Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Side 25
ERLEND SAMSKIPTI
Vinabæjamót á Seltjarnarnesi
27. og 28. júní 1996
Erna Nielsen, bœjarfulltrúi á Seltjarnarnesi
Dagana 27. og 28. júní 1996 var
haldið vinabæjamót á Seltjamamesi
en vinabæir okkar eru Herlev í Dan-
mörku, Höganás í Svíþjóð,
Nesodden í Noregi og Lieto í Finn-
landi. Fimmta hvert ár er mótið
haldið á Seltjarnamesi og að þessu
sinni kom hingað 31 erlendur gest-
ur, bæjarfulltrúar og embættismenn,
og dvöldu gestimir hér í tvo daga.
A fyrri deginum voru haldnir
fundir og opinber fyrirtæki heim-
sótt. Fundað var í starfshópum.
Bæjarfulltrúar ræddu stjórnsýslu
sveitarfélaganna, fulltrúar leikskóla
ræddu leikskólann og uppeldishlut-
verk hans, skólastjórnendur ræddu
rekstur og fjármál grunnskólans,
æskulýðsfulltrúar ræddu eiturlyfja-
vandamál unglinga og fulltrúar heil-
brigðismála ræddu forvarnir og
heilsugæslu. Auk þessa var haldinn
fyrirlestur um framkvæmd holræsis-
mála á Seltjamamesi sem unnin er í
samvinnu við önnur sveitarfélög á
höfuðborgarsvæðinu.
Heimsótt voru heilsugæslustöðin,
bókasafnið, leikskólinn Sólbrekka,
Hitaveita Seltjarnarness og Eiðis-
torg auk grunnskólanna beggja,
Mýrarhúsaskóla og Valhúsaskóla,
og tónlistarskóla en þar tók á móti
okkur lúðrasveit skólans og spilaði
nokkur lög fyrir gestina. Þá voru
söfnin í Nesi sótt heim, þ.e. Lyfja-
fræðisafnið og Lækningaminjasafn-
ið. I söfnunum tóku á móti gestun-
um Kristinn Magnússon, safnvörður
Nesstofu og Lækningaminjasafns,
og Axel Sigurðsson hjá Lyfjafræði-
safni.
Skólarnir vöktu sérstaka athygli
hjá hinurn erlendu gestum, bæði
fyrir vel skipulagt skólahúsnæði svo
og hvað sérstaklega væri vel um
skólana gengið. Töldu þeir að hér
hlyti að ríkja mikill agi, ella gætu
skólarnir ekki litið svona vel út. Á
fundi leikskólakennara kom í ljós að
aðeins á Islandi er leikskólinn undir
Sundlaug Seltjarnarness skoöuö.
Opnuð myndlistarsýning 14 listamanna á Seltjarnarnesi. Á myndinni eru, taliö frá
vinstri, Ingunn Benediktsdóttir glerlistakona, Guörún Einarsdóttir myndlistarkona, Her-
dis Tómasdóttir vefnaöarlistakona, Kristin Vilborg Siguröardóttir háskólanemi og
Katrín Pálsdóttir bæjarfulltrúi. Herrarnir eru bæjarfulltrúar frá Nesodden i Noregi.
2 1 5