Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Qupperneq 26

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Qupperneq 26
ERLEND SAMSKIPTI Kjalamess. I tilefni vinabæjamótsins var opn- uð myndlistarsýning á verkum 14 listamanna á Seltjamamesi. Þetta er farandsýning og voru verkin send að loknu mótinu til Herlev en þaðan fer hún síðan til hinna vinabæjanna. Öll verkin eru til sölu og munu ein- hver verkanna nú þegar hafa selst. Er þetta liður í menningarsambandi vinabæjanna og munu á næstu árum koma hingað sams konar sýningar frá vinabæjum okkar. Það var Guð- rún Einarsdóttir myndlistarmaður sem sá um allan undirbúning sýn- ingarinnar. Vinabæjanefnd Seltjarnarness hefur tvisvar sinnum staðið fyrir vinabæjavinnuskiptum unglinga það ár sem mótið er haldið hér á Sel- tjarnarnesi. Er þetta gert til að auka vídd vinabæjasamstarfsins með því að leggja áherslu á að ungt fólk taki þátt í samstarfinu. Við höfum boðið tveimur unglingum 15-16 ára frá hverjum vinabæ að koma hingað í hálfan mánuð að sumri til og taka þátt í unglingavinnu bæjarins. Ungl- ingamir eða bæjarfélag þeirra greið- ir fargjaldið hingað en við greiðum þeim laun og þau vinna við hlið jafnaldra sinna hér. Þeir búa hjá fjölskyldum hér í bæ og hefur tekist einstaklega vel að útvega heimili fyrir þá. Erfiðlega hefur þó gengið að fá hina vinabæina til að gera þetta líka og stafar það aðallega af því að óalgengt er að unglingar fái vinnu í sumarfríi sínu og bæjarfé- lögin standa ekki fyrir unglinga- vinnu í þeirri mynd sem hér tíðkast. Mótið tókst í alla staði mjög vel og léku veðurguðirnir við gestina þann tíma sem þeir dvöldu hérlend- is. Þátttakendur voru sammála um að fundaefni mótsins hefði verið mjög áhugavert og að gagnlegt væri að fá slíkt tækifæri til að skiptast á skoðunum og upplýsingum auk þess að fræðast um stöðu mála annars staðar á Norðurlöndum. Áö á Þingvöllum. ---------M 'iíSBr3 Lagt af staö á Langjökul á vélsleöum. Myndirnar meö frásögninni tók greinarhöfundur. menntamálaráðuneyti og eingöngu hér hefur löggjafinn lögfest og skil- greint allar stöður leikskólans fyrir leikskólakennara. Um kvöldið var síðan þátttakendum boðið til kvöld- verðar í sal Lyfjafræðisafnsins í Nesi. Þar voru haldnar ræður og gjafir veittar en veislustjóri var Jón Hákon Magnússon, forseti bæjar- stjómar. Seinni dagur mótsins var ferða- dagur þar sem bæjarfulltrúar fóru með gesti sína til Þingvalla þar sem áð var og gestum boðnar flatkökur með hangikjöti, hákarl og ískalt lindarvatn beint úr gjánni. Þaðan var haldið að Langjökli þar sem stigið var á vélsleða og haldið á jökul. Veðrið var eins og best verður á kosið, glaðasólskin og heiðríkja og útsýnið sem blasti við ferðalöngum á jökulbungu var stórfenglegt og öllum ógleymanlegt. Ekið var áleið- is að Húsafelli, þaðan að Deildar- tunguhver og Barnafossum og síðan haldið heim á leið. Vinabæjamótinu lauk síðan um borð í m.s. Arnesi, sem sigldi með hópinn út á sundin blá í sólskini og sléttum sjó sem kom sér vel fyrir sjóveika og áhuga- samir ftskimenn fengu að reyna fyr- ir sér í sjóstangaveiði undan strönd 2 1 6
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.