Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Síða 39

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1996, Síða 39
ERLEND SAMSKIPTI Pátttaka i COMENIUSI-1 eftir landshlutum 1996 -'97 Samtals ST ÞT UH Reykjavík 10 2 6 2 Reykjanes 3 1 2 Vesturland 1 1 Vestfirðir 2 2 Norðurland vestra Norðurland eystra 4 3 1 Austurland 3 1 2 Suðurland 5 1 3 2 ST (stýriskóli), ÞT (þátttökuskóli), UH (undirbúningsheimsókn). hafa 23 kennarar fengið styrk til að sækja tengslaráðstefnur erlendis en þær eru haldnar í því skyni að stofna ný samstarfsnet. Helstu vandamál og lausnir til úrbóta Ekki hefur alls staðar reynst jafn auðvelt að fá skóla til þátttöku. Framkvæmdastjórn ESB stefndi að því að um 10.000 skólar kæmust í samstarfsverkefni fyrir lok þessa árs, eða 3% allra skóla í EES. í júlí voru 1000 skólar komnir í gild sam- starfsverkefni sem er um 10% af því sem stefnt var að. Sérstaklega hefur stærri löndunum reynst erfitt að virkja skólana. Miðað við það má telja að sá árangur sem náðst hefur á íslandi sé mjög góður. Hlutur COMENIUSAR-I er 13,7% af fjár- lögum SÓKRATESAR. Úthlutun til Islands fyrir hvert skólaár hefur verið um 4,5 m i 11 j ó n i r króna. Islenskir þátttakendur í COMENI- USI hafa flestir lýst ánægju sinni með þá möguleika sem áætlunin felur í sér og þegar hefur mikill fjöldi nemenda notið góðs af þátt- töku skólanna. Helstu erfiðleikar eru krafa um mótframlög frá skólanum. Brýnt er að yfirstjórn skólans sé virk í samstarfinu og geri sér grein fyr- ir í hverju verk- efnið er fólgið. Umsjónarkennar- inn má ekki ein- angrast með verkefnið í skól- anum og hann þarf stuðning frá samkennurum svo og skóla- stjóra. I raun má segja að þátttaka í slíku verkefni þurfi að vera hluti af heildarstefnu sem skólar móta sér og falla eðli- lega að því starfi sem þar fer fram. Menn hafa velt því fyrir sér hvort unnt væri að koma betur til móts við þá skóla sem taka þátt í samstarfs- verkefnum í COMENIUS- AR-áætluninni. Nauðsynlegt er að skólum verði gert auðveldara með einhverjum fjárframlögum innanlands frá að sýna fram á 50% mótframlag við styrk úr COMENI- USI. Sérstaklega er þó brýnt að kennurum sé gert kleift að taka þátt í undirbúningsheimsóknum með því að forfallakennsla sé tryggð, ef heimsóknin á sér stað á starfstíma skóla. Sveitarstjórnir þyrftu að íhuga hvernig þær geti komið til móts við þarfir skólanna að þessu leyti. Ljóst er að þátttaka í alþjóða- samstarfi er ábyrgðarmál fyrir skólasamfélagið í heild og þarf því að taka alvarlega og móta þarf ákveðna stefnu í þeim efnum. EES-samningurinn gerir íslend- ingum kleift að standa jafnfætis löndum ESB í SÓKRATES-áætlun- inni og er þarna um að ræða tæki- færi fyrir íslenska menntakerfið í heild sinni bæði til að miðla af reynslu sinni og til að kynnast nýj- um viðhorfum og aðferðum. Ljóst er að slík samvinnuverkefni geta virkað sem vítamínsprauta fyrir skólastarfið og að COMENIUS býður upp á möguleika sem annars væm ekki til staðar. A liðnu ári hef- ur tekist að virkja marga aðila og nýtur COMENIUSAR-verkefnið velvilja hjá kennurum og öðru skólafólki. Mikilvægt er að viðhalda þessum áhuga og koma til móts við þá sem leggja á sig bæði vinnu og tíma í þágu alþjóðavæðingar skól- anna. íslenska sendinefndin í Helsinger með kynningarbás. Frá vinstri Kristín Hafsteinsdóttir, kennari i Hjallaskóla i Kópavogi, Fjóla Ottósdóttir, kennari í grunnskólanum Skógum, Svanhildur Ólafsdóttir, kennari i grunnskóla Austur-Landeyjahrepps, og Hólmfríður Sigurðardóttir, kennari viö Lundarskóla á Akureyri. Greinarhöfundur tók myndina. Kennarar frá tíu Evrópurikjum á tengslaráðstefnu í Helsingor í Danmörku. Slíkir fundir eru kveikjan að mörgum samstarfsverk- efnum COMENIUSAR. 229

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.