Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Qupperneq 24

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Qupperneq 24
MENNINGARMÁL Viö opnun Vestur- farasetursins söng karlakórinn Heimir í Skaga- firöi undir stjórn Stefáns R. Gísla- sonar. Myndirnar tók Christopher Lund. ingamiðstöð, sérhæfð á sviði ætt- fræði og sögu. I fjórða lagi er þar að finna ættfræðibókasafn og safn heimilda um vesturferðir og Vestur- heim og í fimmta lagi verður unnið að fræðslu í tengslum við skólana. Tilkomu setursins á Hofsósi má rekja til samstarfsverkefnis 11 Evr- ópuþjóða sem ber hcitið „Routes to the Roots" og þýða mætti „Vegir upprunans“ eða „Til rótanna rakið“. Þar taka ferðaþjónustuaðilar hönd- um saman við fræðimenn á söfnum og stofnunum sem vinna að varð- veislu minja og skjala sem tengd eru flutningum Evrópubúa til Vestur- heims. Ferðaþjónusta bænda er ís- lenski þátttakandinn í þessari al- þjóðasamvinnu. Markmið verkefn- isins er að koma á tengslum við Norður-Ameríkumenn sem rætur eiga að rekja til Evrópu. I tlestum löndum Evrópu eru til söfn og fræðisetur sem sérhæfa sig í sögu vesturfaranna og tímabili mestu fólksllutninga sögunnar. A íslandi var slíkt safn eða stofnun ekki að finna. Hugmyndin um hús tileinkað vesturförunum var rædd við Valgeir Þorvaldsson, ferðaþjónustubónda á Vatni, og síðar kynnt sveitarstjóm á Hofsósi, en þorpið þótti ákjósanleg- ur staður fyrir stofnun af þessu tagi: Þar var heppilegt, gamalt hús í skemmtilegu umhverfi. Af Norður- landi fluttust margir til Norður-Am- eríku og við höfnina á Hofsósi má gera sér í hugarlund tilfinningar þeirra sem biðu skips. í kjölfar ákvörðunar Valgeirs Þor- valdssonar og eigenda gamla Kaup- félagshússins um að hrinda hug- myndinni í framkvæmd var stofnað einkahlutafélagið Snorri Þorfinns- son, sem sá um endurbygginguna og annast nú rekstur hússins. Fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins er Val- geir Þorvaldsson sem um langt skeið hefur unnið að vexti ferða- þjónustu á svæðinu. Eigendur Snorra Þorfinnssonar ehf. er hópur fólks sem á sínum tíma keypti gainla Kaupfélagshúsið til þess að bjarga því frá eyðileggingu, en auk þess eru hluthafar bæði einstakling- ar og fyrirtæki. Byggðasafn Skagfirðinga tók að sér að setja upp sýninguna um vest- urfarana og þá vinnu leiddi Sigríður Sigurðardóttur safnstjóri. Sýningin var unnin í samvinnu við Minja- safnið á Akureyri, en auk sagnfræð- inga komu að sýningunni hönnuðir og handverksmenn úr ýmsum grein- um. Sýningin er byggð upp á sam- spili mynda, texta og muna, en svið- setningar og uingjörð öll á drjúgan þátt í að skapa áhrifamikla heildar- mynd. A sýningunni, sem ber heitið „Annað land, annað líf‘, er dregin upp mynd af hlutskipti þeirra sem sigldu vestur. Fjallað er um aðdrag- anda og helstu ástæður fólksflutn- inganna og lífskjörum fólks í land- inu á þessu tímabili lýst. Við kynn- umst væntingum vesturfaranna, að- búnaði á útleið og veruleikanum sem beið. Mikið er lagt upp úr því að gera sýninguna aðgengilega og fróðlega, en með fyrirlestrasalnum er aðstaða til safnakennslu afar góð. Bókasafn setursins fer ört stækkandi og ætti setrið að verða fýsilegur kostur fyrir stefnumót og heimsóknir fræði- manna á qsviði sagnfræði og ætt- fræði. Samvinna Minjasafnsins á Akur- eyri og Byggðasafns Skagfirðinga innbyrðis og samvinna þeirra við einkafyrirtæki í ferðaþjónustu á sér fáar hliðstæður hérlendis, en er til eftirbreytni. Vegur Byggðasafns Skagfirðinga fer æ vaxandi með metnaðarfuilum verkefnum víðs vegar um héraðið og er samstarf safnsins við Snorra Þorfinnsson ehf. framsækin nýjung í ferða- og menn- ingarmálum. Snorri Þorfinnsson ehf. leggur á- herslu á ferðaþjónustu í tengslum við menningarstarfsemi ýmiss konar og mun sérstaklega sinna ferða- mönnum frá Norður-Ameríku. Með rekstri Vesturfarasetursins er brotið blað í samvinnu ferðaþjónustufyrir- tækja og fræðistofnana á Islandi og áhugavert að fylgjast með frekari framvindu í þessa átt. Einn helsti veikleiki íslenskrar ferðaþjónustu er hversu dreifðir kraftamir eru og skortur á samvinnu kemur áþreifanlega í Ijós þegar litið er til markaðsmála. Hagsmunir fjölda menningarstofnana og fyrir- tækja í ferðaþjónustu fara óneitan- lega saman og er svo komið í raun að hvorugur getur án hins verið. I ferðaþjónustu á landsbyggðinni er sérstaklega skortur á heildarstefnu fyrir hin mismunandi svæði og markmiðum sem vinna má að í á- föngum yfir tímabil talin í árum. Með betri samvinnu, skipulagningu og stefnumörkun væri lagður grund- völlur að farsælli og bjartri framtíð í ferðamálum landsins. 2 1 4
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.