Sveitarstjórnarmál - 01.06.1998, Page 57
ORYGGISMAL
í almennum ákvæðum um vinnu
allra ungmenna undir 18 ára aldri
segir m.a. að hún skuli framkvæmd
á þann hátt að öryggi og heilbrigði
ungmenna sé ekki hætta búin. At-
vinnurekandinn skal áður en ung-
menni hefja störf sjá um að gripið
sé til viðeigandi ráðstafana á grund-
velli mats á þeirri áhættu sem starf
getur skapað. Meta skal m.a. að-
stæður á vinnustað, eðlis-, efna- og
líffræðilegra áhrifavalda, notkun
búnaðar sem tengist starfinu, s.s.
vélar, tæki og áhöld. Einnig skal
meta skipulag vinnuferla, vinnutil-
högun og hvemig þjálfun og undir-
búningi undir staifið er háttað. At-
vinnurekanda ber að kynna foreldr-
um barna, eða forráðamönnum,
hugsanlega áhættu og allar ráðstaf-
anir sem gerðar eru til að tryggja ör-
yggi þeirra og heilbrigði.
Atvinnurekandinn skal tryggja að
ungmenni fái fullnægjandi kennslu
og leiðbeiningar til að tryggja ör-
yggi og heilbrigði. Vinnan skal fara
fram undir virku og viðeigandi eftir-
liti af einstaklingi sem orðinn er 18
ára og hefur nægjanlega innsýn í
vinnuna.
Almennt skal vinnutími ung-
menna skipulagður þannig að hann
fari ekki yfir 8 tíma á dag og 40
tíma á viku þegar um er að ræða 15
ára, en 7 tíma á dag og 35 tíma á
viku hjá 14 ára bömum. I sérstökum
tilvikum má víkja frá tíma-
ákvæðunum, en ungmenni mega þó
aldrei vinna lengur en 48 stundir á
viku að meðaltali yfir 4 mánuði.
Sérstök ákvæði eru um kvöld- og
næturvinnu.
í ákvæðum sem varða sérstaklega
vinnuskólana segir að atvinnurek-
andi skuli við ráðningu bama sem
em undir 15 ára aldri eða þeirra sem
eru á skólaskyldualdri kynna for-
eldrum ráðningarkjör, þar með talið
lengd vinnutíma sem og tíðni
óhappa og slysa sem hugsanlega
tengjast staifinu. Þess skal vandlega
gætt að ungmennin fari nákvæm-
lega eftir fyrirmælum um notkun
hlífa til öryggis og vemdar. Leið-
beinendur í vinnuskólum sveitarfé-
laga skulu hafa fengið sérstakan
undirbúning og fræðslu um hlutverk
sitt, um atriði eins og öryggismál,
skyndihjálp og líkamsbeitingu.
Sérstaklega eru nefnd dæmi um
störf sem ungmenni í vinnuskólum
mega vinna undir leiðsögn leiðbein-
enda.
Dæmi: 14 ára og eldri mega vinna viö:
• hreinsa, sópa og tína rusl
• raka eftir slátt
• reyta arfa og illgresi
• hreinsun í gróöurbeöum og gróöurumhiröu
• gróöursetningu
• minniháttar hreingerningar
• málningarvinnu með vatnsmálningu
Dæmi: 15 ára og eldri mega vinna viö:
• slátt í göröum meö vélknúinni handsláttu-
vél með handrofa (öryggisskór, heyrnar-
hlífar, andlitshlíf)
• slátt meö vélorfi í görðum (öryggisskór,
heyrnarhlífar, andlitshlíf)
• aö dreifa tilbúnum áburöi meö handafli
• aö bera húsdýraáburð aö plöntum
• aðstoö á gæsluvöllum
• aöstoö í skólagöröum
Dæmi: 16 ára og eldri mega vinna viö:
• slátt á opnum svæöum meö vélknúinni
handsláttuvél meö handrofa (öryggis-
skór, heyrnarhlífar, andlitshlíf)
• slátt á opnum svæöum með vélorfi (ör-
yggisskór, heyrnarhlífar, andlitshlíf)
• málningarvinnu og fúavörn meö um-
hverfisvænum efnum
Ef óskað er frekari upplýsinga má
hafa samband við eitthvert eftirtal-
inna: Hersi Oddsson, sem er í stjóm
Vinnueftirlitsins tilnefndur af Sam-
bandi íslenskra sveitarfélaga, en til
vara er Guðrún Hilmisdóttir, verk-
fræðingur á skrifstofu sambandsins.
Magnús I. Erlingsson, lögfræðingur
hjá Vinnueftirliti ríkisins, hefur um-
sjón með reglugerðarvinnunni.
1 1 9