Sveitarstjórnarmál - 01.06.1998, Blaðsíða 16
SAMEINING SVEITARFÉLAGA
I I iHótn 247
Á Egilsstööum eru vegamót. Ljósm. U. Stef.
þátt í sameiningarferlinu og jafnframt var boðað til
kynningarfundar um efnið.
A þessum tíma var verið að undirbúa sameiningu
Valla-, Skriðdals- og Fljótsdalshrepps og þótti eðlilegt
að sú vinna héldi áfram og eins kom fram að til stæði að
undirbúa sameiningu Jökuldals-, Hlíðar- og Tungu-
hrepps. Af sameiningu Valla-, Skriðdals- og Fljótsdals-
hrepps varð ekki og eftir atkvæðagreiðsluna óskaði
sveitarstjórn Vallahrepps og síðar Skriðdalshrepps eftir
að taka þátt í þeirri vinnu sem samstarfsnefnd um sam-
einingu Út-Héraðs hafði mótað og að eiga aðild að sam-
einingunni.
Samstarfsnefnd um sameiningu fimm
sveitarfélaga
Samstarfsnefndin um sameiningu Hjaltastaðar- og
Eiðaþinghár, Egilsstaðabæjar, Valla- og Skriðdalshrepps
vann að undirbúningi atkvæðagreiðslu um sameiningu
þessara sveitarfélaga og jafnframt að tillögum að skipu-
riti nýs sveitarfélags.
Tillögur þær sem sameiningarnefndin lagði til og
samþykktar voru í sveitarstjómunum voru eftirfarandi:
• Gerð var tillaga um að sameiningin yrði vorið 1998
og kosið til nýrrar níu manna sveitarstjómar í sveitar-
stjómarkosningunum 23. maí.
• Varðandi nafn hins nýja sveitarfélags var lagt til að
skoðanakönnun færi fram samhliða atkvæðagreiðslu
um sameiningu.
• Ef tillagan yrði felld í einu eða fleiri sveitarfélögum
skyldi strax tekin um það ákvörðun í hverju hinna
sveitarfélaganna hvort greiða skyldi atkvæði á ný um
sameiningu þeirra sveitarfélaga sem samþykktu sam-
eininguna.
• Að hið nýja sveitarfélag taki yfir allt það land sem
tilheyrði áður hinum fimm áðurgreindum sveitarfé-
lögum.
• Að eignir, skuldir, réttindi og skyldur, sem tilheyra
sveitarfélögunum, skuli falla til hins nýja sveitarfé-
lags.
• Að skjöl og bókhaldsgögn sveitarfélaganna skuli af-
hent hinu nýja sveitarfélagi til varðveislu.
• Ef sameining yrði samþykkt þá yrði mynduð sam-
starfsnefnd skipuð einum fulltrúa frá hverjum sveita-
hreppanna og tveimur fá Egilsstaðabæ ásamt bæjar-
stjóra sem vinni að samræmingu og undirbúningi sam-
einingarinnar með tilliti til fjárskuldbindinga og samn-
inga sem sveitarfélögin væru aðilar að, samnýtingu
mannvirkja, frekari útfærslu skipurits og stjómsýslu.
• Að ef samstaða næðist hjá sveitarstjómum á Héraðs-
svæðinu á árinu 1997 um stofnun einnar félagsmála-
nefndar fyrir allt svæðið yrði hvert sveitarfélag hins
væntanlega nýja sveitarfélags aðili að þeirri nefnd.
• Og að lokum lagði samstarfsnefndin til í þeim gögn-
um sem lögð voru fyrir sveitarstjórnirnar, að þær
lýstu sig hlynnta því að á Héraðssvæðinu yrði eitt
sveitarfélag og að sameining þessara sveitarfélaga
væri skref í þá átt.
Um þetta voru greidd atkvæði og jafnframt var kynnt
viljayfirlýsing sveitarstjómanna um skipan helstu mála-
flokka í hinu nýja sveitarfélagi.
Sameining samþykkt 6. september 1997
Greidd voru atkvæði um sameininguna hinn 6. sept-
ember 1997 og var hún samþykkt í öllum sveitarfélögun-
um fimm. Tilnefnt var í nýja nefnd til þess að vinna að
undirbúningi sameiningarinnar. Helgi Halldórsson, bæj-
arstjóri á Egilsstöðum, stýrði þeirri nefnd sem hélt reglu-
lega vinnufundi sl. vetur. Helstu verkefni hennar voru
málefni skólanna og frekari útfærsla á stjómsýslu hins
nýja sveitarfélags, þ.á m. starfsmannamál.
Tillögur að nafni á hið sameinaða sveitarfélag höfðu
borist samstarfsnefndinni og í atkvæðagreiðslunni hinn
6. september var valið um 13 nöfn samkvæmt sk. raðvali
sem Bjöm S. Stefánsson vann úr. Það var svo hlutverk
sameiningamefndarinnar að koma með tillögu að nafni
hins nýja sveitarfélags og var nafnið Hérað einróma
samþykkt í sameiningamefndinni þótt það stangaðist á
við núgildandi sveitarstjómarlög. I ljósi tillagna í fmm-
varpi að nýjum sveitarstjómarlögum treysta menn því að
nafnið standi áfram.
Ljóst er að mikil umskipti verða á fulltrúum í nýrri
sveitarstjóm. Kemur hvort tveggja til að við sameining-
una koma nýir menn og margir núverandi sveitarstjóm-
armanna gefa ekki kost á sér til áframhaldandi starfa.
Nýrrar sveitarstjómar bíða mörg krefjandi verkefni til
úrlausnar en jafnframt verður næsta kjörtímabil spenn-
andi fyrir alla þá sem koma að mótun og ákvarðanatöku.
Næsta kjörtímabil getur því skipt sköpum hvað varðar
uppbyggingu og íbúaþróun í framtíðinni.
Með von um gæfu og gengi í krefjandi verkefnum.