Sveitarstjórnarmál - 01.08.1999, Qupperneq 29
UMHVERFISMAL
eftir að Guðmundur Sigvaldason
tók við nýju starfi verkefnisstjóra á
vordögum. Uttektin tekur til 20
málaflokka og er undirbúningur að
markmiðssetningu á grundvelli
hennar þegar hafinn. Sérstök stjóm-
arnefnd um umhverfisátak hefur
verið starfandi á Akureyri allt frá
árslokum 1997 og þann 4. septem-
ber 1998 staðfesti umhverfisráð-
herra aðalskipulag bæjarins, það
fyrsta hérlendis sem tók sérstakt
mið að hugmyndafræðinni um sjálf-
bæra þróun. Með skipulaginu var
lagður traustur grunnur að uppbygg-
ingu Staðardagskrár 21.
1 Snæfellsbæ er vinna við mark-
miðssetningu í fullum gangi undir
traustri stjóm Guðlaugs Bergmann
verkefnisstjóra. Byggt er á hug-
mynd um svokallað „útópíuþjóðfé-
lag“, þ.e. framtíðarsýn um samfé-
lagsgerð í sveitarfélaginu á fyrri
hluta næstu aldar.
I tímaáætlun verkefnisins er gert
ráð fyrir að markmið og fram-
kvæmdaáætlanir liggi fyrir seint í
september og að í nóvemberlok
verði búið að samþykkja þær í sveit-
arstjórnum sem fyrstu forskriftina
að sjálfbærri þróun viðkomandi
sveitarfélaga á næstu öld.
Þátttaka almennings
Virk þátttaka almennings er einn
af homsteinunum í hugmyndafræð-
inni um sjálfbæra þróun. Ymsir hafa
haldið því ffam að í gerð Staðardag-
skrár felist stórkostleg tækifæri í átt
að nýju lýðræði, þátttökulýðræði,
sem að hluta muni leysa hið hefð-
bundna fulltrúalýðræði af hólmi.
Staðardagskrá 21 er áætlun alls sam-
félagsins og því þurfa allir hópar
samfélagsins að koma að verkinu,
hvort sem þeir em kjömir til þess
með hefðbundnum hætti eður ei.
Nokkur af þátttökusveitarfélögun-
um hafa þegar gert ráðstafanir til að
virkja almenning til þátttöku í Stað-
ardagskrárstarfmu. Verða hér nefnd
nokkur dæmi um slíkt en taka ber
fram að ekki er um tæmandi upp-
talningu að ræða:
Á Akranesi var haldinn almennur
kynningarfundur í byrjun febrúar.
Þar var íbúum gerð grein fyrir Stað-
ardagskrárverkefninu og hug-
myndafræðinni sem að baki liggur.
Fulltrúar almennings og atvinnulífs-
ins eiga einnig sæti í stýrihópi verk-
efhisins.
Á Hólmavík var efnt til opins um-
ræðufundar um umhverfismál á
Degi umhverfisins 25. apríl. í
tengslum við þennan dag efndi
Staðardagskrárhópurinn á staðnum
til teiknimyndasamkeppni í gmnn-
skólanum. Þrjár myndir vom síðan
valdar til að prýða veggspjöld og
póstkort með yfirskriftinni „Um-
hverfið og ég“. Veggspjöldin hanga
nú á flestum opinbemm stöðum á
Hólmavík og póstkortin em til sölu í
Upplýsingamiðstöð ferðamanna á
staðnum.
Á Húsavík stóð Staðardagskrár-
nefndin fyrir ráðstefnu um sorpmál í
september 1998 og annarri um um-
hverfismál almennt í febrúar. Síðari
ráðstefnuna sóttu um 100 manns.
Þar var m.a. rætt um skipulagsmál,
landgræðslu og landeyðingu, veðr-
áttu, umhverfisvæna orkukosti og
fleira sem varðar búsetu á Húsavík.
Einnig stóð nefndin um tíma fyrir
vikulegum umræðufundum á veit-
ingahúsinu Gamla Bauk.
I Hveragerði hafa skólamir tekið
virkan þátt í Staðardagskrárstarfmu.
Gerður hefur verið sérstakur sam-
starfssamningur um umhverfis-
fræðslu á milli Garðyrkjuskóla rík-
isins og gmnnskólanna í Hveragerði
og Ölfúsi.
I Reykjanesbæ var haldinn sér-
stakur kynningarfundur í febrúar,
þar sem starfsmönnum og aðstand-
endum fyrirtækja, félagasamtaka og
stofhana gafst kostur á að kynna sér
verkið og skrá sig til þátttöku í
vinnuhópum til að fjalla um ein-
staka málaflokka. Þetta gafst vel og
leiddi til allnokkurrar þátttöku al-
mennings í hópum sem unnu að út-
tekt á núverandi stöðu. Verkefnið
var einnig kynnt í dreifibréfum.
í Hafnarfirði hefúr verið gerð sér-
stök áætlun sem miðar að þvi að
koma á formlegu samráði við al-
menning. Sérstöku umhverfisþingi
er ætlað að vera samstarfsvettvang-
ur fólks frá sem flestum stigum
samfélagsins.
Ráöstefna 17. ma/
Þann 17. maí 1999 var haldin ráð-
stefha fyrir fúlltrúa þátttökusveitarfé-
laganna. Gerð er grein fyrir ráðstefn-
unni annars staðar í þessu tölublaði.
Heimasíöa
Þann 25. mars sl. var opnuð sér-
stök heimasíða fyrir íslenska Staðar-
dagskrárverkefnið. Þar er gerð grein
fyrir hugmyndafræði og tildrögum
verkefnisins, aðferðafræði þess rak-
in, birtur listi yfir þátttakendur og
sagt frá því nýjasta sem er að gerast
í verkefninu á hverjum tíma. Á síð-
unni er einnig að finna tengla á
ýmsar innlendar og erlendar vefsíð-
ur um umhverfismál. Slóðin er:
http://www.samband.is/dagskra21.
Hönnun og uppsetning síðunnar var
í höndum verkefnisstjóra Staðardag-
skrárverkefnisins, en vistun hennar
er kostuð af Skímu ehf. Þegar þetta
er ritað hafa 592 gestir heimsótt síð-
una og situr hún í efsta sæti á vin-
sældalista umhverfisvefsins,
(http://www.umvefur.is). Þá hafa
143 gestir heimsótt enska útgáfu
síðunnar þegar þetta er ritað.
Næstu skref
Eins og fram hefur komið er stefnt
að því að stjómvöld í þátttökusveit-
arfélögunum samþykki l. útgáfuna
af Staðardagskrá 21 í lok nóvember
á þessu ári. Frá þeim tíma mun dag-
skráin gilda sem heildarstefnumótun
í viðkomandi sveitarfélögum til
langs tíma. Hinu má þó ekki gleyma
að í þessu felst í raun aðeins fyrsta
skrefið. Eftir að áætlunin hefur verið
samþykkt er eftir að hrinda henni í
framkvæmd. Það er fyrst og fremst
verkefni næstu aldar. Ennfremur er
nauðsynlegt að Staðardagskrárverk-
efni sveitarfélaganna séu í stöðugri
endurskoðun í takt við breytta tíma
og nýjar áherslur.
Skrifað i Reykjavík 9. júli 1999
1 55