Sveitarstjórnarmál - 01.02.2001, Qupperneq 46
FRÁ LANDSHLUTASAMTÖKUNUM
Aðalfundur SSV 2000
haldinn að Laugum í Sælingsdal 27. október
Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi
(SSV) fyrir árið 2000 var haldinn að Laugum í Sælings-
dal 27. október.
Á fundinum var samþykkt að stofna Samstarfsvett-
vang Vesturlands þar sem fulltrúar sveitarfélaga, ríkis,
stoíhana og félagasamtaka geta fjallað sameiginlega um
málefni Vesturlands sem heildar. Stjóm SSV fer með
stjóm samstarfsvettvangsins.
Hugmyndin að slíkum vettvangi er byggð á fyrir-
komulagi sem hefur gefist vel, m.a. í Bandaríkjunum,
Kanada, Skotlandi og írlandi. I þessum ríkjum segir í
greinargerð með tillögunni um slíkan samstarfsvettvang
að stofnað hafi verið til svæðisbundins samstarfs sveitar-
og héraðsstjóma, annarra opinberra aðila, fulltrúa at-
vinnulífsins og jafnvel félagasamtaka. Samstarf þetta sé
byggt upp með mismunandi hætti og áherslur ekki alltaf
þær sömu í starfseminni, því aðstæður em oft ólíkar eftir
löndum eða landsvæðum. Þó virðist þrjú markmið með
slíku samstarfi vera einkennandi mjög víða:
1. Efling byggðarlaganna/sveitarfélaganna.
2. Efling atvinnulífsins.
3. Efling þekkingar og menntunar.
Yfirleitt er almenn starfsemi fjármögnuð með opin-
bem fé, en framlög atvinnulifs og félagasamtaka helst
bundin þátttöku í einstökum verkefhum.
Samstarfsvettvangi Vesturlands er ætlað að skapa
þann breiða umræðuvettvang sem hefúr vantað um mál-
efni Vesturlands sem heildar. Hugmyndin er að sam-
starfsvettvangurinn verði frjálst samstarf milli sjálf-
stæðra og óháðra aðila er byggist á opnum og hrein-
skilnum rökræðum og gagnkvæmum skilningi á sameig-
inlegum hagsmunum.
Útfærsla Samstarfsvettvangs Vesturlands mun hefjast
í upphafí nýs árs. Nánar er gerð grein fyrir henni í sjálf-
stæðri frásögn afian við þessa ffétt.
Framsögueríndi
Á fundinum flutti Bjami Ármannsson, forstjóri ís-
landsbanka FBA, framsöguerindi er bar yfirskriftina
Fjárfestar og atvinnulífið á landsbyggðinni og Gísli
Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi, erindi um Evrópu og
sveitarfélögin.
Bæði þessi erindi vöktu áhuga sveitarstjórnarfólks
enda flutningur þeirra líflegur og athyglisverður.
Kynning á fyrírtækjum sem SSV hefur
stofnaó og á Atvinnuráögjöf
Atvinnuráðgjöf Vesturlands hefur verið starfrækt í
nánum tengslum við SSV um árabil og er yflrstjóm SSV
og Atvinnuráðgjafar sú sama. Þá hefur SSV staðið að
ýmsum verkefnum eins og að stofhun Símenntunarmið-
stöðvarinnar, Sorpurðunar Vesturlands hf. sem er í eigu
sveitarfélaganna á Vesturlandi, Upplýsinga- og kynning-
anniðstöðvar Vesturlands og Eignarhaldsfélagsins Vest-
urland hf. Starfsmenn þessara fyrirtækja héldu stutta
kynningu á starfseminni.
Ályktanir aóalfundarins
A aðalfundinum störfuðu sex nefndir og voru álit
þeirra afgreidd og samþykkt samhljóða.
Frá allsheijamefnd vom efiirtalin mál samþykkt:
Flutningur verkefna
Aðalfundur SSV 2000 skorar á ríkisstjóm íslands að
fylgja fast eftir stefnu sinni um flutning verkefna út á
land og minnir af því tilefni á skýrslu Iðntæknistofnunar
um það efni.
Meiri fjölbreytni í störfum á landsbygginni er nauð-
synleg til að spoma við byggðarröskun og í ljósi þess á
það að vera forgangsverkefhi ríkisstjómarinnar að flytja
verkefni út á land.
Kostnaður vegna fjarnáms í fjarfundabúnaði
Aðalfúndur SSV 2000 skorar á menntamálaráðherra
og ríkisstjómina að sjá til þess að kostnaður vegna notk-
unar fjarfundabúnaðar teljist eðlilegur hluti kennslu-
kostnaðar þegar um fjamám á ffamhalds- og háskólastigi
er að ræða.
Aukið fjármagn til fjarkennslu
Aðalfundur SSV 2000 skorar á menntamálaráðherra
að beita sér fyrir auknunr fjáveitingum til fjamáms í ljósi
aukinnar aðsóknar að þessum menntunarkosti.
Fundurinn fagnar auknum valkostum í fjamámi en
bendir á þá staðreynd að effrrspum eftir fjamámi er um-
fram það sem skólar hafa getað sinnt. Því er brýnt að
hraða uppbyggingu og þróun þessa verkefnis á fram-
halds- og háskólastigi.