Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Síða 31
ERLEND SAMSKIPTI
eldrum á ísafirði boðið í skólann til að kynna sér sam-
starfsverkefnið þar sem m.a. voru til sýnis frásagnir
grænlenskra bama á umhverfi þeirra í myndverkum, um
leið og íslensku nemendurnir sýndu grænlenskt þjóðlíf
og sögu með leikrænni framsetningu. Af nýlegum heim-
sóknum og viðburðum má nefna heimsókn 20 nemenda
tíunda bekkja til Isafjarðar á Iiðnu sumri, komu 15
manna knattspymuliðsins FC Nanortalik í keppnisferða-
lag til Isafjarðar sumarið 1995 og þátttöku tveggja ís-
firskra tónlistarmanna auk formanns Norræna félagsins
á Isafirði í samnorrænni ráðstefnu um listir og ferðamál
sem haldin var í júní 1995 í Nanortalik.
Samskipti stjórnenda sveitarfélaganna,
starfsfræósla, kynningar o.fl.
Stjómendur Nanortalik hafa með reglulegu ntillibili
heimsótt Isafjörð þar sem upplýsingum hefur verið
miðlað um stjómun og rekstur sveitarfélaganna auk þess
sem rætt er um vinabæjasamskiptin. Framkvæmdastjóri
(kommunaldirektör) Nanortalik, Frank Hedegaard Jörg-
ensen, hefur sérstaklega kynnt sér rekstur og uppbygg-
ingu opinberra stofnana og samtaka sveitarfélaga á
Vestfjörðum auk fjölda fyrirtækja á Isafirði. Viðskipta-
tengsl milli fyrirtækja hafa komist á og grænlensk ung-
menni hafa verið í verklegri þjálfun hjá ísfirskum fyrir-
tækjum. Stjórnendur Isafjarðar hafa greitt götu aðila í
viðskiptaferðum og kynnt
Isafjörð á Grænlandi.
Einnig tekið á móti og átt
þátt í skipulagningu ferða
sendinefnda þaðan, t.d.
atvinnumálanefndar auk
menningar- og fræðslu-
nefndar- KANUKOKA,
grænlenska sveitarstjóm-
arsambandsins, en sú
nefnd kynnti sér á liðnu
sumri uppbyggingu og
fyrirkomulag námskeiða-
halds og endurmenntunar
á Islandi hjá ýmsum
einkaaðilum og félögum
auk sveitarfélaga og ríkisstofnana.
Lokaorö
Vinabæjatengsl Isafjarðar og Nanortalik hafa orðið
báðum aðilum til gagns. Fjölmargir íbúar þessara
byggða hafa bundist vinaböndum. Sú vinátta sýndi sig
best á ögurstundu eftir snjóflóðin ægilegu á Vestfjörðum
á liðnu ári. I kjölfar þeirra beitti vinabæjanefnd
Nanortalik sér fyrir almennri fjársöfnun í Grænlandi fyrir
íbúa Súðavíkur og Flateyrar og safnaðist verulegt fé.
Bæjarmerki Nanortalik. þrír ís-
birnir.
Vinabær á Grænlandi?
Vinabæjanefnd Norræna félagsins
hefur borist erindi frá Grænlensk-ís-
lenska félaginu (KALAK) þar sem
kynnt er beiðni frá tveimur bæjarfé-
lögum á Grænlandi um vinabæja-
tengsl við sveitarfélög hérlendis.
Scoresbysund
Annars vegar er beiðni frá Ittogg-
ortoormiit, Scoresbysundi, sem er
550 manna byggð á austurströnd
Grænlands og þekur rúmlega
200.000 km2 af landi og ís, þar af
aðeins 32.500 km2 íslaust. Bærinn
er mjög einangraður en hefur þó
flugsamgöngur við Island allt árið,
en skipasamgöngur eru einungis í
júlí, ágúst og hluta september. Ibú-
arnir lifa að mestu af veiðum og
flytja t.d. út skinnavörur fyrir um 15
millj. ísl. króna.
Holsteinsborg
Hins vegar er beiðni frá Sisimiut,
Holsteinsborg, sem er rúmlega 5000
manna byggð á vesturströnd og þek-
ur rúmlega 36.000 km2, þar af
17.000 km2 íslaust. Bærinn er annar
stærsti byggðarkjarni á Grænlandi
næst á eftir höfuðstaðnum Nuuk.
Sisimiut nýtur góðs af nálægð við
gjöful fiskimið og þar er mikil tog-
araútgerð, slippur og tvö fisk-
vinnsluhús. Ferðamál hafa síðustu
ár orðið ríkari þáttur í atvinnulífi
byggðarlagsins, m.a. gönguferðir,
sportveiði og hundasleðaferðir.
Vinabæjanefnd Norræna
félagsins
Stjóm sambandsins hefur tilnefnt
Unnar Stefánsson ritstjóra til þess
að eiga sæti af hálfu sambandsins í
vinabæjanefnd Norræna félagsins.
Aðrir í nefndinnni eru Ingimund-
ur Sigurpálsson, bæjarstjóri í Garða-
bæ, og Sigríður Jóhannsdóttir, al-
þingismaður og formaður deildar
Norræna félagsins í Keflavík, skip-
uð af stjórn Norræna félagsins án
tilnefningar, Gylfi Gunnarsson, end-
urskoðandi og fyrrum bæjarritari á
Isafirði, varaformaður deildar Nor-
ræna félagsins í Garðabæ, tilnefndur
af framkvæmdaráði Norræna félags-
ins, og þeir Kristján Guðmundsson,
bæjarfulltrúi í Kópavogi og formað-
ur deildar Norræna félagsins þar, og
Stefán Olafsson, formaður deildar
Norræna félagsins í Mosfellsbæ,
sem kosnir voru á síðasta 'sam-
bandsþingi norrænu félaganna.
Stefán Olafsson er formaður
nefndarinnar.
22 1