Sveitarstjórnarmál - 01.08.1999, Page 45
F U LLTR UARAÐS F U N DI R
á árunum 1987-1998, ræddi tekju-
möguleika einstakra sveitarfélaga
sem hann kvað óháða stærð þeirra og
sagði jafnframt að hagur minnstu
sveitarfélaganna hefði heldur
vænkast síðustu árin.
Hann gerði loks samanburð á um-
fangi og skiptingu skatttekna sveitar-
félaga í nokkrum Evrópuríkjum og
lagði áherslu á að tilvist sveitarfélag-
anna tryggði valddreifmgu í landinu.
Skýrt þyrfti að kveða á í lögum um
verkefni og tekjuöflunarleiðir sveit-
arfélaganna.
I umræðum ræddi Bragi Michaels-
son, bæjarfulltrúi í Kópavogi, mál-
efni Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og
taldi að endurskoða þyrfti reglur
sjóðsins með tilliti til jöfnunarað-
gerða vegna reksturs grunnskóla.
Frá fundi fulltrúaráðsins. Fjórir fulltrúar höfuðborgarinnar við borð, talið frá vinstri,
Helgi Hjörvar, núv. forseti borgarstjórnar og borgarfulltrúarnir Sigrún Magnúsdóttir,
Helgi Pétursson og Alfreð Þorsteinsson.
Viömiöunarreglur og gjaldskrá vegna
nemenda sem vistaóir eru utan lögheim-
ilissveitarfélags
Sigurjón Pétursson, deildarstjóri grunnskóladeildar
sambandsins, kynnti tillögur að nýjum reglunt og nýja
uppbyggingu gjaldskrár vegna nemenda sem vistaðir
eru í skóla utan lögheimilissveitarfélags. Starfshópur,
sem stjóm sambandsins hafði skipað í apnl 1998, samdi
þessar nýju reglur. Helstu breytingar eru þær að nú
verður meginregla að sveitarfélög taka við nemendum
úr öðrum sveitarfélögum ef þess er óskað og gjald-
skránni er breytt þannig að um þrjá gjaldflokka verður
að ræða þar sem tekið er tillit til skólastærðar.
Lægsta gjaldið er fyrir skóla með 20 nemendur eða
fleiri í bekkjardeild. Miðgjaldið er fyrir skóla þar sem
nemendur em 10-19 í árgangi og hæsta gjaldið er fyrir
skóla með færri en 10 nemendur í árgangi.
Tillögunum, sem var dreift á fúndinum, var vísað til
allsheijamefndar fúndarins.
Grunnskólabyggingar, framlög Jöfnunar-
sjóös sveitarfélaga
Húnbogi Þorsteinsson, ráðuneytisstjóri í félagsmála-
ráðuneytinu og formaður ráðgjafamefndar Jöfnunarsjóðs
sveitarfélaga, gerði grein fyrir þeim
fjármunum sem jöfnunarsjóðurinn
ver til að styrkja byggingu grunn-
skóla hjá sveitarfélögunum. Hann
gerði jafnframt grein fyrir þeim regl-
um sem um málið gilda.
Vestlendingar á fundi fulltrúaráðsins, talið frá vinstri, Guðmundur Guðmarsson, forseti
bæjarstjórnar í Borgarbyggð, Inga Sigurðardóttir, bæjarfulltrúi á Akranesi, Þórir Jóns-
son, hreppsnefndarmaður í Borgarfjarðarsveit, Gunnar Sigurðsson, bæjarfulltrúi á
Akranesi, og Björg Ágústsdóttir, sveitarstjóri í Grundarfirði og formaður Samtaka sveit-
arfélaga í Vesturlandskjördæmi (SSV).
Fráveituframkvæmdir
sveitarfélaga, endur-
greiöslur ríkisins
Knútur Bruun, bæjarfulltrúi í
Hveragerði og fúlltrúi sambandsins í
fráveitunefnd umhverfisráðuneytis-
ins, gerði grein fyrir starfi nefndar-
innar, stöðu fráveituframkvæmda og
lögum sem snúa að málaflokknum.
Kvað hann framkvæmdir sveitarfé-
laganna í fráveitumálum hafa farið
hægar af stað en gert hefði verið ráð
fyrir en fyrirsjáanleg væri mikil fjár-
vöntun sveitarfélaga til þessa máh
flokks. Knútur kvað það skoðun sína
1 7 1