Sveitarstjórnarmál - 01.02.2001, Page 48
FRÁ LANDSHLUTASAMTÖKUNUM
Aðalfundur SSV 2000 telur framlagðar niðurstöður
nefndar um tekjustofna sveitarfélaga ófullnægjandi þar
sem þeir nægja ekki til að að standa undir kostnaði
vegna yfirtekinna verkefna. Jafnframt er lýst yfir
áhyggjum af þeim hækkunum á staðgreiðslu sem tillög-
umar kunna að fela í sér.
Bættar samgöngur besta vörnin gegn byggðarröskun
Að tillögu samgöngunefndar gerði aðalfundurinn svo-
fellda ályktun:
Aðalfundur SSV 2000 varar við hugmyndum um
skerðingu vegaijár og minnir á að bættar samgöngur eru
besta vömin gegn byggðarröskun.
Fagnað er þeim framkvæmdum og/eða undirbúnings-
vinnu, sem unnið er að í vegagerð á Vesturlandi, sbr.
Kolgrafarijörð, Vatnaheiði, Bröttubrekku, tengingu
Fróðárheiðar að sunnanverðu og út í Breiðuvík, Hellna-
veg milli Arnarstapa og Hellna, Vatnshamraleið og
Borgarijarðarbraut en telur ástæðu til að minna á að
þegar vegarstæði er valið og vegir hannaðir sé umferð-
aröryggi haft í fyrirrúmi.
Lýst er ánægju yfir framtaki Vegagerðarinnar og
Landgræðslufélags Skarðsheiðar með stórhuga upp-
græðsluverkefni sem hafið er og mun bæta öryggi veg-
farenda undir Haffiarfjalli vegna sviptivinda.
Minnt er á brýna nauðsyn endurbyggingar þjóðvegar
nr. 1 frá Borgum í Stafholtstungum að Brekku í Norður-
árdal. Einnig er nauðsynlegt að ljúka uppbyggingu á
Fróðárheiði og Útnesvegi.
Aðalfúndur SSV hvetur til þess að:
- Flýtt verði enduruppbyggingu núverandi vegstæðis
þjóðvegar nr. 1 í gegnum Borgames á gmndvelli und-
irbúningsvinnu.
- Undirbúningur haldi áfram við framtíðarveg á milli
Vestur- og Suðurlands um Uxahryggi.
- Endurskoða þarf snjómokstursreglur Vegagerðarinnar
með aukningu snjómoksturs og gera reglumar sveigj-
anlegri.
- Unnið verði áfram að skipulagi og lagningu reiðvega
á Vesturlandi.
- Aukið verði fjármagn til uppbyggingar og viðhalds
tengivega, safnvega og styrkvega.
- Skoðaður verði gmndvöllur að framtíðarrekstri á ferju
yfír Breiðafjörð, þ.e. frá Stykkishólmi að Brjánslæk
með viðkomu í Flatey.
- Gerðar verði undirbúningsrannsóknir á vegstæði yfir
Grunnaijörð.
- Hugað verði að því að leggja bundið slitlag á flugvöll-
inn við Stóra-Kropp.
- Hugað verði að götulýsingu á ijölfömum vegum í ná-
grenni þéttbýlis.
Tryggja verður ijármagn til að girða meðfram öllum
Qölförnum þjóðvegum landsins og veghaldara verði
skylt að sjá um viðhald á öllum girðingum meðfram
vegum sem hafa meira en 300 bíia SDU (sumardagsum-
ferð).
Það er hagsmunamál Vestlendinga að Reykjavíkur-
flugvöllur verði áfram í Vatnsmýrinni og komi til at-
kvæðagreiðslu um staðsetningu flugvallarins þá nái hún
til landsmanna allra.
Vegna áforma um gerð svonefndrar „Sundabrautar"
samkvæmt væntanlegu svæðisskipulagi höfuðborgar-
svæðisins sér samgöngunefnd SSV ástæðu til að vekja
athygli á verulegri slysahættu og aksturserfiðleikum á
vegkaflanum um Kollaijörð af völdum sviptivinda sem
teppa alveg umferð er verst lætur. Með stóraukinni um-
ferð eftir tilkomu Hvalfjarðarganga telur aðalfúndur SSV
nauðsynlegt að huga að þessu vandamáli. Til athugunar
hljóti m.a. að koma, í tengslum við gerð „Sundabrautar",
að vegurinn verði lagður yfir Kollafjörð á fyrstu stigum
þeirrar framkvæmdar.
Fjarskipti
Aðaliiindur SSV fagnar þeim áföngum sem þegar hafa
áunnist í fjarskiptamálum en skorar á samgönguráðherra
og ríkisstjómina að sjá til þess að verðskráin stuðli ekki
að rýrari samkeppnisstöðu einstakra landsvæða gagnvart
öðrum. Það er forsenda þess að fjarvinnsla á lands-
byggðinni sé raunhæf og samkeppnishæf.
Ennfremur vill fundurinn minna á nauðsyn þess að
auka flutningsgetu Símans um dreifðar byggðir kjör-
dæmisins (Intemet) og flýtt verði endumýjun dreifikerfis
Pósts og síma með stækkun senda.
Stjórn SSV
í stjóm SSV til eins árs vom kosin Gunnar Sigurðs-
son, bæjarfúlltrúi á Akranesi, sem var kosinn formaður,
Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi, Guðrún Jónsdótt-
ir, forseti bæjarstjómar í Borgarbyggð, Sigurður Val-
geirsson, oddviti í Leirár- og Melahreppi, Kristinn Jón-
asson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ, Dagný Þórisdóttir, bæj-
arfulltrúi í Stykkishólmsbæ, og Jónas Guðmundsson,
hreppsnefndarmaður í Dalabyggð.
Að fundi loknum var haldið til Eiríksstaða í Haukadal
og Tilgátuhúsið heimsótt. Þar tóku heimamenn á móti
sveitarstjómarfólki og skýrðu ffá uppbyggingu staðarins
og viðburðum sumarsins.
Hrefna B. Jónsdóttir
skrifstofustjóri hjá SSV
Frá því að Guðjón Ingvi Stefánsson lét af starfi
framkvæmdastjóra SSV á miðju sl. ári hefúr Hrefna
B. Jónsdóttir, skrifstofustjóri Atvinnuráðgjafar
Vesturlands, annast verkefni SSV og mun svo
verða enn um hrið.
44