Hermes - 01.12.1988, Blaðsíða 70
68
/ kennslustund haustið 1988.
Verslun hefur verið rekin í Samvinnuskólanum frá 1943 og heitir auð-
vitað Kaupfélag Samvinnuskólans. Kaupfélagið starfar enn og á hverju
ári er kosinn kaupfélagsstjóri úr hópi nemenda. Þessi mynd er nokkurra
ára gömulog sýnir Þorstein Húnbogason viðafgreiðslu fyrir fullribúð.
Að Bifröst er fólk á öllum aldri og mikið af börnum því stundum eru
báðir foreldrar i námi. Þess vegna er rekið barnaheimili þar sem m.a.
starfa makar nemenda. Það þurfti ekki lengi að biðja börnin að stilla sér
upp til myndatöku.
IV
Sumarið 1987 var Reglugerð um Samvinnuskólann samþykkt í
stjórn Sambands ísl. samvinnufélaga. Samkvæmt reglugerð-
inni er Samvinnuskólinn „viðskipta- og félagsmálaskóli, eink-
um ætlaður þeim sem öðlast hafa starfsreynslu í atvinnulífinu
að lokinni almennri skólagöngu.“ Enn fremur er tekið fram að
„Samvinnuskólinn er sérstök stofnun innan samvinnuhreyfing-
arinnar.“
Samkvæmt reglugerðinni er það markmið Samvinnuskólans
„að annast fræðslu á vegum samvinnuhreyfingarinnar með því
að þjálfa og fræða nemendur til starfa við rekstur, viðskipti og
stjórnun; til þátttöku og forystu í félagsstarfi; til samvinnu við
aðra, sjálfsnáms og annarra hagnýtra mennta.“
í reglugerðinni eru að sjálfsögðu önnur tilskilin ákvæði og
skal þess hér aðeins getið til viðbótar að skólanefnd skipa fimm
menn, fjórir sem stjórn Sambands ísl. samvinnufélaga kýs og
einn sem menntamálaráðherra skipar.
I samþykkt skólanefndar í desember 1987 segir svo m.a. um
rekstrarfræði á háskólastigi: „Fræðslan miðar að því að
rekstrarfræðingar úr Samvinnuskólanum séu sem best undir-
búnir til ábyrgðar- og stjórnunarstarfa, einkum á vegum sam-
vinnuhreyfingarinnar." Rekstrarfræðanám á að taka tvö náms-
ár eins og áður segir, en inntökuskilyrði er stúdentspróf af við-
skipta- eða hagfræðibraut eða Samvinnuskólapróf í frumgrein-
um eða önnur sambærileg menntun.
Að auki ákvað skólanefnd að starfrækt skyldi sérstök Frum-
greinadeild með eins vetrar námi til undirbúnings rekstrar-
fræðanáminu. Inntökuskilyrði þessarar deildar er þriggja ára
nám á framhaldsskólastigi án tillits til námsbrautar. Þessi deild
er ekki síst ætluð þeim sem áður hafa lokið verklegu námi, iðn-
aðarmönnum, búfræðingum, stýrimönnum o.s.frv. auk þeirra
sem stundað hafa nám á bóknámsbrautum ýmiss konar.
Loks ákvað skólanefndin að þeir umsækjendur skuli ganga
fyrir um inntöku í Samvinnuskólann „sem orðnir eru eldri en
20 ára og hafa öðlast starfsreynslu í atvinnulífinu.“
y
Ákaflega mikil vinna hefur staðið yfir meðal starfsmanna Sam-
vinnuskólans að Bifröst nú undanfarna mánuði við undirbún-
ing þessa nýja sérskóla á háskólastigi. Engan þarf að undra að
mikið skyldi til mikils vinna á skömmum tíma. En við þetta
bætist að skólanum er ætlað að starfa með allsérstæðum hætti
með kennsluskipan sem ekki hefur áður tíðkast hér á landi.
Við nýja Samvinnuskólann verður megináhersla ekki lögð á
fyrirlestrakennslu, utanbókarlærdóm og lokapróf. Helstur
þungi námsins verður fólginn í daglegum og vikulegum raun-
hæfum verkefnum sem nemendum er ætlað að skila til kennara
og fjalla síðan um með honum ásamt öðrum nemendum.
Þriðjungur verkefna er hópvinna. Þannig er ætlunin að raun-
hæf sjónarmið og verkleg þjálfun sitji í fyrirrúmi en samvinna
við umfjöllun og gagnkvæm skipti reynslu og þekkingar geti
stöðugt átt sér stað.
Þá er ráð fyrir því gert að hvert misseri námsins verði sjálf-
stæð heild. Á einu misserinu verður athygli beint að markaðar-
fræðum og sölustjórnun, á öðru að fjármálastjórnun og áætl-
anagerð, á því þriðja að skipulagsmálum og starfsmannastjórn
og á því fjórða að hagrænu og lögformlegu umhverfi atvinnu-
rekstrarins. Á hverju misseri verða samþætt verkefni í opnum
skóla og nemendur einnig sendir út frá skólanum til atvinnufyr-
irtækja til að vinna þar lokaverkefni á því sviði sem við á hverju
sinni.
Kennslu er þannig skipt í þessum nýja Samvinnuskóla: í
fyrsta lagi eru fluttir yfirlitsfyrirlestrar fyrir alla nemendur í