Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.02.2001, Blaðsíða 48

Sveitarstjórnarmál - 01.02.2001, Blaðsíða 48
FRÁ LANDSHLUTASAMTÖKUNUM Aðalfundur SSV 2000 telur framlagðar niðurstöður nefndar um tekjustofna sveitarfélaga ófullnægjandi þar sem þeir nægja ekki til að að standa undir kostnaði vegna yfirtekinna verkefna. Jafnframt er lýst yfir áhyggjum af þeim hækkunum á staðgreiðslu sem tillög- umar kunna að fela í sér. Bættar samgöngur besta vörnin gegn byggðarröskun Að tillögu samgöngunefndar gerði aðalfundurinn svo- fellda ályktun: Aðalfundur SSV 2000 varar við hugmyndum um skerðingu vegaijár og minnir á að bættar samgöngur eru besta vömin gegn byggðarröskun. Fagnað er þeim framkvæmdum og/eða undirbúnings- vinnu, sem unnið er að í vegagerð á Vesturlandi, sbr. Kolgrafarijörð, Vatnaheiði, Bröttubrekku, tengingu Fróðárheiðar að sunnanverðu og út í Breiðuvík, Hellna- veg milli Arnarstapa og Hellna, Vatnshamraleið og Borgarijarðarbraut en telur ástæðu til að minna á að þegar vegarstæði er valið og vegir hannaðir sé umferð- aröryggi haft í fyrirrúmi. Lýst er ánægju yfir framtaki Vegagerðarinnar og Landgræðslufélags Skarðsheiðar með stórhuga upp- græðsluverkefni sem hafið er og mun bæta öryggi veg- farenda undir Haffiarfjalli vegna sviptivinda. Minnt er á brýna nauðsyn endurbyggingar þjóðvegar nr. 1 frá Borgum í Stafholtstungum að Brekku í Norður- árdal. Einnig er nauðsynlegt að ljúka uppbyggingu á Fróðárheiði og Útnesvegi. Aðalfúndur SSV hvetur til þess að: - Flýtt verði enduruppbyggingu núverandi vegstæðis þjóðvegar nr. 1 í gegnum Borgames á gmndvelli und- irbúningsvinnu. - Undirbúningur haldi áfram við framtíðarveg á milli Vestur- og Suðurlands um Uxahryggi. - Endurskoða þarf snjómokstursreglur Vegagerðarinnar með aukningu snjómoksturs og gera reglumar sveigj- anlegri. - Unnið verði áfram að skipulagi og lagningu reiðvega á Vesturlandi. - Aukið verði fjármagn til uppbyggingar og viðhalds tengivega, safnvega og styrkvega. - Skoðaður verði gmndvöllur að framtíðarrekstri á ferju yfír Breiðafjörð, þ.e. frá Stykkishólmi að Brjánslæk með viðkomu í Flatey. - Gerðar verði undirbúningsrannsóknir á vegstæði yfir Grunnaijörð. - Hugað verði að því að leggja bundið slitlag á flugvöll- inn við Stóra-Kropp. - Hugað verði að götulýsingu á ijölfömum vegum í ná- grenni þéttbýlis. Tryggja verður ijármagn til að girða meðfram öllum Qölförnum þjóðvegum landsins og veghaldara verði skylt að sjá um viðhald á öllum girðingum meðfram vegum sem hafa meira en 300 bíia SDU (sumardagsum- ferð). Það er hagsmunamál Vestlendinga að Reykjavíkur- flugvöllur verði áfram í Vatnsmýrinni og komi til at- kvæðagreiðslu um staðsetningu flugvallarins þá nái hún til landsmanna allra. Vegna áforma um gerð svonefndrar „Sundabrautar" samkvæmt væntanlegu svæðisskipulagi höfuðborgar- svæðisins sér samgöngunefnd SSV ástæðu til að vekja athygli á verulegri slysahættu og aksturserfiðleikum á vegkaflanum um Kollaijörð af völdum sviptivinda sem teppa alveg umferð er verst lætur. Með stóraukinni um- ferð eftir tilkomu Hvalfjarðarganga telur aðalfúndur SSV nauðsynlegt að huga að þessu vandamáli. Til athugunar hljóti m.a. að koma, í tengslum við gerð „Sundabrautar", að vegurinn verði lagður yfir Kollafjörð á fyrstu stigum þeirrar framkvæmdar. Fjarskipti Aðaliiindur SSV fagnar þeim áföngum sem þegar hafa áunnist í fjarskiptamálum en skorar á samgönguráðherra og ríkisstjómina að sjá til þess að verðskráin stuðli ekki að rýrari samkeppnisstöðu einstakra landsvæða gagnvart öðrum. Það er forsenda þess að fjarvinnsla á lands- byggðinni sé raunhæf og samkeppnishæf. Ennfremur vill fundurinn minna á nauðsyn þess að auka flutningsgetu Símans um dreifðar byggðir kjör- dæmisins (Intemet) og flýtt verði endumýjun dreifikerfis Pósts og síma með stækkun senda. Stjórn SSV í stjóm SSV til eins árs vom kosin Gunnar Sigurðs- son, bæjarfúlltrúi á Akranesi, sem var kosinn formaður, Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi, Guðrún Jónsdótt- ir, forseti bæjarstjómar í Borgarbyggð, Sigurður Val- geirsson, oddviti í Leirár- og Melahreppi, Kristinn Jón- asson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ, Dagný Þórisdóttir, bæj- arfulltrúi í Stykkishólmsbæ, og Jónas Guðmundsson, hreppsnefndarmaður í Dalabyggð. Að fundi loknum var haldið til Eiríksstaða í Haukadal og Tilgátuhúsið heimsótt. Þar tóku heimamenn á móti sveitarstjómarfólki og skýrðu ffá uppbyggingu staðarins og viðburðum sumarsins. Hrefna B. Jónsdóttir skrifstofustjóri hjá SSV Frá því að Guðjón Ingvi Stefánsson lét af starfi framkvæmdastjóra SSV á miðju sl. ári hefúr Hrefna B. Jónsdóttir, skrifstofustjóri Atvinnuráðgjafar Vesturlands, annast verkefni SSV og mun svo verða enn um hrið. 44
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.