Sveitarstjórnarmál - 01.06.1998, Síða 64
HAFNAMAL
Ársfundur Hafnasambands sveitarfélaga
9.—10. október 1997
Ársfundur Hafnasambands sveit-
arfélaga, hinn 28. í röðinni, var
haldinn á Hótel Sögu í Reykjavík
dagana 9. og 10. október 1997. Árs-
fundurinn var mjög vel sóttur því
samtals voru 145 fulltrúar skráðir á
fundinn.
Ársfundurinn hófst með því að
Kristján Þór Júlíusson, formaður
hafnasambandsins, setti fundinn að
viðstöddum ársfundarfulltrúum,
borgarfulltrúum og þingmönnum.
Ársfundurinn var haldinn í boði
hafnarstjórnar Reykjavíkur í tilefni
af áttatíu ára afmælisári Reykjavík-
urhafnar. Ámi Þór Sigurðsson, for-
maður hafnarstjórnar Reykjavíkur,
ávarpaði fundinn og Guðrún
Ágústsdóttir, forseti borgarstjómar,
og Sigrún Magnúsdóttir borgarfull-
trúi og varaformaður hafnarstjómar
Reykjavíkur, voru kosnar fundar-
stjórar. Fundarritarar voru kosnir
þeir Ágúst Ágústsson og Högni
Hróarsson, starfsmenn Reykjavíkur-
hafnar.
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra og Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir borgarstjóri fluttu ávörp og var
síðan gengið til dagskrár.
1 skýrslu stjórnar fyrir starfsárið
1996-1997 kom m.a. fram að
stjórninni þótti vel við hæfi að
heiðra fyrsta formann Hafnasam-
bands sveitarfélaga á áttugasta af-
mælisári Reykjavíkurhafnar og
votta Gunnari B. Guðmundssyni og
höfninni hans virðingu sína með
þeim hætti að gera hann að heiðurs-
félaga sambandsins. Þakkaði Gunn-
ar B. Guðmundsson þann heiður.
Kynntir voru ársreikningar hafna-
sambandsins og ályktunartillögur
stjórnar. Að því búnu fluttu þeir
Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akra-
nesi og stjómarmaður í hafnasam-
bandinu, og Einar K. Guðfinnsson,
Stjórnendur og ritarar 28. ársfundarins. Á myndinni eru, taliö frá vinstri, Guörún
Ágústsdóttir, forseti borgarstjórnar Reykjavíkur, Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi,
Kristján Þór Júlíusson, formaöur hafnasambandsins, Árni Þór Sigurðsson, varafor-
maöur hafnasambandsins, og fundarritararnir Ágúst Ágústsson og Högni Hróarsson.
Hluti fulltrúa á ársfundinum. Viö boröiö fremst á myndinni sitja, taliö frá vinstri, Ásgeir
Hjálmarsson, hafnarvöröur á Djúpavogi, Ólafur Ragnarsson, sveitarstjóri á Djúpavogi,
Rúnar Björgvinsson, sveitarstjóri Breiödalshrepps, og Albert Kemp, oddviti og formaö-
ur hafnarstjórnar Búöahrepps. Viö næsta borö sitja, einnig taliö frá vinstri, Björn Arn-
aldsson, hafnarstjóri í Snæfellsbæ, Már Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóri Hafnar-
fjaröarhafnar, Siguröur Hallgrímsson, yfirmaöur þjónustusviös Hafnarfjaröarhafnar,
Eyjólfur Sæmundsson, formaöur stjórnar Hafnarfjaröarhafnar, og Ingvar Viktorsson,
bæjarstjóri og hafnarstjóri í Hafnarfiröi. Myndirnar meö frásögninni tók Gunnar G. Vig-
fússon.
1 26