Hermes - 01.12.1988, Blaðsíða 137
135
Ragnar Snorri Magnússon,
1966-1967.
Útskr. 1965. Hefursinntfjölmörg-
um störfum á vegum Framsóknar-
flokksins í Kópavogi og tekið þátt
í íþróttum bæði sem liðsmaður og í
félagsmálum. Hefur starfað lengst
af hjá Olíufélaginu hf., en rekur
nú bókhaldsstofuna Vélabókhald-
iðhf.
Kristín Bragadóttir, 1971-1972.
Útskr. 1969. Vann skrifstofustörf
hjá ýmsum fyrirtækjum í Reykja-
vík, lengst hjá Pósti og síma, en
hefur verið sjúklingur síðustu ár.
Júlíus Kr. Valdimarsson,
1967-1968.
Útskr. 1962. Hefur starfað að
ýmsum félagsmálum og var um
langt skeið framkvæmdastjóri
Vinnumálasambands samvinnu-
félaganna. Starfar nú við nám-
skeiðahald og að ýmsum verkefn-
um fyrir Flokk mannsins og hreyf-
ingar tengdar honum.
Vigdís Pálsdóttir,
1972-1973 og 1980-1981.
Útskr. 1964. Hefur unnið við
skrifstofustörf í Borgarnesi,
Reykjavík, Danmörku og Pýska-
landi, en lengst af starfað í Utan-
ríkisráðuneytinu, aðallega í sendi-
ráðum erlendis. Er nú fulltrúi í Ut-
anríkisráðuneytinu í Reykjavík.
Sævar Þór Sigurgeirsson,
1968-1969.
Útskr. 1965. Hefur sinnt margvís-
legum félagsmálum, einkum á
vegum Framsóknarflokksins. Fór
í endurskoðunarnám og rekur nú,
ásamt öðrum, Endurskoðunar-
þjónustuna í Reykjavík.
Pétur Óli Pétursson, 1973-1974.
Útskr. 1968. Hefur mikið sinnt fé-
lagsmálum, einkum í málmiðnaði.
Stundaði margvísleg skrifstofu-
störf í Reykjavík og erlendis, en
hefur frá árinu 1976 verið fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins Vélar
og þjónusta hf.
Atli Frevr Guðmundsson.
1969-1971 og 1977-1978.
Útskrifaðist 1969. Hefur mikið
unnið að félagsmálum, einkum á
stjórnmálasviðinu. Var við há-
skólanám í Englandi og tók BA-
próf frá Félagsvísindadeild Há-
skóla íslands. Hefur lengst af
starfað í Viðskiptaráðuneytinu og
er nú deildarstjóri þar.
Jón Guðlaugur Magnússon,
1974-1975.
Útskr. 1968. Hefur sinnt margvís-
legum félagsmálum og setið í
nefndum og stjórnum, bæði á veg-
um ísafjarðarbæjar og Kópavogs-
kaupstaðar. Rekur nú fyrirtækið
Marbakka í Kópavogi.