Sveitarstjórnarmál - 01.08.1999, Side 50
MENNINGARMÁL
Bóka- og byggðasafn Norður-
Þingeyinga á Kópaskeri
Kristveig Bjömsdóttir sajhvörður, Valþjófsstöðum
Á safnadegi árið 1996.
Hinn 28. júlí 1991 var Byggða-
safn Norður-Þingeyinga formlega
opnað almenningi. Var það stór
áfangi í sögu þess, þar sem söfnun
muna hafði þá staðið í u.þ.b. 30-40
ár, en á því tímabili ekki talið fært
að ráðast í byggingu né fyndist
hentugt húsnæði sem hýst gæti safn-
ið. Það var annars frá upphafi
áformað að væntanlegt hús gæti
rúmað bæði byggðasafn og sýslu-
bókasafn, sem Helgi í Leirhöfn
(Kristjánsson) og Andrea Jónsdóttir,
kona hans, höfðu formlega gefið
sýslunni þegar árið 1952. Helgi
hafði lánað húsnæði heima hjá sér
og haft umsjón með hinu merka
safni allt frá byrjun, en sannarlega
var orðið tímabært að korna því í
varanlegt húsnæði.
Arið 1982 var tekinn í notkun nýr
bamaskóli í miðju þorpsins á Kópa-
skeri og fljótlega eftir það ákvað
hreppsnefnd Presthólahrepps að
leggja gamla bamaskólann til sem
húsnæði undir hvort tveggja, bóka-
og byggðasafn, og er það síðan
hvort öðm svo nátengt að hvomgt er
hægt að nefna án þess að hitt komi
við sögu.
Fljótlega gekk sýslan öll í það að
ljármagna lagfæringar á húsnæðinu
og var það meðal annars klætt utan;
einnig lögðu ýmsir til fjárhæðir,
ekki síst burtfluttir N-Þingeyingar,
einnig með dálitlu fjármagni frá rík-
inu nú síðustu árin. Byijað var á því
að innrétta fyrir bókasafnið og þvi
komið fyrir, útlánasafni á jarðhæð,
en hinu stórmerka safni Helga á efri
hæð. Að því búnu var innréttaður
salur á efri hæð, í eldri hluta húss-
ins, þ.e. fjögur herbergi og gangur
gert að einu, fyrir byggðasafn. Var
Úr Byggðasafni N-Þingeyinga.
því verki lokið árið 1989 og var þá
strax hafist handa við að taka upp úr
kössum það sem safnast hafði í ár-
anna rás, koma því fyrir og merkja.
Fljótlega bættist verulega í safnið,
munir úr ýmsum áttum, þ. á m. mik-
ið af vönduðu handverki kvenna frá
19. öld og fyrstu þrem áratugum
þessarar aldar. Mun það skapa safn-
inu nokkra sérstöðu og hefúr vakið
athygli hve mikið hefur borist af
slíku, en annars hefur safnið að
1 76