Hermes - 01.12.1988, Blaðsíða 148
146
ORIENT
ORIENT WATCH CO.,LTD.
Ef þú
gerir kröfur
um gæði
veldu þá
Fallegu
ORIENT
armbandsúrin
hjá úrsmiðnum
ORIENT
ORIENT WATCH CO..LTD.
merkipenna, því næst Vestmanna-
eyjamyndirnar. Ertu ekki í raun tema-
málari?
Það er sjálfsagt ekkert verri skilgreining
en eitthvað annað. Þú minnist á vélalakk
beint á karton. Þar hefur þú sjálfsagt í
huga „Víkinginn“, sem þú átt sjálfur.
Það er nú bara ein besta mynd, sem ég
hef gert. Þá stóð ég réttur í allri minni
lengd, með kartonið flatt á gólfinu fyrir
neðan mig, og lét lakkið drjúpa niður, og
leitaðist við að fá form út úr því.
Jú, eflaust má skipta myndum mínum
upp í einhver tímabil í stórum dráttum,
en ég hef aldrei verið alveg fastur í neinu.
Ég hef til dæmis inn á milli verið með
teikningar í bækur og fleira þess háttar.
Fleira hefur þú borið við. Ef ég veit rétt
gerðir þú fyrstu íslensku teiknimvnda-
sjónvarpsauglýsinguna, um Trölla-
sparibauk Utvegsbankans.
Skyldir þú vita það, sem samdir í hana
ódauðlega vísu! Sú auglýsing tókst ágæt-
lega og allt féll vel saman, myndin,
textinn, lagið sem Guðbergur Auðuns-
son samdi, og flutningur hans. Enda
heyrði maður þær sögur að bankinn átti
engan veginn von á viðbrögðunum, varð
uppiskroppa með Trölla-sparibauka svo
það myndaðist langur biðlisti viðskipta-
vina, sem urðu að bíða eftir því að nýr
farmur af baukum kæmi með einhverju
skipi - og þá hét það auðvitað Tröllafoss!
Það er ekki langt síðan þessi auglýsing
kom í sjónvarpinu - þá var verið að
kveðja hana.
Það var rnargt sem lagðist á eitt til að
gera þessa auglýsingu svona áhrifamikla.
Þetta var fyrsta íslenska sjónvarpsaug-
lýsingin sem var teiknimynd, og þá var
heldur ekki komið mikið af erlendum
teiknimyndum í sjónvarpið yfirleitt,
hvorki auglýsingar né skemmtimyndir,
þannig að það var lítið svona efni sem
höfðaði til krakka. Svo var líka verðið á
bauknum. Bankasamstæðan, sem þeir
fengu baukinn frá - mig minnir hún hafi