað-
ferðir notaðar:
• Sending gefur kennara mögu-
leika á því að senda skjámynd sína,
bæði texta og myndir, til eins eða
fleiri nemenda og einnig er hægt að
sýna myndbönd í kerfinu til nem-
enda. Hann getur notað músina til
að vekja athygli nemenda á mikil-
vægum atriðum. Einnig getur hann
verið í talsambandi við einn eða
fleiri nemendur ef höfuðtól eru til
staðar.
• Athugun gefur kennara mögu-
leika á því að skoða skjámynd nem-
enda án þess að trufla þá. Þá getur
hann sent skjámynd eins nemanda á
skjái annarra nemenda.
• Stjórnun gefur kennara kost á
því að nota sína útstöð til að stjórna
útstöð nemenda. Ef hann sér að
nemandi á í vandræðum getur hann
aðstoðað nemandann í gegnum
kerfið frá sinni útstöð.
• Endurræsing gefur kennara
möguleika á að endurræsa eina eða
fleiri af útstöðvum nemenda.
WinSchool kennslukerfiö í
Foldaskóla
Foldaskóli í Reykjavík varð fyrsti
skólinn til að taka kerfið í notkun
við kennslu hér á landi veturinn
1995-1996. Rósa Gunnarsdóttir,
kennara í Foldaskóla, segir kennslu-
kerfið ómetanlegt fyrir kennara sem
og nemendur. Kennari hafi fulla
stjórn á því sem fram fer í kennslu-
stofunni og umfram allt telur hún að
raddbönd kennara skaddist síður
með notkun kerfisins. Rósa segir til-
valið að nota kerfið við margs konar
kennslu, til dæmis í náttúrufræði og
geta þá sent ýmsar myndir, til dæm-
is af alnetinu, á skjá hvers nemanda.
Rósa kennir eðlisfræði og stjörnu-
fræði með kennslukerfið sem hjálp-
artæki og miðlar myndum af alnet-
inu af Pentium kennaratölvu yfir á
mun kraftminni vélar nemenda í
gegnum kerfið. Rósa segir að tengsl
við hvem og einn nemanda séu mun
persónulegri og kennslan komist
betur til skila fyrir vikið. Einnig að
mikilvægt sé að geta sent texta og
myndir á nemendur og þannig gera
kleift að kynna hin ýmsu forrit fyrir
nemendum og leiðbeina þeim jafn-
framt í notkun þeirra.
í endurbættri útgáfu kerfisins er
nú hægt að vera í talsambandi við
hvem og einn nemanda og einnig er
hægt að senda lifandi myndir á
hvem skjá.
Fyrir áhugamenn um nýjungar í
kennslutækni er WinSchool til sýnis
í tölvuversluninni Boðeind í Mörk-
inni 6. Markaðsfulltrúi Boðeindar,
söluaðila WinSchool kennslukerfis-
ins á Islandi, er Þór Clausen og veit-
ir hann upplýsingar um það í síma
588-2061.
Nemendur í Vogaskóla í kennslustund. Ljósm. K. Svansson.
207