Sveitarstjórnarmál - 01.06.1998, Blaðsíða 12
SAMEINING SVEITARFÉLAGA
Sameining þriggja hreppa á Héraði
Amór Benediktsson oddviti
í upphafi starfs míns sem oddvita Jökul-
dalshrepps fannst mér mjög fráleitt að
stefna að sameiningu sveitarfélaga, heldur
þyrfti að fjölga samstarfsverkefnum. Sveit-
arfélög á Héraði hafa haft samstarf um
mörg verkefni um langt árabil sem gengið
hefur með ágætum. Samstarfsverkefni, sem
unnið hefur verið að með þátttöku Hlíðar-,
Jökuldals- og Tunguhrepps, tel ég hafa
byrjað með samstarfi áðurnefndra hreppa
þegar elstu bekkir grunnskóla úr Jökuldal
fóru að sækja skóla að Brúarási um 1980.
Síðar fjölgaði samstarfsverkefnum þessara hreppa; þar
má nefna rekstur leikskóla haustið 1992, næst kom sam-
eiginleg félagsmálanefnd, þá var komið að stofnun og
rekstri tónlistarskóla og einnig farið að ræða um bygg-
ingu íþróttahúss við Brúarás sem gerður var samstarfs-
samningur um 1994-1995 og er sú framkvæmd langt
komin. Á jarðhæð hússins eru kennslustofur, skrifstofa
sveitarfélagsins og snyrtiaðstaða.
af henni. Árið 1993 komst á sameiginlegur
hreppsnefndarfundur Hlíðar-, Jökuldals- og
Tunguhreppa þar sem farið var að leita
formlega viðræðna um sameiningu hrepp-
anna; þá var farið að setja á blað tölulegan
ávinning af sameiningunni. Það kom í
minn hlut að kynna þessa úttekt í minni
sveitarstjóm. Uttektin var talin mjög áróð-
urskennd og marklaus af nokkrum hrepps-
nefndarmönnum í minni sveitarstjóm og
þar með náði ég ekki árangri í það skiptið.
Næst var tekið til við tilraun til samein-
ingar þessara þriggja hreppa eftir sameiginlegan íbúa-
fund á Skjöldólfsstöðum 2. maí 1996. Fyrr sama vetur
voru komnar óskir úr Tunguhreppi um sameiningu
hreppanna. Hlíðarmenn vom alltaf mjög fylgjandi sam-
starfi og sameiningu.
Sameiningarferlið hófst með tilnefningu tveggja
manna úr hverjum hreppi í sameiningamefnd. Áfram var
Upp úr árinu 1990 eða á öðru
kjörtímabili mínu í sveitarstjórn
starfaði ég í svæðisstjóm oddvita
á Héraði. Þá varð ég alltaf betur
og betur meðvitaður um að sam-
starfið gæti verið jafngott þótt
sveitarfélögin yrðu stærri því
þarfir íbúanna væm svo svipaðar.
Þá kom að því að ég sannfærðist
um að auðveldara væri að fækka
einingum og reka þær í stærri
heildum, þar sem allir þessir odd-
vitar vom að vinna sömu vinnuna
og verja fjárhag sinnar sveitar,
jafnvel hver fyrir öðrum, ekki síst
þegar verkefnum fjölgaði.
í fyrstu atkvæðagreiðslunni um
sameiningu hreppa á Héraði vom
tillögurnar kolfelldar. Þó bar at-
kvæðagreiðslan 1993 ákveðinn
árangur þar sem farið var að leita
leiða til sameiningar í framhaldi
Hreppsnefnd á fyrsta fundi sínum. Á myndinni eru, talin frá vinstri, Sigrún Benediktsdóttir,
Guögeir Ragnarsson, Ásmundur Þórarinsson, Arnór Benediktsson oddviti, Sigurður Jóns-
son, Stefán Geirsson og Sigvaldi Ragnarsson.